Fréttablaðið - 08.10.2019, Page 2
SAMFÉLAG Sýslumaðurinn á höfuð-
borgarsvæðinu auglýsti nauðung-
arsölu á glæsilegu einbýlishúsi á
Arnarnesi í lok vikunnar. Húsið,
Blikanes 22, er í eigu athafna-
mannsins Jóns Ragnarssonar í
gegnum félag hans, Hótel Valhöll
ehf. Kastljós fjölmiðla hefur reglu-
lega beinst að Jóni, nú síðast fyrir
nokkrum árum þegar hatrömm
átök urðu í kjölfar þess að veitinga-
staðnum Caruso var úthýst úr fast-
eign í eigu Jóns.
Í sumar greindi Stundin frá því
að annar athafnamaður, Sigurður
Gísli Björnsson, fyrrverandi eig-
andi Sæmarks, hefði selt Blikanes
22 til Hótel Valhallar ehf. fyrir 185
milljónir króna. Salan gekk í gegn
rúmum mánuði áður en eignir Sig-
urðar Gísla voru kyrrsettar vegna
umfangsmikillar rannsóknar á
meintum skattalagabrotum hans.
Sú kyrrsetningargerð hvílir þó enn
á húsinu.
Sé sagan skoðuð bendir ýmislegt
til að einhvers konar fjárhagsleg
bölvun hvíli á eigninni því húsið
hefur ítrekað verið auglýst á nauð-
ungarsölu undanfarna áratugi. Frá
árinu 1999 hafa sex eigendur þurft
að þola hamarshögg yfirvaldsins í
húsakynnum sínum
eða hótanir þar um.
Síðustu ár hefur þó
a l lt ver ið me ð
nokkuð kyrrum
k j ö r u m e n
núna virðist
f r i ð u r i n n
úti. – bþ
Húsið hefur ítrekað
verið auglýst á nauðungar-
sölu. Frá árinu 1999 hafa sex
eigendur þurft að þola
hamarshögg yfirvaldsins
eða hótanir þar um.
Veður
Norðaustanátt í dag, víða 8-13.
Rigning með köflum en þurrt að
kalla sunnan- og vestanlands. Hiti
7 til 12 stig. SJÁ SÍÐU 14
Rifið niður og byggt upp
Miklar framkvæmdir standa nú yfir á hinum svokallaða Héðinsreit í Vesturbæ Reykjavíkur. Eigendur svæðisins eru félögin Laxamýri og Fast-
eignafélagið Festir sem hyggur þar á mikla uppbyggingu með hóteli og fjölbýlishúsum með hundruðum íbúða. Talsvert af mannvirkjum vestan við
húsið þar sem starfsemi Loftkastalans, hins vinsæla leikhúss, var eitt sinn hefur þurft að víkja vegna áformanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
astmi
frjókornaofnækrabbamein
kvíði
vefjagigt
mígreni
lotugræðgiofnæmi
liðagigt
þunglyndi
brjósklos
sjónskerðing
bakverkir
hægðatregða
sykursýki
mænusigg
áfengissýki
hjartsláttartruflanir
ADHDslitgigt
heyrnartap
vímuefnavandi
ofnæmisexem
æðahnútar
sóríasis
þvagleki
gigt
tíðaverkir
gyllinæð
eyrnasuð
hugsýki
beinþynning
bronkítis
w
w
w
.b
ru
no
-g
ro
en
in
g.
or
g
Lækning við þessum
og mörgum öðrum
sjúkdómum styðjast
við læknisfræðilega
rannsökuð tilvik:
læknanlegt„Ekkert er ólæknanlegt!“
Bruno Gröning
Leið að heilsu fyrir sál og líkama
Fólk sem hefur læknast
segir frá hvernig það gerðist.
Leiðbeinendur miðla fræðum
Bruno Grönings til þess að allir geti
upplifað staðhæfingu hans
um að: „Ekkert sé ólæknanlegt!“
kynningarfundir
107 Reykjavík Laugardag 12.10.2019
Landsbókasafn Íslands kl 11:00
arngrímsgötu 3
200 Kópavogi Laugardag 12.10.2019
Bókasafn kópavogs kl 15:00
Hamraborg 6a
tengiliðir: Anna Ottesen, Síminn: +354 898 7522
Aðgangur ókeypis. Frjáls framlög vel þegin.
KYNNINGARFUNDIR
Laugardag 12.10. kl 11:00
Landsbókasafn Íslands
Arngrímsgötu 3, Reykjavík
L ugardag 12.10. l 15:00
Bókasafn Kópavogs
Hamraborg 6a, Kópavogi
Aðgangur ókeypis
Frjáls framlög vel þegin
Ten li ir: Síminn +354 898 7522
HEIMILDARKVIKMYNDIN
Sunnudaginn 13.10.
kl 11:00 – 16:30 (meðtalin 2 hlé)
Landsbókasafn Íslands
Arngrímsgötu 3, Reykjavik
Aðgangur ókeypis
Frjáls framlög vel þegin
Fundurinn er haldinn á vegum
Vinahrings Bruno Gröning
www.bruno-groening-film.org
Tengiliðir: Síminn +354 898 7522
MENNING Kveikt verður á Friðar-
súlunni í Viðey í þrettánda sinn
klukkan átta annað kvöld.
„Eins og margir vita er 9. október
fæðingardagur Johns Lennon og
mun Friðarsúlan varpa ljósi upp
í himininn til 8. desember sem
er dánardægur hans,“ segir á vef
Reykjavíkurborgar.
Yoko Ono býður að venju fríar
siglingar yfir sundið og frítt verður
í strætó frá Hlemmi að Skarfa-
bakka. Listasafnið, Borgarsögu-
safnið og f leiri halda úti dagskrá
sem hefst klukkan 17.45. – gar
Býður fólki
í siglingu
VELFERÐARMÁL „Við stefnum á
að fara að prófa svona skjáheim-
sóknir f ljótlega upp úr áramótum.
Við munum byrja smátt en eitt af
því sem við höfum lært er að við
þurfum að prófa okkur áfram og
finna okkar takt í þessu,“ segir Sig-
þrúður Guðnadóttir, verkefnisstjóri
Velferðartæknismiðju Reykjavíkur-
borgar.
Í síðustu viku heimsóttu tveir
norskir sérfræðingar á sviði vel-
ferðartækni Reykjavíkurborg og
kynntu reynslu Norðmanna af
innleiðingu fjarheimaþjónustu.
Sú leið sem borgin hyggst prófa sig
áfram með felst í skjáheimsóknum
til notenda heimaþjónustunnar.
Þannig er til dæmis hægt að minna
á lyfjatöku og mæla blóðþrýsting í
gegnum spjaldtölvu en einnig veita
félagslegan stuðning.
Noregur er leiðandi á Norður-
löndunum þegar kemur að inn-
leiðingu velferðartækni. Þau Grete
Kver nland-Berg og Chr istian
Aubell, ráðgjafar hjá PÅ Consulting
sem er eitt fremsta ráðgjafarfyrir-
tækið á sviði velferðartækni, hafa
aðstoðað mörg norsk sveitarfélög
við innleiðingu snjalllausna í vel-
ferðarþjónustu.
Þau segja að norsk stjórnvöld hafi
frá árinu 2013 unnið eftir áætlun á
landsvísu en í árslok 2020 eiga öll
420 sveitarfélög landsins að hafa
tekið upp fjarheimaþjónustu sem
hluta almennrar þjónustu sinnar.
„Innleiðing þjónustunnar snýst
kannski ekki svo mikið um sjálfa
tæknina, heldur um breytingar
á því hvernig starfsfólkið sinnir
vinnu sinni. Það hefur náðst mjög
góður árangur, bæði í Noregi og í
Danmörku, með þessum skjáheim-
sóknum. Þjónustan er sveigjanlegri
og notendur þurfa ekki að bíða eftir
þjónustunni,“ segir Grete.
Markmiðið sé að sem flestir geti
búið sem lengst heima en auk þess
geti tæknilausnir gert sveitarfélög-
um kleift að veita sífellt stækkandi
hópi aldraðra þjónustu. Þau Grete
og Christian segja að þrátt fyrir
góðan árangur skipti jákvæð við-
brögð notenda mestu máli.
„Fjölskyldur notendanna eru
líka ánægðar því þetta veitir þeim
öryggistilfinningu. Með þessu eru
notendur í raun nær þjónustunni
og það veitir ákveðið öryggi að geta
náð í einhvern í gegnum skjáinn,“
segir Grete.
Hún leggur áherslu á að svona
breytingar taki tíma enda sé verið
að gera miklar breytingar á vinnu-
umhverfi starfsfólks í umönn-
unarstörfum. „Það er mjög sjaldan
tæknin sjálf sem er vandamálið við
svona breytingar. Þetta er verkefni
sem snýst um fólk.“
Sigþrúður segir mikinn stuðning
innan borgarinnar við það að koma
á betri þjónustu með notkun tækn-
innar. „Við erum ekki að fara draga
úr neinni þjónustu, markmiðið er
að auka hana. Það er enginn að fara
að missa vinnuna heldur erum við
að gera störfin betri og sinna fleiri
notendum.“ sighvatur@frettabladid.is
Heimaþjónusta veitt
með skjáheimsóknum
Reykjavíkurborg undirbýr nú tilraunaverkefni þar sem hluti heimaþjónustu
verður veittur í gegnum skjáheimsóknir. Verkefnisstjóri segir að enginn muni
missa vinnuna. Markmiðið sé að veita notendum meiri og betri þjónustu.
Þau Christian Aubell og Grete Kvernland-Berg miðluðu reynslu sinni af inn-
leiðingu fjarheimaþjónustu tli starfsmanna borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Við erum ekki að
fara að draga úr
neinni þjónustu, markmiðið
er að auka hana.
Sigþrúður Guðnadóttir, verkefnis-
stjóri Velferðartæknismiðju
Yoko Ono.
Barningur
á Blikanesi
8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
6
-3
6
F
4
2
3
F
6
-3
5
B
8
2
3
F
6
-3
4
7
C
2
3
F
6
-3
3
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
7
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K