Fréttablaðið - 12.10.2019, Page 99
ADHD, astmi, ofnæmi, þroskahamlaðir, blindir, sjónsker-
tir, Crohn’s, Colitis, hreyfihamlaðir, einhverfir, heyrnarlau-
sir, heyrnarskertir, lesblindir, lifrarsjúklingar, nýrnasjúkir,
geðraskanir, geðfötlun, HIV, hjartasjúklingar, heilaskaði,
flogaveiki, Parkinson, stam, talhömlun, málhömlun, ME,
MG, MND, MS, lungnasjúklingar, sykursjúkir, endómetríó-
sa, berklasjúklingar, brjóstholssjúklingar, psoriasis- og ex-
emsjúklingar, stómi, tourette, kæfisvefn, Alzheimer, gig-
tarfólk, slagsjúklingar, mænuskaddaðir, ADHD, astmi,
ofnæmi, þroskahamlaðir, blindir, sjónskertir, Crohn’s, Co-
litis, hreyfihamlaðir, einhverfir, heyrnarlausir, heyrnarsk-
ertir, lesblindir, lifrarsjúklingar, nýrnasjúkir, geðraskan-
ir, geðfötlun, HIV, hjartasjúklingar, heilaskaði, flogaveiki,
Parkinson, stam, talhömlun, málhömlun, ME, MG, MND,
ÞÉR ER EKKI
BOÐIÐ! Með því að mæta ekki þörfum fatlaðs fólks er verið að úthýsa því úr samfélaginu.Bjóðum betur.
Ég er búinn að vera barþjónn núna í fimm ár. Það var í raun fyrir einskæra tilviljun. Ég stundaði mikið staðinn Bar 11 þegar ég fór á
djammið á þeim tíma. Hann var
kannski ekki beint þekktur
fyrir kokteila. En ég var mikið
þar. Svo einn daginn spurði einn
barþjónninn hvort ég vildi ekki
prufa að vinna þarna, því þá
vantaði einhvern á bar
inn,“ segir Jónmundur
Þorsteinsson, sigurveg
ari World Class kokteila
keppninnar á Íslandi.
Jónmundur ákvað að
slá til þótt hann vissi lítið
um starf barþjónsins.
„Maður lærði að skenkja
bjór og þannig, en þegar
ég var kominn með það
allt á hreint byrjaði ég að
kaupa mér nokkrar bækur og lesa
mér meira til. Það var svo sem ekki
mikil aðstaða þarna fyrir kokteila
gerð þannig að ég fór að hugsa mér
til f lugs.“ Jónmundur sótti um og
fékk starf á veitingastaðnum Kopar
í bláu húsunum við gömlu höfnina.
„Þar lærði ég allan grunninn í
kokteilgerð af frábærri stelpu sem
heitir Natasha. Þar byrjaði þetta
fyrst fyrir alvöru, ég fór að bæta mig
og prufa mig áfram. Markmiðið var
svo alltaf að verða nógu góður til að
fara að vinna á Apótekinu. Það var
draumurinn og ég fékk starf þar.“
Hefur unnið tólf keppnir
„Mig langaði að sjá hvar ég stæði
miðað við aðra barþjóna. Þannig
að ég byrjaði að keppa og var orðinn
f linkur í því. Ég hef unnið alls tólf
keppnir hérna heima.“
Það er oft sagt að kokka langi ekki
til að borða sinn eigin mat, en hvað
pantar Jónmundur á barnum? Er
hann sjálfur mikill kokteilamaður?
„Ég er mjög líklegur til að panta
mér gin og tónik eða Negroni. En ég
kíki ekki oft á barinn, ég er venju
lega á bak við hann.“
Hann segir það þó ekki algilt um
barþjóna bæjarins.
„Það eru reyndar margir barþjón
ar sem eru þannig að ef þeir eru ekki
að vinna þá eru þeir að djamma. Ég
er lítið í því að sóa tímanum mínum
í að vera þunnur, ég nenni ekki að
standa í því. Ég er ekki lengur 21 árs,
ég er alveg tvo daga að jafna mig ef
ég fer eitthvað út,“ segir Jónmundur.
Jónmundur rekur fyrirtækið
Citrus ásamt Jónasi Heiðari Guðna
syni.
„Við reynum að vera góðar fyrir
myndir fyrir strákana sem eru að
vinna hjá okkur. Það er stranglega
bannað að drekka á vaktinni, en
það er ekki þannig alls staðar. En
hver staður hefur bara sínar reglur.
En við erum harðir á því til að geta
veitt eins góða þjónustu og hægt er.“
Citrus er nokkurs konar veislu
þjónusta, nema bara með kokteila.
„Við mætum á svæðið og gerum
kokteilana, það eina sem fólk þarf
að gera er að kaupa áfengið. Stærsti
viðburður sem við höfum séð um
var tæplega 900 manns. En við
getum líka séð um minni hópa. Við
erum með nokkra ferðabari. Við
hönnum svo kokteilaseðil í sam
starfi við þann sem er að halda við
burðinn. Svo hendum við í góða
kokteila.“
Aldagamlar uppskriftir
Hann segist gera margt til að bæta
sig og fræðast í faginu.
„Ég hef lesið fjöldann allan af
bókum um kokteilagerð. Þá er ég
meira að lesa mér til um brögð og
hvernig þau vinna saman, frekar en
uppskriftir. Við leggjum mjög mikla
áherslu á að læra klassíska kok
teila, það er alveg ástæða fyrir því
að fólk er enn þá að panta kokteila
eftir aldagömlum uppskriftum. Svo
byggjum við uppskriftirnar oft á
þeim grunni,“ segir Jónmundur.
Þeir séu því aldrei að gera bara
eitthvað út í loftið heldur byggi þeir
drykkina oftast á þessum grunni
sem þeir vita að virki. Jónmundur
segir að það sé enginn einn kokteill
sem honum finnist skemmtilegast
að blanda.
„Nei, í raun ekki. Mér finnst lang
Besti barþjónn
Íslands rær
á ný mið
Jónmundur Þorsteinsson keppti fyrir
Íslands hönd í stærstu kokteilakeppni í
heimi. Hann opnar fljótlega kokteilastaðinn
Jungle í Austurstræti.
Jónmundur og Jónas á Jungle, nýjum kokteilstað sem verður opnaður fljótlega í Austurstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Krækiberja Mule
45 ml Ketel One vodka
15 ml krækiberjalíkjör frá 64°
Reykjavik Distillery
15 ml ferskur lime-safi
Öllum hráefnum
blandað saman í
koparkönnu og
fyllt af klaka.
Svo toppað
með engifer-
bjór frá Thomas
Henry. Ferskt og
haustlegt tvist á
einn vinsælasta
kokteil
landsins
um þessar
mundir.
Skreytið með
ferskri lime-
sneið og sítrónu-
blóðbergi ef vill.
Basil Margarita
45 ml Don Julio Blanco tequila
20 ml ferskur lime-safi
25 ml Cointreau
Þrjár gúrkusneiðar
Fjögur basillauf
Gúrkan og basil-
íkan eru settar í
kokteilhristara og
kramdar í botn-
inum (muddlaðar).
Svo er restinni af
hráefnunum bætt út
í kokteilhristarann.
Fyllið svo upp með
klaka, hristið og
sigtið í viskíglas.
Skreytið með
basillaufum og
gúrku.
skemmtilegast að gera marga kok
teila í einu. Það er ákveðin kúnst að
vera kannski á þrettán tíma vakt
og vera að negla út eins mörgum
drykkjum og þú getur en að gera
það vel og af nákvæmni. Mér finnst
ógeðslega skemmtilegt í hraðanum
og keyrslunni. Svo hugsar maður
eftir vaktina að þetta sé ástæðan
fyrir því að maður er í þessu.“
Keppti við bestu barþjóna
heims
Jónmundur sigraði
í World Class bar
þjónakeppninni hér
á Íslandi og fór svo út
að keppa á alheims
mótinu.
„Ég held að f lestir bar
þjónar á Íslandi vilji vinna
þá keppni. Keppnin var
haldin í fjórða skipti á Íslandi
í ár. Keppnin úti er sú stærsta í
heimi. Ég mun dæma í keppn
inni á Íslandi á næsta ári en má svo
taka þátt aftur eftir það. Maður má
þó bara vinna tvisvar.“
Hann segir að vel hafi gengið í
keppninni úti. Alls tóku 55 barþjón
ar þátt, hvaðanæva úr heiminum.
„Það var skrýtið að koma út og sjá
hvað þetta er alveg risastórt dæmi,
ég get ekki ímyndað mér hvað eru
settir miklir peningar í að halda
þetta. Keppnin byrjaði í Schidam
í Hollandi, færðist svo til eyjunnar
Skye og endaði í Glasgow. Þetta
voru fimm mismunandi áskoranir.“
Keppendur ferðuðust á milli
staða á einkaf lugvél. Allir kepp
endurnir fengu að taka þátt í fyrstu
fjórum áskorununum en bara átta
efstu í lokaáskoruninni.
„Því miður komst ég ekki í loka
úrtakið í þetta skipti en stefni á það
næst.“
Aðpurður segir Jónmundur að
það séu sannarlega til stjörnur í bar
þjónabransanum.
„Það var voru alveg nokkrir bar
þjónar sem ég vissi fyrir hverjir
voru og voru að keppa. Fólk sem
vinnur keppnina er svo mjög þekkt
í veitingageiranum.“
Vildi stofna eigin kokteilabar
Jónmundur segir að það hafi ekki
hrúgast inn atvinnutilboð frá
öðrum börum eftir að hann vann
hérna heima, en það sé líklegast
vegna þess að vitað var að hann var
ánægður á Apótekinu.
„Ég hef fengið nokkur tilboð á
þeim tíma sem ég hef unnið á Apó
tekinu. Það var í rauninni ekkert
sem gæti fengið mig til að vilja færa
mig. Ég var svo ótrúlega ánægður,
þangað til að upp kom sú hugmynd
að stofna eigið fyrirtæki.“
Hann segir Apótekið hafa verið
f lottasta staðinn í þessum málum.
Það gæti þó eitthvað verið að breyt
ast þar sem Jónmundur er að fara
að opna staðinn Jungle með Jónasi
Heiðari. Staðurinn verður til húsa
í Austurstræti þar sem Loftið var
áður.
„Rýmið heillaði okkur ótrúlega
mikið. Þetta er ekki of stórt þann
ig að við ráðum alveg við þetta. Það
er samt enginn fjárfestir á bak við
þetta. Við erum bara fimm barþjón
ar sem lögðum þær fáu krónur sem
við eigum í þetta. Okkur langaði
að gera þetta sjálfir og höfum allir
mikla ástríðu fyrir kokteilagerð.“
Hann segir að þeim hafi fundist
vanta upp á persónulegri þjónustu
á kokteilbörum.
„Þegar þú kemur inn er þér vísað
til borðs og síðan kemur einn af
okkur fimm og tekur pöntun. Þann
ig að þú færð til þín þjón sem veit
allt um kokteilana. Það er algengt
á börum í bænum að staðir ná ekki
að halda í starfsfólkið sitt þannig að
það er mikið um fólk sem hefur ekki
mikla reynslu eða þekkingu.“
Loftið var þekkt lengi fyrir að
bjóða ekki upp á bjór á dælu. Verður
eitthvert kokteilasnobb á Jungle?
„Nei, alls ekki. Við erum búnir
að setja upp dælur. Við viljum bara
að fólk geti pantað það sem það vill
panta. Svo erum við með gott úrval
af óáfengum kokteilum líka. Fólk
getur haft alls konar ástæður fyrir
að vilja ekki áfengi og við ætlum að
sjá til þess að staðurinn verði líka
fyrir það. Við viljum að staðurinn
sé fyrir alla, hvort sem fólk langar í
kokteila, bjór, vín eða óáfengt.“
steingerdur@frettabladid.is
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 59L A U G A R D A G U R 1 2 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
1
2
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:5
3
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
1
-C
A
B
0
2
4
0
1
-C
9
7
4
2
4
0
1
-C
8
3
8
2
4
0
1
-C
6
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K