Freyja - 22.03.1929, Síða 13
FREYJA
13
PÓSTKASSINN
Sendið fyrirspurnir yðar til
Freyju, pósthólf 757, Reykjavík,
merkt „Póstkassinn".
Freyja mín góð!
1) Eg mæti einum manni svo
oft á götunni. Eg hefi aldrei tal-
að við hann, og þekki hann ekki
neitt, nema rétt frá öðrum, en
samt tekur hann altaf ofan ,og
heiisar mér, í hvert skifti, sem
hann sér mig. Af hverju heid-
urðu að hann geri það?
2) Eg á svo sterkgrænan kjól,
og vil gjarnan fá hann ljósari, en
liturinn er svo fastur í honum,
að hann lýsist ekkert. Hvernig á
eg að ná litnum úr?
No. 1.
Sv.: .
1) Hann hugsar sjálfsagt sem
svo: „Þessi litla þarna — var það
hún, sem eg dansaði við í Iðnó
— eða var það einhver önnur lík
henni, með. kartöflunef og frekm-
ur? Það getur aldrei gert neitt,
þó að eg heilsi henni.“ Og svo
verður það að ljótum vana.
2) Það er ekki hægt að lýsa
græna kjólinn. Eina ráðið er, að
hta hann sterkrauðan með ljós-
hláum doppum.
Kæra Freyja!
Þú ert sv.o mikið heiðursblað,
að eg vona, að þú getir hjálpað
mér líka. Gætirðu bent mér á ein-
hverja góða bók um Chopin á
dönsku eða þýsku, en þó helst á
ensku. Þá skal eg halda þinn dag
héðan í frá.
Þín einlœg Dóra.
Sv.: Ágæt hók er: Chopin eftir
Fr. Liszt. Getur hún mest um
verk Chopins, en Choþin éftir La
Mara lýsir æfi hans. Báðar bæk-
urnar eru útgefnar hjá Breitkopf
& Hártel, Leipzig, og kosta, sú
fyrri 6 mörk, sú síðari 1.50 mark.
Þær hafa lika verið þýddar á
ensku.
Kæra F'reyja!
Viltu vera svo væn' að svara
þessum spurningum:
1) Þegar eg geng á gangstétt-
inni vinstra megin við götuna, og
sé mann, sem eg þekki á hinni
gangstéttinni, á eg þá að láta sem
eg sjái hann ekki, eða á eg að
líta til hans, svo að hann neyðist
tii þess að taka ofan fyrir mér.
Er það ekki „uppáþrengjandi“?
2) Hvort er kurteislegra, þegar
manni er heilsað úti á götu, að
kinka kolli þegjandi, eða bjóða
góðan daginn?
Þín Siissa.
Sv.:
1) Það er til vegur þar á milli.
Þú þarft ekki að einblína á hann
og því síður þarftu að sýna hon-
um fvrirlitningu með því að láta
sem þú sjáir hann ekki. Líttu
snöggvast til hans, og ef hann sér
þig ekki, þá haltu áfram eins og
ekkert hefði i skorist.
2) Það er hvort tveggja jafn
kurteislegt. Hins vegar er óþarfi,
að öskra góðan daginn, yfir þvera
götuna, til vinar þíns á hinni
gangstéttinni.
Kæra Freyja!
Viltu segja mér, hvort eg er of
ung til þess, að vera að ,,rúnta“
með strákum á kveldin? Eg er
ló ára.
Þín Greta K.
Sv.: Freyja er ekki meðal
þeirra, sem altaf eru að predika
um spillingu og ósiðsemi unga
fólksins. Að „rúnta“ er fyrir
mörgum að eins saklaust gaman,
en það er ósiður og timaeyðsla.
Þú ert bæði of ung til þess, og
ættir að þykjast of góð til þess.
Svar til vongóðrar:
Freyja getur ekki hjálpað þeim,
sem ekkert vilja gera til þess
sjálfir. Ef þið eruð bæði svo
drambsöm, að hvorugt vill Iáta
undan, þá, blessuð látið þið alt
róa eins og það er!
Kæra Freyja!
Má eg spyrja þig þessara
spurninga:
1) Var Mary Pickford gift, áð-
ur en hún giftist Douglas Fair-
hanks, og hverjum?
2) Hvað er hún gömul?
Þinn litli Nói.
Sv.:
1) Nei, hún var ekki gift áður.
2) Fædd 1894.
Þekkið þér kvikmyndaleikarana?
Hér birtist róðningin á leikaranöfnunum í 11. tbl. Freyju:
1. Greta Garbo 16. Jaqueline Logan
2. Lloyd Hughes 17. Willy Fritsch
3. Henny Porten 18. Ronald Colman
4. Ilarold Lloyd 19. Lilian Gish
5. Mary Pickford 20. Gloria Swanson
0. Ramon Novarro 22. Pola Negri
7. Brigitte Helm 22. John Barrymore
8. Charles Chaplin 23. Lon Chaney
9. Lars Hanson 24. Buster Iveaton
10. Emil Jannings 25. Iwan Mosjukin
11. Douglas Fairbanks 26. Conrad Veidt
12. Norma Talmadge 27. Rodoiph Valentino
13. Adolphe Menjou 28. Vilma Banky
14. John Gilbert 29. Milton Sills
15. Jackie Coogan 30. Richard Barthelmess.
Freyja þakkar lesendum sínum ágætar undirtektir. Hátt á þriðja hundrað
ingar voru komnar á tilteknum tíma, og höfðu 143 þeirra öll nöfnin rétt. Var þvi dreg-
ið um verðlaunin og hlutu þessir þátttakendur 10 kr. liver:
Halldóra Gísladóttir, Frakkastíg 12, Rvílt.
Lóló Egilson, Hverfisgötu 59, Rvík.
Sigurður Sigmundsson, Bræðraborgarstíg 38, Rvik.
Verðlaunin eru afhent á afgreiðslu Freyju, Bankastræti 11.
I næsta blaði mun Freyja flytja aðra skemtilega verðlanaþraut.