Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.06.2000, Blaðsíða 13
Utanríkisverslun 1999 - vöruflokkar og viðskiptalönd
11
Verðreikningur
Verðmæti innfluttrar vöru er ýmist sýnt á cif-verði eða fob-
verði en verðmæti útflutnings eingöngu á fob-verði. Með fob-
verði (free on board) er átt við verð vörunnar komið um borð
í flutningsfar í útflutningslandi. I cif-verði (cost, insurance,
freight) er einnig talinn sá kostnaður sem fellur á vöruna þar
til henni er skipað upp í innflutningslandi. Aðallega er um að
ræða flutningsgjald og vátryggingarkostnað. I hagskýrslum
um utanríkisverslun er venjan sú að innflutningur er talinn á
cif-verði en útflutningur á fob-verði. Eðli málsins samkvæmt
á þó þessi regla ekki við um ferskan fisk sem seldur er í
erlendum höfnum. Við verðákvörðun þessarar vöru eru frá
brúttósöluverði dregnir tilteknir kostnaðarliðir, mismunandi
eftir löndum. Hér er um að ræða löndunarkostnað og hafnar-
gjöld, toll og sölukostnað, samkvæmt upplýsingum frá Fiski-
stofu.
Tölur um verðmæti innflutnings eru fengnar með því að
umreikna verðmæti vörunnar í erlendum gjaldeyri til ís-
lenskra króna miðað við sölugengi viðkomandi gjaldmiðils.
Utflutningstölur eru miðaðar við kaupgengi. Viðmiðunar-
gengið er svokallað tollgengi sem er hið opinbera gengi skráð
af Seðlabanka Islands 28. hvers mánaðar, sé það virkur dagur,
ella næsta rúmhelgan dag.
Magn
Með magni útflutnings og innflutnings er átt við nettóþyngd
(þ.e. þyngd án umbúða) í tonnum nema annað sé tilgreint
sérstaklega. í þessu riti er í töflum 19 og 21 tilgreindur fjöldi
útfluttra hrossa í stað þyngdar þeirra í tonnum en þyngd
þeirra er meðtalin í samtölu hvers lands fyrir landbúnaðar-
vörur í töflu 19.
Utanríkisverslun 1999
V öruskiptajöfnuður
11. yfirliti er sýnd þróun utanríkisverslunar áratuginn 1990-
1999, annars vegar á gengi hvers árs og hins vegar á
meöalgengi ársins 1999. Innflutningur er hér sýndur á cif-
verði en útflutningur á fob-verði. Á árinu 1999 nam verðmæti
vöruútflutningsins í heild 144,9 milljörðum króna fob á móti
182,3 milljarða heildarvöruinnflutningi cif. Þetta þýðir að
útflutningur umfram innflutning á árinu 1999 var neikvæður
um 37,4 milljarða. Samkvæmt þessum mælikvarða hefur
verið halli á utanríkisversluninni allan þennan áratug að
undanskildum árunum 1993-1995. Hallinn hefur verið mis-
mikill eða frá um 4,3% af útflutningsverðmæti árið 1990,
upp í 28,9% árið 1998. Hallinn á vöruskiptunum var 25,8%
árið 1999, 9,2% árið 1997 og 8,2% árið 1996.
Innflutningur er gerður upp á fob-verði í íslenskum þjóð-
hagsreikningum. Mismunur cif-verðs og fob-verðs, aðallega
farmgjöld og vátrygging, færist þá á útgjaldahlið þjónustu-
reiknings. Niðurstaðan á viðskiptareikningi (sem er samtala
vöm- og þjónustureiknings) verður því hin sama óháð því
hvorri aðferðinni er beitt. Tölur um vöruskiptajöfnuð breytast
hins vegar mikið. Þetta kemur fram í 2. yfirliti sem sýnir vöm-
skiptajöfnuðinn þar sem verðmæti útflutnings og innflutnings
er hvort tveggja reiknað á fob-verði. Til þess að gefa betri
vísbendingu um vöruskiptajöfnuðinn er jafnframt sýnt hlut-
fall hans af vergri landsframleiðslu samkvæmt tölum Þjóð-
hagsstofnunar. Innflutningur fob 1999 nam 167,8 milljörðum
og var vöruskiptajöfnuðurinn 1999 því óhagstæður um 22,9
milljarða. í 2. yfirliti kemur fram að vöruskiptajöfnuðurinn
fob við útlönd hefur verið hagstæður fímm ár af þeim tíu ámm
sem hér em sýnd. Mestur afgangur var árið 1994, 4,5% af
vergri landsframleiðslu, einnig var umtalsverður afgangur árin
1993 og 1995. Halli var á vöruskiptunum fimm þessara ára,
mestur 4,4% af vergri landsframleiðslu árið 1998 en hallinn
var 3,6% árið 1999. Á mynd 1 má sjá þróun útflutnings fob,
innflutnings fob og vömskiptajafnaðar fob.
Fróðlegt er að sjá hvernig hlutfall fob-verðs og cif-verðs
hefur þróast undanfarin ár. Árið 1999 nam heildarverðmæti
innflutningsins cif 182,3 milljörðum kr. en fob-verðmæti
hans 167,8 milljörðum kr. eða sem nam 92% af cif-verð-
mætinu. Sambærilegthlutfall var92% árið 1998,91,7% árið
1997 og 90,4-91,8% árin 1989-1996.
1. yfírlit. Utanríkisverslun árin 1990-1999
I milljónum króna á gengi hvers árs í milljónum króna á gengi ársins 1999 1 Útflutt umfram innflutt í % af útflutningi
Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif) Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif)
1990 92.625 96.621 -3.996 101.450 105.827 -4.377 -4,3
1991 91.560 104.129 -12.569 100.283 114.050 -13.767 -13,7
1992 87.833 96.895 -9.063 95.723 105.600 -9.877 -10,3
1993 94.658 91.307 3.351 95.254 91.883 3.371 3,5
1994 112.654 102.541 10.113 107.759 98.087 9.672 9,0
1995 116.607 113.614 2.993 111.653 108.787 2.866 2,6
1996 125.690 135.994 -10.304 120.471 130.348 -9.877 -8,2
1997 131.213 143.227 -12.014 128.332 140.081 -11.749 -9,2
1998 136.592 176.072 -39.480 136.319 175.720 -39.401 -28,9
1999 144.928 182.322 -37.394 144.928 182.322 -37.394 -25,8
Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.