Forsetakjör


Forsetakjör - 01.11.1997, Qupperneq 9

Forsetakjör - 01.11.1997, Qupperneq 9
Inngangur Introduction 1. Aðdragandi kjörs forseta íslands 1996 Background to the presidential election of 1996 Forseti íslands skal vera þjóðkjörinn og hefst kjörtímabil hans 1. ágúst og endar 31. júlí að fjórum árum liðnum. 1 Forsetakjör skal fara fram síðasta laugardag í júnímánuði fjórða hvert ár. 1 2 Fram til ársins 1984 var kjördagur síðasti sunnudagur í mánuðinum. Frá stofnun lýðveldisins 17. júní 1944 til 1. ágúst 1996 höfðu fjórir gegnt embætti forseta Islands. Sveinn Björnsson, fyrsti forseti fslands (f. 27. janúar 1882, d. 25. janúar 1952), var þingkjörinn til embættisins við stofnun lýðveldisins. Hann var síðan þjóðkjörinn tvívegis án atkvæðagreiðslu, enda einn í framboði, árin 1945 og 1949. Hann gegndi embætti forseta til dauðadags. Ásgeir Ásgeirsson (f. 13. maí 1894, d. 15. september 1972) varkjörinn forsetiíkosningum 29. júní 1952 og endurkjörinn þrisvar án atkvæðagreiðslu, árin 1956, 1960 og 1964. Kristján Eldjám (f. 6. desember 1916, d. 14. september 1982) var kjörinn forseti í kosningum 30. júní 1968 og endurkjörinn tvisvar án atkvæðagreiðslu, árin 1972 og 1976. Vigdís Finnbogadóttir, fjórði forseti íslands (f. 15. aprfl 1930), gegndi embættinu fjögur kjörtímabil. Hún var fyrst kjörinforsetiíkosningum29.júní 1980. Árin 1984 og 1992 var hún sjálfkjörin í embætti forseta íslands en árið 1988 var hún hins vegar ekki ein í kjöri til embættisins. Var Vigdís endurkjörin forseti í kosningum 25. júní 1988. Hefur forseti íslands annars aldrei verið endurkjörinn í kosningum. í nýársdagsávarpi 1996 lýsti Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, því yfir að hún yrði ekki í framboði til kjörs forseta íslands fyrir kjörtímabil það sem hefjast skyldi 1. ágúst 1996. Forsætisráðherra skal auglýsa kjör forseta fslands eigi síðar en þremur mánuðum fyrir kjördag og tiltaka lágmarks- og hámarkstölu meðmælenda forsetaefnis í hverjum landsfjórðungi í réttu hlutfalli við kjósendatölu þar. 3 Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1.500 kosningabærra manna og mest 3.000.4 Hinn 18. mars 1996 gaf forsætisráðherra út auglýsingu um framboð og kjör forseta íslands er fram skyldi fara laugar- daginn29.júní 1996.5 Þarsagðiaðframboðumtilforsetakjörs skyldi skila í hendur dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag, þ.e. föstudaginn 24. maí 1996, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegum fjölda meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu á kjörskrá.6 Kosningalögum var breytt árið 1995 þannig að nú skal leggja fram kjörskrár eigi síðar en tíu dögum fyrir 1 3. og 6. gr. stjómarskrár lýðveldisins íslands nr. 33/1944. 2 1. mgr. 3. gr. laga um framboð og kjör forseta íslands nr. 36/1945, sbr. 1. gr. laga nr. 6/1984. 3 1. mgr. 3. gr. laga nr. 36/1945. 4 1. mgr. 5. gr. stjómarskrárinnar. 5 Lögbirtingablað nr. 37, 27. mars 1996. 6 4. gr. laga nr. 36/1945. kjördag en um langa hríð áður höfðu kjörskrár verið lagðar fram tveimur mánuðum fyrir kjördag. 7 Samkvæmt þessu lá engin kjörskrá frammi þegar meðmælendalistum vegna forsetaframboðs var skilað til yfirkjörstjóma til athugunar. Hinn 17. maí 1997 varþví ákvæði um vottun yfirkjörstjórna breytt, í lögum um framboð og kjör forseta Islands, þannig að í stað vottunar um að meðmælendur séu á kjörskrá votta yfirkjörstjórnir að meðmælendur séu kosningarbærir svo sem segir í stjórnarskránni. 81 auglýsingu forsætisráðherra var ákveðið hvernig meðmælendur skiptust eftir lands- fjórðungum: Lágmark Hámark Sunnlendingafjórðungur (Vestur-Skaftafellssýsla- B orgarfj arðarsýsla) 1.141 2.282 Vestfirðingafjórðungur (Mýrasýsla-Strandasýsla) 88 176 Norðlendingafjórðungur (Vestur-Húnavatnssýsla- Suður-Þingeyjarsýsla) 194 387 Austfirðingafjórðungur (Norður-Þing- eyjarsýsla-Austur-Skaftafellssýsla) 77 155 Kjörgengur til forseta er hver 35 ára gamall maður, sem fullnægir skilyrðum kosningarréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrði. 9 Hinn 28. maí 1996 auglýsti dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ið 10 hverjir væru í kjöri til embættis forseta: Ástþór Magnússon Wium, Bretlandi, f. 4. ágúst 1953 Guðrún Agnarsdóttir læknir, Reykjavík, f. 2. júní 1941 Guðrún Pétursdóttur forstöðumaður, Reykjavflt, f. 14. desember 1950 Olafur Ragnar Grímsson alþingismaður, Seltjamamesi, f. 14. maí 1943 Pétur Kr. Hafstein hæstaréttardómari, Reykjavík, f. 20. mars 1949. Guðrún Pétursdóttir tilkynnti 19. júní að hún hefði fallið frá framboði sínu. Ráðuneytið auglýsti degi síðar 11 að því yrði kosið milli hinna fjögurra forsetaefnanna. Forseti skal kjörinn beinum, leynilegum kosningum af þeim, er kosningarrétt hafa til Alþingis. 12 7 8. gr. laga nr. 9/1995. Samkvæmt 4. gr. laga nr. 10/1991 bar að leggja kjörskrá fram eigi síðar en 24 dögum fyrir kjördag og gilti sú tilhögun við alþingiskosningamar 1991. 8 1. gr. laga nr. 43/1996. 9 4. gr. stjómarskrárinnar. 10 4. gr. laga nr. 36/1945, sbr. Lögbirtingablað nr. 61, 31. maí 1996. 11 Lögbirtingablað nr. 70, 27. júní 1996. 12 5. gr. stjórnarskrárinnar.

x

Forsetakjör

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forsetakjör
https://timarit.is/publication/1392

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.