Forsetakjör - 01.11.1997, Page 12

Forsetakjör - 01.11.1997, Page 12
10 Forsetakjör 1996 hér á landi eða hafa átt hér lögheimili síðastliðin 5 ár. 19 Við þetta komst kjósendatalan upp yfir 30% af mannfjölda og smáhækkaði síðan eftir því sem aldursmark nýju kjósendanna lækkaði. Með nýrri stjórnarskrá árið 1920 var hið sérstaka aldursmark nýju kjósendanna fellt niður. Þá féll niður það skilyrði að kjósandi yrði að vera fæddur á Islandi en í stað þess kom að hann ætti ríkisborgararétt hér á landi og hefði verið búsettur í landinu síðustu fimm árin fyrir kosningar.20 Hækkaði nú kjósendatalan svo að hún varð um 45% íbúatölunnar. Með stjórnarskrárbreytingu árið 1934 var aldursmark allra kjósenda lækkað í 21 ár. Sveitarstyrkþegar öðluðust nú kosningarrétt. Þá féll niður það skilyrði að kjósandi þyrfti að hafa átt lögheimili í kjördæmi sínu eitt ár hið minnsta.21 Urðu kjósendur þá meiri hluti þjóðarinnar. um 56%. Fæðingum fækkaði nokkuð á fjórða tug aldarinnar og óx því hlutdeild fólks á kosningaaldri í íbúatölunni og komst í um 60% í byrjunfimmtaáratugarins.Ásjöttaáratugnumfjölgaðibömum mjög en árgangar þeirra, sem náðu kosningaaldri, voru fámennir. Hlutfall kjósenda á kjörskrá af íbúafjölda fór því lækkandi allt til ársins 1967 þegar það var um 54%. Eftir að farið var að byggja kjörskrá á kjörskrárstofnum þjóðskrár, frá og með árinu 1956, munu nákvæmari tölur um kjósendur eiga nokkum þátt í að lækka hlutfallið, því líkur á að menn séu á kjörskrá í fleiri en einni kjördeild hafa minnkað stórlega við þetta. Frá þeim tíma eiga heldur ekki að vera með í kjósenda- tölunni þeir sem náðu kosningaaldri eftir kjördag á kosningar- árinu, en samkvæmt þágildandi kosningalögum voru þeir á kjörskrá þótt þeir fengju ekki kosningarrétt fyrr en eftir kjördag. Ekki eiga heldur að vera á kjörskrá þeir sem dánir em þegar kosning fer fram. Kosningaaldur var lækkaður í 20 ár með stjómarskrár- breytingu árið 1968 22 og af þeim sökum hækkaði kjósenda- hlutfallið í 56% við forsetakjörið það ár. Jafnframt féllu niður þau skilyrði að kjósendur skyldu hafa verið búsettir hér á landi síðustu fimm árin fyrir kosningar og væru fjárráðir, heldur nægði nú að eiga lögheimili á íslandi og vera eigi sviptur lögræði. Síðan hefur hlutfallið farið síhækkandi þar sem öll fólksfjölgun á landinu hefur orðið meðal þeirra sem em á kosningaaldri. Hlutfall kjósenda af íbúatölu landsins var komið í 64% í alþingiskosningunum 1983. Árið 1984 var kosningaaldur lækkaður í 18 ár með stjómar- skrárbreytingu og hafði það fyrst áhrif í alþingiskosningunum árið 1987. Kosningarréttur var að auki rýmkaður. Annars vegar var lögræðissvipting ekki lengur látin valda missi kosningarréttar og óflekkað mannorð varð ekki lengur skilyrði fyrir kosningarrétti. Hins vegar skyldi taka á kjörskrá þá sem fullnægðu skilyrðum kosningarréttar og höfðu átt lögheimili hér á landi á síðustu fjómm ámm talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag.23 Hlutfall kjósenda af íbúatölunni hækkaði í 70% árið 1987. Með breytingu á lögum um kosningar til Alþingis árið 1991 var tími sá sem brottfluttir íslenskir rlkisborgarar eiga sjálfkrafa kosningarétt lengdur úr fjómm ámm í átta ár, talið 19 1. mgr. 10. gr. stjómarskipunarlaga nr. 12/1915. 20 1. mgr. 29. gr. stjómarskrár konungsríkisins íslands nr. 9/1920. 21 1. mgr. 4. gr. stjómarskipunarlaga nr. 22/1934. 22 1. mgr. 1. gr. stjómarskipunarlaga nr. 9/1968. 23 1. mgr. 2. gr. stjómarskipunarlaga nr. 65/1984, sbr. 1. gr. laga nr. 66/1984. frál.desembernæstumfyrirkjördag. Hafimennáttlögheimili erlendis lengur en átta ár geta þeir áfram átt hér kosningarrétt hafi þeir sótt um það til Hagstofu fslands. Sé umsókn fullnægjandi skal umsækjandi tekinn á kjörskrá í því sveitar- félagi þar sem hann átti síðast lögheimili hér á landi. Ákvörðun um að einhver sé þannig tekinn á kjörskrá gildir í fjögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram.24 í 2. yfirliti er sýnd tala kjósenda á kjörskrá sem lögheimili áttu erlendis í kosningum frá því árið 1987. Sést þar að þeir sem áttu lögheimili erlendis við forsetakjör 1996 voru 7.766 eða 4,0% kjósendatölunnar og svarar það til 2,9% af íbúa- tölunni.Þessumkjósendumfjölgaðifráalþingiskosningunum 8. apríl 1995 um 1.435 eða 23%. Þessi fjölgun skýrist af miklum fólksflutningum til útlanda árið fyrir forsetakjörið. Kjósendum með lögheimili á fslandi fjölgaði á sama tímabili aðeins um 1.297 eða 0,7%. Breytingar á hlutfalli kjósenda af íbúafjölda hafa að hluta ráðist af íbúaskráningu námsmanna. Þeir sem fara utan til náms halda yfirleitt lögheimili sínu og kosningarrétti á íslandi. í lögum um lögheimili segir: „Sá sem dvelst erlendis við nám eða vegna veikinda, getur áfram átt lögheimili hér á landi hjá skyldfólki sínu eða venslafólki eða í því sveitarfélagi þar sem hann átti lögheimili er hann fór af landi brott enda sé hann ekki skráður með fasta búsetu erlendis.“ 25 Hliðstætt ákvæði var í lögheimilislögum frá 1960. 26 ísland gerðist aðili að Norðurlandasamningi um almannaskráningu í febrúar 1969 er tók gildi 1. október sama ár.27 Núverandi samningur um þetta efni er frá árinu 1990.28 Samningurinn felur það meðal annars í sér að sérhver einstaklingur, sem tekinn er á íbúaskrá í einu aðildarríki, skal um leið felldur af skrá í því landi sem hann flytur frá. Til þess að leysa þann vanda um ákvörðun kosningarréttar sem myndaðist vegna þessa, var sá háttur hafður árin 1971-1983 að fólk innan tiltekins aldurs (28 ára og yngra) sem flust hafði til annarra Norðurlanda var tekið á kjörskrárstofna. Sveitarstjómir felldu þá af kjörskrárstofnum sem ekki voru námsmenn. Námsmenn sem voru yfir aldurs- markinu vom teknir á kjörskrá bæm þeir fram ósk um það. íslensku námsfólki á hinum Norðurlöndunum fjölgaði mikið á ámnum 1968-1983, og þar sem það kom fram í kjósenda- tölunni en ekki mannfjöldatölunni hækkaði kjósendahlutfallið umfram það sem annars hefði orðið. Með breytingum þeim á kosningalögum sem komu til framkvæmda árin 1987 og 1991 og fyrr var getið eiga allir þeir sem flust hafa af landi brott kosningarrétt tiltekinn ára- fjölda að öðmm lagaskilyrðum fullnægðum. Þar með er fallin niður hin sérstaka aðferð þjóðskrár til þess að koma náms- mönnum annars staðar á Norðurlöndum á kjörskrárstofn fyrir alþingis- og forsetakosningar. Samkvæmt eldri kosningalögum skyldu menn vera á kjör- skrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu lögheimili 1. desember næst á undan þeim tíma er kjörskrár skyldu lagðar fram. Við forsetakjör25.júní 1988 áttumennþvíkosningarréttþarsem lögheimili þeirra var 1. desember 1987. Árið 1991 breyttust kosningalög þannig að þá skyldi taka menn á kjörskrá í því 24 1. og 4. gr. laga nr. 10/1991. 25 1. mgr. 9. gr. laga nr. 21/1990. 26 1. mgr. 10. gr. laga nr. 35/1960. 27 Auglýsing nr. 2/1969 í C-deild Stjómartíðinda. 28 Auglýsing nr. 13/1990 í C-deild Stjómartíðinda.

x

Forsetakjör

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forsetakjör
https://timarit.is/publication/1392

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.