Freyja - 07.12.1928, Side 14
14
FREYJA
Frh. frá hls. 5.
SIMSON HINN HAGI Á ÍSAFIRÐI.
unni tókst mér, að láta hann ráða mig sem
hesthúsmann fyrir næsta ár. Eg réði mér
ekki fyrir kæti, og þegar eg kom heim um
kvöldið, tók eg að leika þær listir, sem eg
hafði séð reiðmennina í cirkus gera á hest-
baki — en reiðskjóti minn var naut, þvi að
ekki var völ á betra. Heimafólkið gerði
ýmist að gapa af undrun, eða hrista höfuðið.
Jæja, eg ferðaðist með jsessari stofnun um
tíma, kembdi hrossin og mokaði undan þeim
— en mikið af trúðleikaralífinu sá eg ekki,
en eg stældist í þeim ásetningi, að verða
sjálfur trúðleikari, hvað sem það kostaði,
og læra lístir þeirra. Þegar eg hafði verið
nokkra mánuði við þetta starf, og aldrei
fengið rauðan eyri í kaup, fór eg að ganga
fast eftir kaupinu, en fjárhirslan reyndist
ávalt tóm, og eg tók því þann kostinn, að
segja af mér. — Um tima var eg svo á flakki
með nokkurskonar vaxmyndasafni, sem hélt
sýningu á ýmiskonar fáránlegum hlutum. Á
því ferðalagi rakst eg á lítilfjörlegt sígauna-
cirkus, og slóst í för með því, því að þar
gat eg fengið að læra listir og sýna þær,
þó að kunnáttan væri lítil. En eg komst
brátt á lagið — eg sýndi leikfimi, gleypti
eld og spýtti eldi, sýndi sjónhverfingar og
flimtileik, og var þetta ágætis skóli fyrir
mig. Kaupið var af skornum skamti, fyrsta
veturinn fékk eg als eina krónu og tuttugu
aura — og af því varð eg að klæða mig
sjálfur. En eg hafði það ráð að þvo einu
nærfötin sem eg átti og þurka þau á skrokkn-
um. Eg man, að eg gerði þetta oft um vet-
urinn í margra stiga frosti, og varð ekki
meint af.
Við ferðuðumst um i húsi á hjólum, svo-
kölluðum sígauna-vagni. Vagninn var um
2x3% meter að flatarmáli. Þar var hægt að
kássa saman 8—10 manns á nóttunni, en það
voru ekki nema helstu leikendurnir og eig-
andinn, sem fengu þar inni. Við hinir, sem
litilsigldari vorum, urðum svo að sofa und-
SlÖiettTtotsíce
r"^nl(>ríkoUnjí>
—— Oslo---------
Beinasta leiðin til Ameríku
er með skipum okkar.
Farseðlar og allar uppl.
hjá
rmmmmmmm—m 1 ■ ■■■■■■■■
NIC. BJARNASON.
LEGUBEKKIRNIR
úr
VERSLUNINNI ÁFRAM
Laugaveg 18
bila ekki þegar mest ríður á. —
5 tegundir fyrirliggjandi.
Þar fást einnig
HÚSG.ÖGN við allra hæfi.
— Sími 919. —
ir vagninum, og það var bara gott, sérílagi,
ef svo vel vildi til, að við fengum góða, hlýja
yfirsæng úr snjó.
Lesið framliald af endurminningum Sim-
sons i næsta blaðil
Frh. frá bls. 7.
HEIMILIÐ. — Húsráð.
Hveitilím verður miklu
sterkara og haldbetra, ef
blandað er einni teskeið af á-
lúni i vatnið og hveitið.
Sykurhúð á kökur má búa til
úr ofurlitlu af púðursykri upp-
leystum í matskeið af mjólk.
Gljáð húsgögn má hreinsa úr
1 hluta af salmíakspiritus móti
10 hlutum af vatni. Klúturinn
er undinn eins vel og hægt er,
og síðan eru húsgögnin nudd-
uð fast.
Látið aldrei borðhnífana
liggja lengi í heitu vatni; það
losar sköftin.
Til þess að gamlar, dökkar
kartöflur verði hvítar, á að
blanda teskeið af ediki í vatn-
ið, sem þær eru soðnar úr.
Mislitt silki, sem er ekki vel
þvottaekta, skal þvo í veiku
saltvatni, 1 matskeið af salti
á líter.
Skerið lauk í tvent og látið
hann liggja i nýmáluðu her-
bergi. Þá hverfur málningar-
lyktin eftir nokkra klukku-
tíma.
Hringjum undan heitum
ílátum má ná af gljáðum hús-
gögnum með steinolíu.
Aluminium-áhöld má aldrei
hreinsa úr sódavatni, þvi að
•þá verða þau svört.
Til þess að hreinsa leðurhús-
gögn á að blanda saxnan einni