Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.05.1998, Qupperneq 28
26
Utanríkisverslun 1997 - vöruflokkar og viðskiptalönd
17. yfirlit sýnir útflutning eftir Hagstofuflokkun og markaðs-
svæðum árið 1997. EES lönd áttu mesta hlutdeild í útflutningn-
um, eða 66%. Sjávarafúrðir voru 71 % alls útflutningsins og af
þeim voru 68% flutt út til EES-landa. Þessi lönd keyptu 54%
af landbúnaðarvörum og 69% af þeim iðnaðarvörum sem
Islendingar fluttu út.
18. yfírlit sýnir innflutning eftir vörubálkum (SITC) og
markaðssvæðum árið 1997. EES-lönd voru með 70% af inn-
flutningi 1997. Innflutningur á vélum og samgöngutækjum
var stærsti liður innflutningsins (37%) og af þeim voru 65%
flutt inn frá EES.
19. yfirlit sýnir, eins og 17. yfirlit, útflutning eftir markaðs-
svæðum en samkvæmt hagrænni flokkun. Matvörur og
drykkjarvörur vega hér þyngst (62%) og af þeim voru 62%
flutt út til EES-landa árið 1997. Af hrávörum og rekstrar-
vörum sem næstar eru var 81% flutt út til EES-landa. Af
fjárfestingarvörum og flutningatækjum var meiri útflutningur
til annarra landa en landa EES.
20. yfirlit sýnir innflutning eftir markaðssvæðum eins og
18. yfirlit en samkvæmt hagrænni flokkun. Hrávörur og
rekstrarvörur vega þyngst (26%) af þeim voru 77% flutt inn
frá EES-löndunum. Um 77% eldsneytis og smurolíu kom
frá EES-löndum, aðallega Noregi.
Gjaldmiðlar og gengi
21. yfirlit sýnir hlutdeild landa og gjaldmiðla i útflutningi
og innflutningi árið 1997. Þessi tafla byggist á því að í út-
flutnings- og aðflutningsskýrslum kemur ffam í hvaða gjald-
miðli hver sending útfluttrar og innfluttrar vöru er verðlögð.
Oft munar töluverðu á verðmæti útfluttrar vöru héðan til
annars lands og þeirri upphæð í gjaldmiðli sama lands sem
hingað berst. Þetta kemur skýrt fram í viðskiptum við
Bandaríkin. Árið 1997 fór 14% vöruútflutningsins til Banda-
ríkjanna en 36% útflutningsins voru verðlögð í dollurum
(26% 1996). Frá Bandaríkjunum kom 9% innflutningsins
árið 1997 en 27% innflutningsins voru reiknuð í dollurum
(29% árið 1996).
22. yfirlit sýnir kaupgengi og sölugengi helstu gjaldmiðla
árið 1997.
21. yfirlit. Hlutdeild landa og gjaldmiðla í útflutningi og innflutningi árið 1997
Hlutdeild landa í utanríkisverslun Hlutdeild gjaldmiðla viðkomandi landa
Útflutningur Innflutningur Útflutningur Innflutningur
Alls 100,0 100,0 100,0 100,0
EES 66,1 69,6 51,6 67,5
Austurríki 0,1 0,6 0,1 0,4
Belgía 1,1 2,0 1,3 1,3
Bretland 18,9 10,1 19,7 10,2
Danmörk 5,7 8,6 5,8 13,1
Finnland 1,1 1,6 1,1 1,0
Frakkland 6,3 3,3 5,1 2,3
Grikkland 0,6 0,1 - 0,0
Holland 3,3 6,5 1,6 5,5
Irland 0,2 1,2 0,1 0,2
ísland 0,2 1,8
Ítalía 1,8 3,2 0,5 1,9
Liechtenstein 0,0 0,0 - -
Lúxemborg 0,2 0,1 0,0 0,0
Noregur 5,6 11,5 5,0 7,2
Portúgal 2,6 0,7 0,9 0,2
Spánn 4,4 1,6 2,9 0,6
Svíþjóð 1,1 6,7 0,7 7,4
Þýskaland 13,1 11,8 6,6 14,5
Bandaríkin 13,9 9,4 35,8 26,5
Japan 6,6 4,9 6,6 2,1
Önnur lönd 13,3 16,1 1,3 3,4
Astralía 0,0 1,7 0,0 0,0
Hongkong 0,0 0,5 - 0,0
Kanada 1,2 1,0 0,7 0,7
Nýja-Sjáland 0,0 0,1 0,0 0,0
Singapúr 0,0 0,2 - 0,0
Sviss 3,0 2,2 0,6 2,7
Önnur lönd 8,9 10,3 - 0,0
Annað 4,6 0,5
ECU-Evrópumynt 4,6 0,0
SDR-Sérstök dráttarréttindi - -