Freyja - 07.12.1928, Blaðsíða 5

Freyja - 07.12.1928, Blaðsíða 5
FREYJA 5 Siznson hinn hagi d ísafirði. Það er ekki ósjaldan, að útlendingar, sem hafa lifað töluverðu flakkaralífi, verða að lokum innlyksa hér á íslandi — og una vel hag sínum. Margir þessara manna eru fjölhæfir og færir á marga hluti, menn, sem ætla mætti, að ættu al- staðar heima, nema á íslandi, í strjálbýl- inu og viðburðaleysinu. Einn hinna fjöl- hæfustu erlendra manna, sem hafa tekið aðsetur sitt hér, er Martinius Simson, sem nú er ljósmyndari á ísafirði. Hagleiksmenn hafa löngum verið i há- vegum hafðir hér á landi; en þeir eru óðum að hverfa eða horfnir, má segja. Erlend vélaframleiðsla ryður sér inn á hvert islenskt heimili, og hagleikurinn byggist einmitt á því, að sein minst sé til af efnum og verkfærum, og eru þá hugvit einstaklingsins, rekadrumbar og ryðgaður hnífkuti ein um að framleiða einhvern dýrindis hlut. Myndir þær, sem vér flytjum hér, eru af myndastyttu, sem Simson hefir gjört nýlega, eftir liinni alkunnu mynd „Ekko“, og sett upp fyrir framan hús sitt á ísa- firði. Mj-ndin er gerð með hinum allra einföldustu verkfærum ,og efniviðurinn í henni er — gamlir umbúðakassar! En Simson er margt fleira til lista lagt, en högg- myndalistin. Hann er ágætur og framsýnn ljósmyndari, að því er oss er sagt, en aðal- starf sitt hefir hann int af hendi sem cirkus- leikari á öllum sviðum. Það starf varð hann auðvitað að leggja á hilluna, þegar hann sett- ist að hér á íslandi í stríðsbyrjun. Vér höfðum heyrt, að margt hefði borið á daga Simsons á cirkus-æfi hans, sem væri í frásögur færandi, og sendum því tiðinda- mann vorn á hans fund, til þess að fregna um nokkur æfiatriði hans. Munu lesendur vorir oss sammála um, að fáir menn hér á landi hafi lifað jafn viðburðaríku og fjöl- breyttu lífi — enda þótt hann hafi ekki borið gull né gimsteina úr býtum. En vér veitum Simson sjálfum orðið: „Það er mér annað en hægðarleikur að segja æfisögu mína, því að svo margt mis- jafnt hefir borið fyrir mig, bæði gott og ilt, og eg lifði reglulegu flakkaralífi, þangað til eg settist að hér á ísafirði. Eg er fæddur á Norður-Jótlandi, og átti faðir minn þar bú- garð. Þangað á það rót sina að rekja, að mér er illa við stórborgalífið og vil helst altaf lifa sem næst náttúrunni. Eg var ólikur stall- bræðruin minum í barnæsku, og dundaði jafnan við ýmislegt, sem drengir á því reki eru ekki vanir að fást við. En þýðingarmesti viðburðurinn á æsku- árum mínum var það, þegar eg sá cirkus i fyrsta sinni. Þeir komu þar með tjöld sín, fáránlega málaðir og búnir, og slógu trumb- ur og blésu lúðra innan um sæg af fáséðum, æfintýralegum dýrum. Alt þetta andrúms- Ioft cirkus-leiksins greip undireins hug minn fanginn; eftir sýninguna skundaði eg til cirkus-stjórans og — viti menn! Með frekj- Framh. á bls. 14.

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/1398

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.