Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 66
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Allt er nú til, myndu eflaust ýmsir segja og svo hrista hausinn yfir öllum þeim
nýstárlegu dýraafurðastað-
genglum sem komið hafa fram á
sjónarsviðið undanfarin ár. Þannig
hefur til að mynda gulrótin fengið
nýtt (aðal)hlutverk í stað graflax
og sama gildir um eggaldin sem
hefur verið notað í stað síldar-
innar. Á síðunni veganistur.is er til
dæmis að finna margar gómsætar
hátíðaruppskriftir og er eggaldin-
„síldin“ þar á meðal.
Af aðalréttum nýtur sveppa-
Wellington sífellt meiri vinsælda
sem aðalréttur, sem og seitan-
steikur og ýmiss konar útfærslur
af tófú. Tófúinu hefur jafnvel
verið umbreytt í svokallaðan
„tofurkey“, sem vísar til kalkúns,
en hann hefur löngum verið vin-
sæll á borðum landsmanna um
hátíðarnar. Hægt er að kaupa
tófú-kalkúninn tilbúinn eða gera
hann frá grunni og eru til margar
uppskriftir á netinu sem hægt er
að vinna út frá.
Þá er leikandi létt að veganvæða
allar sósur, hvort sem um er að
ræða sveppasósu eða svokallaða
„gravy“, brúnar þykkar sósur sem
byggja oftast á kjötsafa eða -seyði.
Hægt er að notast við hveitigrunn
eða rjóma til að þykkja sósur.
Sama á við um súpur, en það er
afar einfalt að gera vegan útgáfur
af f lestum súpum með aðstoð
grænmetissoðs og jurtarjóma.
Mikið úrval er til af jurtarjóma og
má þar til að mynda nefna hafra-,
möndlu-, soja- og kasjúrjóma.
Hrefna Sætran, stjörnukokkur
og veitingahúsaeigandi, er mikill
aðdáandi grænmetismatar og
deilir hér uppskrift að silkimjúkri
og ljúffengri aspassúpu með
lesendum. Súpan væri kjörin á
jólahlaðborðið eða sem forréttur,
hvort sem það er á aðfangadags-
kvöld, að kvöldi jóladags eða
á gamlárskvöld. Súpan er án
dýraafurða og hentar því bæði
þeim sem eru vegan og þeim sem
Ofgnótt vegan valmöguleika
Hnetusteikin er bæði sígild og sívinsæl sem jólamatur grænmetisætunnar. En það er margt
annað í boði og þá er auðvelt að veganvæða hina ýmsu hátíðarrétti svo allir geti notið.
Hægt er að finna fjölda uppskrifta
að brúnum sósum með því að fletta
upp „vegan gravy“.
Til eru margar útgáfur af tófúkalkún.
eru með mjólkuróþol. Þá er hún
að auki blessunarlega laus við
hið alræmda glúten og hentar því
f lestu mataræði.
Aspassúpa Hrefnu
Sætran
1 stk. laukur, saxaður
3 hvítlauksrif, söxuð
2 búnt aspas, skerið smá
af endanum eða brjótið
aspasinn til að losna við
trénaða partinn
3 stk. millistærð af kart-
öflum, skrældar og skornar
gróft
100 g kasjúhnetur
1 lítri grænmetissoð
Smá möndlurjómi
1 stk. sítróna, safinn
Salt og pipar
Takið til hliðar nokkra aspastoppa
og nokkrar kasjúhnetur til að
skreyta með
Setjið olíu í pott og steikið laukana
upp úr henni við miðlungshita
í nokkrar mínútur. Bætið græn-
metissoðinu út í ásamt kartöfl-
unum og hnetunum og sjóðið við
miðlungshita í 25 mínútur eða þar
til kartöflurnar eru soðnar. Setjið
svo allt í blandara og smakkið til
með sítrónusafa, salti og pipar
Skreytið með aspas, ristuðum
kasjúhnetum og smá möndlu-
rjóma.
Hátíðleg smáréttaveisla á Geysir Bistro.
frá 15.11 - 01.01
13 girnilegir smáréttir á seðli.
Láttu kokkinn velja f jóra smárétti og einn eftirrétt fyrir aðeins 5.900.-
Hlökkum til að sjá þig.
Laugavegi 96
+354 5551550
Aðalstræti 2
+354 5174300
geysir@geysirbistro.is
www.geysirbistro.is
6 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RJÓLAHLAÐBORÐ
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
2
-1
9
B
0
2
4
0
2
-1
8
7
4
2
4
0
2
-1
7
3
8
2
4
0
2
-1
5
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K