Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.06.2000, Side 18
16
Utanríkisverslun 1999 - vöruflokkar og viðskiptalönd
milljarðar) og kísiljárn (3,1 milljarður). Verðmæti útfluttrar aukins útflutnings á áli. Utflutningur á öðrum vörum jókst
iðnaðarvöru jókst um 5,6 milljarða frá 1998, aðallega vegna um 4,1 milljarða, aðallega vegna aukinnar skipasölu.
8. yfirlit. Útflutningur eftir vöruflokkum (Hagstofuflokkun) árin 1998 og 1999
Fob-verð á gengi hvors árs 1998 1999 Breyting frá fyrra ári, %
Millj. kr. % Millj. kr. %
Samtals 136.592 100,0 144.928 100,0 6,1
Sjávarafurðir 99.233 72,6 97.682 67,4 -1.6
Landbúnaðarafurðir 1.966 1,4 2.140 1,5 8,9
Iðnaðarvörur 31.496 23,1 37.081 25,6 17,7
Aðrar vörur 3.897 2,9 8.025 5,5 105,9
I 9. yfirliti er útflutningur birtur eftir hagrænni flokkun
(BEC). Eins og áður hefur komið fram vega matvörur og
drykkjarvörur mest í útflutningi en sökum eðlismunar
hagrænu flokkunarinnar (BEC) og SITC-flokkunarinnar eru
matvörur og drykkjarvörur með lægri hlutdeild í hagrænu
flokkuninni en matur og lifandi dýr í SITC-flokkuninni.
Astæðan er sú að hluti af því sem fellur undir liðinn matur
og lifandi dýr í SITC-flokkuninni tilheyrir hrávörum og
rekstrarvörum í hagrænu flokkuninni. Samkvæmt hagrænu
flokkuninni eru mat- og drykkjarvörur 62% af heildar-
útflutningi, næst koma hrá- og rekstrarvörur með 29%
hlutdeild. Nánari sundurliðun á útflutningi eftir hagrænum
flokkum er birt í töflu 5. Þar sést að unnar mat- og drykkjar-
vörur, einkum til heimilisnota, eru fyrirferðarmestar innan
mat- og drykkjarvara. Þar vega þyngst fryst rækja og fryst
þorskflök. I hrávörum og rekstrarvörum eiga ál, loðnumjöl,
kísiljárn og loðnulýsi mesta hlutdeild. í krónum talið var
mest aukning í útflutningi á flutningatækjum vegna aukins
skipaútflutnings en einnig var aukning í útflutningi matvöru
og drykkjarvöru, aðallega unninnar, en á móti kemur að
útflutningur á hrávöru og rekstrarvöru dróst saman.