Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.06.2000, Blaðsíða 14
12
Utanríkisverslun 1999 - vöruflokkar og viðskiptalönd
2. yfirlit. Vöruskiptajöfnuður árin 1990-1999
í milljónum króna Útflutt fob Innflutt fob V öruskiptaj öfnuður
Á gengi hvers árs Á gengi ársins 1999 1 Hlutfall af vlf., %
1990 92.625 88.085 4.540 4.972 1,25
1991 91.560 94.797 -3.237 -3.546 -0,82
1992 87.833 88.224 -391 -426 -0,10
1993 94.658 82.576 12.082 12.157 2,94
1994 112.654 93.243 19.411 18.568 4,46
1995 116.607 103.539 13.068 12.512 2,89
1996 125.690 124.836 854 818 0,18
1997 131.213 131.326 -113 -111 -0,02
1998 136.592 162.062 -25.470 -25.419 -4,34
1999 144.928 167.778 -22.850 -22.850 -3,58
Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.
Mynd 1. Utanríkisverslun árin 1985-1999
Milljónir króna á gengi hvers árs
Verð- og magnbreytingar 1998-1999
3. yfirlit sýnir samanburð á utanríkisverslunartölum á föstu
gengi árin 1998 og 1999. Þetta yfirlit er með sama sniði og
sú fréttatilkynning sem Hagstofan gefur út í hverjum mánuði
um framvindu helstu flokka innflutnings og útflutnings í
samanburði við næstliðið ár. Venja hefur verið að umreikna
tölur fyrra árs til meðalgengis líðandi árs til þess að eyða
áhrifum gengisbreytinga á verðmætistölur svo samanburður
milli ára verði marktækari en ella.
í 3. yfirliti kemur fram að verðmæti útflutnings jókst um
6% frá árinu 1998 til ársins 1999 og verðmæti innflutnings
fob jókst um 4% þegar tekið hefur verið tillit til 0,2%
lækkunar á meðalverði erlends gjaldeyris milli ára. Verðmæti
sjávarafurða dróst saman um 1%, reiknað á sama gengi bæði
árin. Verðmæti iðnaðarvara jókst um 18%, en þar af jókst
útflutningur á áli um 23%. Verðmæti útflutts kísiljáms dróst
saman um 2%. Mikil aukning var á innflutningi á bflum,
22%. Einnig varð aukning í innflutningi á mat- og drykkjar-
vömm, eldsneyti og neysluvörum en innflutningur á fjár-
festingarvörum dróst lítillega saman, reiknað á sama gengi
bæði árin
Samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar á einingar-
verðsvísitölum útflutnings og innflutnings, sem sjást í 4.
yfirliti, lækkaði útflutningsverð í krónum um 1,2% frá árinu
1998 til ársins 1999. Samkvæmt sömu heimild lækkaði
innflutningsverð í krónum um 0,9% árið 1999 miðað við
árið á undan.
f krónum talið varð verðmæti vömútflutnings 6,1% meira
árið 1999 en árið áður og útflutningsverð lækkaði á sama
tíma um 1,2%. Að raungildi jókst því vöruútflutningur um