Faxi - 15.12.2016, Síða 4
Myllarnir stóðu uppi
sem sigurvegarar
Lið Myllubakkaskóla sigraði í First
Lego League keppninni á fslandi, sem
haldin var í Háskólabíói 12. nóvember sl.
Þau kalla sig Myllarnir og samanstendur
liðið af átta nemendum úr 7. bekk, þremur
drengjum og 5 stúlkum. Þau voru að
vonum alsæl með árangurinn enda fyrsta
liðið úr skóla af Suðurnesjum sem kemst
svona langt í keppninni. Keppendur í
þessari keppni eru á aldrinum 10 til 16 ára
og því eru þau í yngri kantinum, aðeins
12 ára. Sigurlaunin voru ferðastyrkur,
bikarar og þátttökuréttur í norrænni Lego
keppni „First Lego League Scandinavia“
sem fram fór í Osló 3. desember sl. Þetta
var í fyrst sinn sem íslenskt lið tók þátt í
þessari keppni og var þeim vel fagnað úti.
Myllarnir eru Aron Gauti Kristinsson,
Gabriela Beben, Hafdís Eva Pálsdóttir,
Hjörtur Máni Skúlason, Klaudia Kulesze-
wicz, María Rós Gunnarsdóttir, Sávia Alves
Andradre Guimaraés og Sæþór Elí Bjarna-
son. Þjálfarar og liðsstjórar eru fris Dröfn
Fyrir dómara í Bodö. Ljósm. Myllubakkaskóli.
4 FAXI