Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 1

Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 4 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Finndu okkur á SÝNINGAR HEFJAST AFTUR Í KVÖLD Takmarkaður sýningafjöldi 6 Grímuverðlaun Frá krýningarathöfn Naruhito Japanskeisara og Masako keisaraynju í gær. Athöfnin var hápunktur mánaðarlangrar krýningar hins nýja keisara. Naruhito er 126. keis- ari Japans og fyrsti keisari landsins sem er fæddur eftir seinni heimsstyrjöldina. Athöfnin fór fram í keisarahöllinni í Tókýó að viðstöddum um 2.500 gestum hvaðan- æva úr veröldinni. Meðal þeirra voru forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og frú Eliza Reid ásamt sendiherra Íslands í Japan, Elínu Flygenring. NORDICPHOTOS/ GETTY +PLÚS STJÓRNSÝSLA „Það væri óskandi að opinberar stofnanir dragi lærdóm af þessu máli. Almennt hefur mér fund- ist það allt of ríkjandi viðhorf innan stjórnsýslunnar að ef það er ekki beinlínis skylda að láta upplýsingar af hendi þá sé það ekki gert. Eðli- legra viðhorf væri að allt sem sé ekki beinlínis hættulegt, varðar þjóðar- öryggi eða skaði einkahagsmuni, sé birt,“ segir Valgerður Jóhannsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, um mál Seðlabankans gegn Ara Brynjólfs- syni, blaðamanni á Fréttablaðinu. Seðlabankinn ákvað í gær að birta upplýsingar um námsstyrk til fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans. Héraðs- dómur staðfesti síðastliðinn föstu- dag úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál um að bankanum bæri að afhenda blaðamanninum umræddar upplýsingar. Valgerður, sem er umsjónar- maður meistaranáms í blaða- og fréttamennsku, segir það í hæsta máta óvenjulegt að stofnun dragi blaðamann fyrir dómstóla til að fá úrskurði úrskurðarnefndar hnekkt þótt hún geti ekki fullyrt að um eins- dæmi sé að ræða. Hún segir tregðu stjórnsýslunnar og opinberra stofnana við að veita upplýsingar virka hamlandi á blaða- og fréttamenn. Stundum sé ekki um stór fréttamál að ræða og þá séu ekki allir tilbúnir að eyða ómældum tíma og fyrirhöfn til að fá upplýsingarnar. „Það er auðvitað lykilatriði að fjöl- miðlar eru að þjóna lesendum sínum og almannahagsmunum. Almenn- ingur á auðvitað bara rétt á þessum upplýsingum. Stofnanirnar eru ekki að þráast við gegn einhverjum blaðamanni heldur gegn almenn- ingi í landinu sem er líka fólkið sem stjórnsýslan á að þjóna.“ Stjórnsýslan þurfi að hafa það í huga. „Ég held að þessi viðhorf séu meira ríkjandi hér en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við,“ segir Valgerður. – sar Stofnanir dragi lærdóm af málinu Umsjónarmaður meist- aranáms í blaða- og fréttamennsku við Há- skóla Íslands segir upp- lýsingaleynd of ríkjandi í stjórnsýslunni. Lær- dóm þurfi að draga af máli Seðlabankans gegn blaðamanni. VI ÐS KIP TI Framtakssjóðurinn Innviðir fjárfestingar, sem er að stærstum hluta fjármagnaður af lífeyrissjóðum, hefur eignast 67 prósenta hlut í Verðbréfamiðstöð Íslands samhliða um 300 milljóna króna hlutafjáraukningu í félag- inu. „Fyrirtækið er fullfjármagnað eftir hlutafjáraukninguna og mun hefja starfsemi á næstu mánuðum. Segja má að við séum á f lugbraut- inni og munum brátt taka á loft,“ segir Sigþrúður Ármann, stjórnar- formaður Verðbréfamiðstöðvar Íslands. Sigþrúður segist sjá fram á að markaðurinn muni hafa mögu- leika á því að spara tugi milljóna á ári með tilkomu fyrirtækisins. – hvj / sjá Markaðinn Lífeyrissjóðir eignast VBM VIÐSKIPTI Malasíska félagið Berjaya Corporation, sem keypti í sumar 75 prósent hlutafjár í Icelandair Hotels, hefur gengið frá kaupum á fasteign- inni að Geirsgötu 11 á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík. Kaupverðið nemur 1.750 millj- ónum en seljendur eru félögin Fiski- tangi og Útgerðarfélag Reykjavíkur. Berjaya hefur sagt að kaupin myndu gefa félaginu tækifæri til þess að hefja fjárfest- ingar, svo sem á sviði f a s t e ig n a þ r ó u n a r og sér í lagi hótel- s t a r f s e m i , á Ísla nd i. – hae / sjá Markaðinn Klárar kaupin á Geirsgötu 11 Vincent Tan, eigandi Berjaya. 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 0 -1 0 7 0 2 4 1 0 -0 F 3 4 2 4 1 0 -0 D F 8 2 4 1 0 -0 C B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.