Freyja - 07.12.1928, Blaðsíða 7
FREYJA
7
M I L I Ð. Skrítlur.
H E I
Daglegan mat
má gera lystugri og bragðbetri
á ýmsan hátt, án mikils kosfn-
aðarauka, en þaS kostar oftast
nær ofurlítið ómak, því að
það er erfiðara að búa til ó-
dýran og þó góðan mat, en
dýra, fína rétti. Vér flytjum
hér uppskriftir að tveimur ó-
dýrum réttum, sem hver hús-
móðir getur búið til vanda-
laust.
Fisksúpa og þyrsklingur
á nýjan hátt.
Einn vænn þyrsklingur, 2
litrar vatn, salt, súpujurtir,
gulrætur, smjör(líki) 50 gr.,
hveiti 2 matsk., rifinn harð-
ur ostur.
í sósuna: Hveiti 10 gr., 2
eggjarauður, 50 gr. smjör.
Fiskurinn er hreinsaður og
skafinn vel og síðan soðinn.
Er iátinn sjóða í 5 mín. og
„trekkja“ í vatninu í aðrar 5
mín. Síðan er soðið sett yfir
og í það súpujurtir og smá-
skornar gulrætur; þegar það
er fullsoðið, er hveitijafningn -
um helt í, og svo smjörið (eða
smjörlikið) í smábitum og
hrært vel í á meðan.
í sósuna er hrærður jafn-
ingur úr hveitinu og vatninu,
hann soðinn í 5 mín. (hræra
vel í á meðan!) og síðnn
blandað í jafninginn eggja-
rauðunum, sem hafa verið
slegnar saman við ofurlítið af
fisksúpunni. Örfáir sitrónu-
dropar bæta sósuna.
Þegar fiskurinn er borinn
fram, er sósunni helt yfir
hann á fatinu og kartöflum
raðað í kring.
Brauðbúðingur.
100 gr. rúgbrauð, 100 gr.
smjörlíki, 200 gr. mjólk, 3 egg,
1 pund epli, 25 gr. möndlur,
ein bitur mandla, 100 gr. syk-
ur.
Skorpan er skorin af brauð-
inu,-og það er bleytt í mjólk-
inni, smjörlíkið er brætt,
brauðið kreist upp úr mjólk-
inni, og það hvorttveggja bak-
að saman og þynt með afgang-
inum af mjólkinni; síðan er
deigið kælt, hrært saman við
eggjarauðurnar eina i einu.
Hvíturnar eru barðar i stinna
froðu og hrært í deigið. Eplin
eru skræid, skorin í smástykki
og soðin með sykrinum og of-
urliflu vatni, lögð í vel smurt
gratin-form, deigið þar ofan á.
Búðingurinn er síðan stráður
með steyttum möndlum . og
bakaður í %—1 klst.
Hvar voruð þér í sumarfríinu?
Eg var á bæ einum uppi í Borg-
arfirði.
Fenguð þið góðan mat?
Svona la-Ia. Fyrst drapst lamb
hjá bóndanum, og þá fengum við
kjötsúpu i viku. Svo drapst kálf-
ur, og við fengum kálfasteik í tíu
daga. En siðast dó niðursetnings-
kerling á bænum, — þá varð eg
hræddur og fór.
Húsráð.
Tau, sem litað er svart, vill
oft verða gráleitt eftir litun-
ina. Ef biandað er saman 1
hluta af dökkbláum og 2 hlut-
um af svörtum lit, verður tau-
ið djúpsvart.
Myglu-blettir hverfa, ef þeir
eru þvegnir úr súrri mjólk.
Vín-blettum má ná úr í sjóð-
heitri mjólk.
Ef mjólkin verður söng, skal
setja ílátið í kalt saltvatn i
nokkrar mínútur. Hverfur þá
sengjubragðið.
Ryðbletti í fötum skal þvo
úr sitrónusafa og setja fatið
síðan út í sólina. Ef blettur-
inn hverfur ekki alveg i fyrsta
skifti, verður að endurtaka
þetta einu sinni til tvisvar.
Gott ráð við svefnieysi er að
þvo andlitið úr isköldu valni
og drekka síðan lítið gias af
mjólk, sem blandað er safan-
um úr hálfri sítrónu.
Jólakökur og sandkökur
verða léttari og „kiessast“
ekki, ef blandað er einni te-
skeið af glycerini í deigið.
Þvottaskinnshanskaá að þvo
úr heitu vatni, sem sett ern i
2—4 gr. af sódadufti. Þá
hreinsast þeir betur og harðna
ekki eftir þvottinn.
Edik hreinsar alla bletti af
höndunum.
Bætið nokkrum dropum af
ediki í vatnið, þegar þér
hreinsið feitugt leirtau. Það
leysir upp feitina.
„Jón“. sagði Maggi litli, „eg sá
þegar þú varst að kyssa hana
Gunnu systir."
„Uss-uss, segðu engum frá því.
Hérna er króna, ef þú þegir.“
„Og hérna eru fimtíu aurar til
baka. Eg get ekki verið dýrari
við þig heldur en hina —“.
Siggi sífulli var á leið heim
einn morgun, eftir all-fjöruga
nótt Hann gengur eftir Póstliús-
stræti, og sér þar verkamenn við
vinnu.
„ Hv — hvað eruð þið að gera
hérna ?“ spyr hann.
„Við erum að hyggja hótel,“
var svarið. Siggi slagar fram og
aftur um stund.
„V -— verðið hið lenvi að því?“
„Svona upp undir hálft annað
ár.“
„Nú-ú, — svo lengi. Þá held eg
að cg fari heldur heim til min
að sofa.“
„Guð minn góður, eg hefi
þyngst um átta pund-“