Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.06.2000, Blaðsíða 11
Inngangur
Gagnasöfnun
Upplýsingar um utanríkisverslun byggjast að mestu leyti á
aðflutningsskýrslum innflytjenda og útflutningsskýrslum út-
flytjenda. Skýrslumar eru tölvuskráðar hjá tollstjórum og
hefur Hagstofan aðgang að gagnaskrám Ríkistollstjóra og
sækir þangað upplýsingar með vélrænum hætti. Þessar upp-
lýsingar eru yfirfarnar og leiðréttar eins og kostur er. Oft er
haft samband við viðkomandi innflytjendur eða útflytjendur
til nánari útskýringa eða leiðréttingar. Hagstofan skráir einnig
aðflutningsskýrslur frá Tollpóststofu.
Víðar er leitað upplýsinga um utanríkisverslun en af
tollskýrslum. Siglingastofnun Islands (Skipaskrá) og Flug-
málastjóm, Loftferðaeftirlit, gefa upplýsingar um kaup og
sölu á flugvélum og skipum og er haft samband við
hlutaðeigandi kaupendur og seljendur til nánari upplýsinga.
Sigiingastofnun gefur upplýsingar um hvaða skip fara utan
til breytinga. I framhaldi af því er haft samband við fyrirtæki
sem hiut eiga að máli til nánari upplýsinga. Sendar eru
fyrirspurnir til fyrirtækja í viðkomandi atvinnugrein um
endurbætur á erlendum skipum framkvæmdar af íslenskum
fyrirtækjum. Fiskistofa gefur upplýsingar um landanir
íslenskra fiskiskipa í erlendum höfnum og fiskiskipa í eigu
íslenskra aðiia sem eru skráð erlendis (þ.e. sigla undir
hentifána).
Umfang
Hagstofan fylgir að mestu leiðbeiningum Sameinuðu
þjóðanna um skilgreiningu og meðferð talnaefnis um
utanríkisverslun (United Nations: International Trade Sta-
tistics, Concepts and Definitions), þ.e. hvað er tekið með,
hvernig og hvenær. Um er að ræða vöruviðskipti og er
almenna skilgreiningin sú að allur innflutningur og
útflutningur sem eykur eða skerðir efnislegar auðlindir lands
á að teljast með í utanríkisverslunartölum. Venja er að greina
á milli tvenns konar grundvallarreglna um skýrslur varðandi
utanríkisverslun, almennra verslunarreglna (general trade
system) og sértækra verslunarreglna (special trade system).
Munur á þessum reglum felst aðallega í skráningu á vöru
sem flutt er í tollvörugeymslu og á frísvæði. Samkvæmt
almennu verslunarreglunum er vara skráð sem innflutt þegar
hún kemur inn í tollvörugeymslu/frísvæði en samkvæmt
sértæku verslunarreglunum er varan skráð þegar hún fer úr
tollvörugeymslu/frísvæði inn í landið. Hérlendis er fylgt
sértæku verslunarreglunum frá miðju ári 1998.
Dæmi um liði sem eru meðtaldir í íslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Gull sem söluvara
- Vörur sendar í pósti, að verðmæti meira en 25.000
krónur
- Vörur sem fluttar eru inn í landið eða út úr því til frekari
vinnslu
- Ýmsar vörur með hátt hlutfail þjónustu (t.d. skipulags-
teikningar, spólur, hugbúnaður o.s.frv.)
- Skip og flugvélar í förum milli landa
- Landanir erlendra fiskiskipa í innlendum höfnum
- Landanir íslenskra fiskiskipa erlendis og einnig landanir
hentifánaskipa erlendis, skipa í eigu Islendinga
- Vörur í eignarleigu (eitt ár eða lengur)
- Endursendar vörur
- Meiri háttar viðgerðir og endurbætur
Dæmi um liði sem ekki eru meðtaldir í íslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Vörur sem sem koma til landsins en flytja á áfram (tran-
sit)
- Tímabundinn innflutningur og útflutningur (t.d. fyrir
ýmiss konar sýningar)
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng seld erlendum skipum
eða flugvélum innanlands
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng keypt erlendis fyrir
íslensk skip eða flugvélar
- Ólögleg verslun
- Vörur frá ríkisstjórn til sendiráða og fulltrúa ríkisins
erlendis og aðsendar vörur til sendiráða og fulltrúa
erlendra ríkja innanlands
- Gull til myntsláttu
- Vörur í afnotaleigu (innan við eitt ár)
- Verðlítil sýnishorn
- Keypt eða seld hentifánaskip
- Afli sem hentifánaskip í eigu Islendinga landar í
íslenskri höfn
- Vöruviðskipti varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
- Vörusala á Keflavíkurflugvelli
Flokkun
Tollskrárnúmer
Flokkun vörutegunda í utanríkisverslun byggist á tollskrá.
Núgildandi tollskrá tókgildi hinn 1. janúar 1988 skv. lögum
nr. 96/1987 um breyting á tollalögum nr. 55/1987. Tollskráin
byggist á hinni alþjóðlegu vöruflokkunarskrá Tollasam-
vinnuráðsins í Brussel. Alþjóðlega skráin er nefnd Hið sam-
rœmda flokkunarkerfi og er þekkt undir skammstöfuninni
HS eftir hinu enska heiti sínu (the Harmonized Commodity
Description and Coding System). HS-skráin var viðtekin
með samningi Tollasamvinnuráðsins í Brussel í júní 1983
og gefin út árið 1985. Islendingar voru aðilar að þessum
samningi og var hann fullgiltur af Islands hálfu í júní 1986.
HS-skráin tók gildi í flestum aðildarríkjum Tollasamvinnu-
ráðsins frá og með 1. janúar 1988. Samkvæmt gildandi
tollalögum er heimilt að breyta einstökum tollskrámúmerum
með auglýsingu um breytingu á viðauka I við lögin. Slíkar
breytingar. misjafnlega umfangsmiklar, hafa verið gerðar á
hverju ári, m.a. til samræmis við breytingar á HS-skránni.
HS-skráin er sex stafa flokkunarkerfi þar sem tveir fyrstu
stafirnir mynda kafla frá 01 -97 og eru vörur flokkaðar innan
þessa flokkunarkerfis eftir efni þeirra. Þau ríki sem hafa
undirritað samninginn um notkun þessa samræmda kerfis