Fréttablaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 4
STJÓRNSÝSLA Niðurstöður víð-
tækrar stefnumótunar stjórn-
valda og atvinnulífs fyrir íslenskan
útf lutning verða kynntar á fundi
Íslandsstofu í dag. Í tilkynningu
kemur fram að stefnumótunin hafi
verið unnin í breiðu samráði við
útflutningsfyrirtæki um land allt og
að tæplega 400 manns hafi komið
að vinnunni með beinum hætti í
gegnum þrettán vinnustofur sem
haldnar voru um allt land.
Vinnan er afleiðing af breytingu
sem utanríkisráðherra mælti fyrir
á lögum um Íslandsstofu í apríl
2018 en þeim var ætlað að skerpa
á stöðu stofnunarinnar og styrkja
hana í hlutverki sínu. Íslandsstofu
var falið að að móta langtímastefnu
um aukningu útflutningstekna. Sú
stefna skyldi kveða á um áherslur í
markaðsstarfi Íslands á erlendum
mörkuðum, velja markaðssvæði og
skilgreina mælanleg markmið til að
meta árangur.
Undirliggjandi markmið var að
tvöfalda útflutningsverðmæti vöru
og þjónustu á næstu 20 árum til
að viðhalda lífsgæðum hérlendis.
Kemur fram að fagaðilar telji nauð-
synlegt að stærri hluti verðmæta-
sköpunarinnar komi frá atvinnu-
vegum sem reiða sig ekki á auðlindir
heldur frekar hugvit, nýsköpun og
tækni.
Í vinnunni var sterkur samhljóm-
ur milli útf lutningsgreina um að
Ísland ætti að verða þekkt fyrir að
vera leiðandi í sjálf bærni. Þá voru
hefðbundnir útflutningsmarkaðir
Íslands, Norður-Ameríka, Vestur-
Evrópa og Kína, taldir vera mikil-
vægastir og stefnan sett á að herja
enn frekar á þau svæði. – bþ
Sterkur samhljómur er á
milli útflutningsgreina um
að Ísland ætti að verða
þekkt fyrir að vera leiðandi í
sjálfbærni.
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
Öll rúnstykki á 99 kr.
1 Gísli Pálmi sakaður um stuld: „Má maður bara ekkert
lengur“ Rapparinn Gísli Pálmi tjáir
sig um ásakanir á Facebook. Spyr
hvort ekkert megi lengur.
2 Aukin eftirsókn eftir fullorðins bleyjum: „Hægt að
koma í veg fyrir þetta“ Framleiðsla
á bleyjum fyrir fullorðna hefur
tvöfaldast á einum áratug.
3 Ferða maður fór út á Jökulsár lón og neyddist til að synda
til baka Ferðamaður sem virti við
vörunarskilti að vettugi kom sér í
sjálfheldu í Jökulsárlóni.
4 „Halló, ég er lokuð hérna inni, getið þið hjálpað mér?“ Við
erum hér líka er ný her ferð til að
opna augu al mennings fyrir ör
yrkjum í sam fé laginu.
5 Björgvin Páll opnar sig: „Þegar mesti gráturinn er yfirstað
inn“ Björgvin handboltamaður,
opnar sig á Facebooksíðu sinni
um andleg veikindi sín.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
Karlar Konur Alls
n Borgarfjarðarhreppur 56 38 94
n Djúpavogshreppur 166 149 315
n Seyðisfjarðarkaupstaður 264 245 509
n Fljótsdalshérað 1.315 1.280 2.595
✿ Fjögur sveitarfélög áforma sameiningu
Alls
manns
3.513
F
l j
ó
t s
d a
l s
h é
r a
ð
Bo r g a r f j a r ðarh
rep
p
u
r
Seyð
isf ja rðarkaupstaður
D j ú p a v o g s h
r e p
p u
r
Á fjórða hundrað manns móta útflutningsstefnu
SVEITARFÉLÖG Á laugardaginn
munu íbúar fjögurra sveitarfélaga
á Austurlandi ganga að kjörborð-
inu og greiða atkvæði um samein-
ingu sveitarfélaga. Um er að ræða
sameiningu Borgarfjarðarhrepps,
Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs
og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Rúmlega 3.500 kjósendur eru á
kjörskrá í sveitarfélögunum fjórum.
Langflestir þeirra, eða næstum þrír
af hverjum fjórum, eru búsettir á
Fljótsdalshéraði. Einungis 94 eru
á kjörskrá í Borgarfjarðarhreppi.
Þeir sem hafa kosningarétt í þessum
kosningum eru allir þeir sem hafa
náð átján ára aldri á kjördag.
Ef sameining næst verða sveitar-
félögin aðeins fjögur á Austurlandi.
Hið nýja sameinaða sveitarfélag
auk Vopnafjarðar í norðri, Fjarða-
byggðar í austri og örhreppsins
Fljótsdalshrepps.
Samkvæmt hugmyndum sveit-
arstjórnarmanna verður gömlu
sveitarfélögunum tryggð ákveðin
heimastjórn yfir málefnum sem
snúa beint að nærsamfélaginu.
Heimastjórnir eru tilraun til að
koma til móts við þær áhyggjur að
íbúar fámennari sveitarfélaga upp-
lifi minni áhrif eftir sameiningu á
þann hátt að stóra sveitarfélagið
gleypi þau litlu. Því verður sett
upp heimastjórn og í hverri þeirra
sitja tveir fulltrúar kjörnir beinni
kosningu af íbúum viðkomandi
svæðis. Með því móti er tryggt að
hver stjórn eigi greiðan aðgang að
stjórnsýslunni og hafi enn vald yfir
ákveðnum málum.
Íbúar á Fljótsdalshéraði eru
nokkuð jákvæðir gagnvart samein-
Sameining gæti þýtt nýtt
5.000 manna sveitarfélag
Nýtt sameinað sveitarfélag á Austurlandi yrði það stærsta að flatarmáli hér á landi með tæplega fimm
þúsund íbúa. Sameinað sveitarfélag fengi frá hinu opinbera rúman milljarð króna í meðgjöf. Sveitar-
stjórnarmenn telja almennt jákvæðan anda fyrir kosningunum næstkomandi laugardag.
ingaráformunum að mati Stefáns
Boga Sveinssonar, forseta bæjar-
stjórnar Fljótsdalshéraðs. Hann er
bjartsýnn á að vel takist til á laugar-
daginn.
„Við í sveitarstjórnum höfum
auðvitað kappkostað að leggja fram
eins mikið af upplýsingum og hægt
er svo að íbúar geti tekið ákvörðun
byggða á gögnum. Mér finnst and-
inn vera nokkuð jákvæður og því
verður áhugavert að sjá hvernig til
tekst um helgina,“ segir Stefán Bogi.
Sveitarstjórinn á Djúpavogi, Gauti
Jóhannesson, tekur í sama streng og
Stefán Bogi.
„Mér finnst ég finna frekar fyrir
jákvæðum anda í garð þessarar
atkvæðagreiðslu. Auðvitað eru
skiptar skoðanir en í heildina litið
sýnist mér menn jákvæðir,“ segir
Gauti.
Samgöngumál eru eitt af lykilat-
riðum í þessum kosningum en sam-
eining sveitarfélaganna þýðir að
mikilvægt er að leggja heilsársveg
yfir Öxi og að Fjarðarheiðargöng
verði einnig að veruleika. Helsta
baráttumál sveitarfélaganna í til-
lögum að nýrri samgönguáætlun
er að þessum framkvæmdum verði
f lýtt verulega.
Fari svo að sameiningin verði
samþykkt mun hið nýja sveitar-
félag fá 1,1 milljarð í meðgjöf
frá hinu opinbera ef hugmyndir
sveitarstjórnarráðherra ganga
eftir um sameiningar sveitarfélaga.
Þessa fjárhæð verði hægt að nýta
til að byggja upp innviði og styrkja
svæðið í heild.
sveinn@frettabladid.is
ALÞINGI Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir dómsmálaráðherra lagði
fram lagafrumvarp um bætur
vegna ærumeiðinga á Alþingi í
gær. Verði frumvarpið að lögum
verða refsingar vegna ærumeiðinga
afnumdar.
Áslaug segir ljóst að brýn þörf
sé á að endurskoða ærumeiðingar-
ákvæði hegningarlaga vegna van-
kanta á ákvæðum og þeirra áfellis-
dóma sem íslenska ríkið hefur
fengið hjá mannréttindadómstóli
Evrópu. Núverandi ákvæði brjóti
gegn stjórnarskránni og Mannrétt-
indasáttmála Evrópu.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að
fella niður lög um að enginn megi
óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né
verki. – ilk
Ekki refsivert
að vanvirða
þjóðfánann
BÓKMENNTIR Harpa Rún Kristjáns-
dóttir hlaut í gær Bókmenntaverð-
laun Tómasar Guðmundsson ar fyr ir
ljóðahand ritið Eddu.
Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar eru veitt ár hvert
í minningu borgarskáldsins Tóm-
asar Guðmundssonar fyrir óprent-
að handrit að ljóðabók. Dómnefnd
verðlaunanna er skipuð af borgar-
ráði og er hún skipuð þremur ein-
staklingum.
Dagur B. Eggerts son, borg ar stjóri,
veitti Hörpu verðlaunin sem nema
800 þúsund krónum.
Harpa Rún er fædd árið 1990. Hún
er uppalin í sveit undir Heklurótum
og býr þar enn og starfar sem sauð-
fjárbóndi. Hún lauk meistaraprófi
í almennri bókmenntafræði frá
Háskóla Íslands árið 2018. Harpa
hefur áður birt ljóð í tveimur ljós-
myndabókum og í tímaritum
Harpa Rún Kristjánsdóttir hlýtur
bókmenntaverðlaun Tómasar í ár
Hin árlegu bókmenntaverðlaun sem kennd eru við borgar
skáldið Tómas Guðmundsson voru afhent í gær við hátíðlega
athöfn í Höfða við Borgartún. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
en Edda er fyrsta ljóðabók hennar.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
segir að í ljóðum Eddu megi greina
sátt við gang lífsins þótt hann sé
sársaukafullur. „Edda er heillandi og
hófstillt verk þar sem hugsanir um
æsku og elli fléttast saman, vega salt.
Þræðirnir bindast og mynda vef sem
sýnir okkur í nýju ljósi svo margt
sem við þóttumst vita.“ – bþ
+PLÚS
2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
0
-2
9
2
0
2
4
1
0
-2
7
E
4
2
4
1
0
-2
6
A
8
2
4
1
0
-2
5
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K