Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Green Diamond harðkorna-dekkin eru íslensk hönnun fyrir íslenskar aðstæður sem
henta í f lestum tilvikum betur en
nagladekk, menga margfalt minna
og endast einstaklega vel. Green
Diamond eru einu umhverfisvænu
og vistvænu dekkin sem bjóðast
fyrir einkabílinn hér á landi.
„Það sem er kannski skemmti-
legast við þetta er ekki bara að
framleiðsla dekkjanna sé byggð á
íslensku einkaleyfi, heldur hvað
þetta er f lott vara,“ segir Kristinn
Sigurðsson, seljandi dekkjanna.
„Að sjálfsögðu notum við 100%
náttúrulegt gæðagúmmí í slitlagið
og við blöndum iðnaðardemanti í
allt slitlag Green Diamond dekkja.
Virknin varir því allan líftíma
dekksins, en það eru á bilinu 300-
400 grömm af iðnaðardemanti í
hverju fólksbíladekki. Sumir leyfa
sér að auglýsa harðkornadekk sem
hafa kannski 20 grömm af iðn-
aðardemanti, sem er mulningur í
efsta yfirborðinu. Mér finnst það
vera hrein og klár vörusvik.
Það stuðlar mjög að sjálf-
bærni að endurnýta dekk
Það bregður sumum þegar ég nefni
að dekkin séu endursóluð, en það
eru þau dekk þar sem belgurinn er
endurnýttur og nýr gúmmíslitflöt-
ur settur á. Tækninni í endursólun
hefur fleygt fram og gallatíðni er
sambærileg við ný dekk, við fram-
leiðsluna er notuð sambærileg
tækni og þekkist hvort tveggja
hjá Formúlu 1 og í f lugvélabrans-
anum,“ segir Kristinn. „Belgurinn
sem við notum er líka framleiddur
til að vera endurnýttur, en hann
er allt að 75% af nýja dekkinu.
Við spörum nálægt 100 lítra af
jarðefnaeldsneyti á einum dekkja-
gangi og það er engin spurning að
við verðum að endurnýta allt sem
við getum. Hvert einasta kolefnis-
spor skiptir miklu máli og margt
smátt gerir eitt stórt. Þeir sem hafa
fylgst með fréttum síðustu daga
og umræðunni um loftgæðamál
hljóta allir að vera sammála mér.“
Koma vel út í prófunum
„Við eigum próf frá annarri af
tveimur stofnunum í heiminum
sem hafa alþjóðlega vottun til að
gera samanburðarrannsóknir
á dekkjum, VTI (Vej og Teknik
Institut), sem er hliðarfyrirtæki
við sænsku vegamálastofnunina,“
segir Kristinn. „Samkvæmt upp-
lýsingum frá Umferðarstofu þá
eru algengustu óhappaskilyrðin
hér á höfuðborgarsvæðinu þegar
það er blautur ís við frostmark og
þau skilyrði voru endursköpuð
á rannsóknarstofunni. Green
Diamond reyndist hafa 36% meiri
virkni í bremsuprófi en það dekk
sem kom næst og 32% meiri virkni
í beygjuprófi. Hér skilur milli lífs
og dauða.“
Nagladekk eru barn síns
tíma og veita falskt öryggi
„Green Diamond harðkornadekk
hafa mikilvæga kosti fram yfir
nagladekk. Ítarleg rannsókn dr.
Haraldar Sigþórssonar umferðar-
verkfræðings gefur í fyrsta lagi
sterkar vísbendingar um að
naglarnir geti gefið falskt öryggi og
ökumenn á negldum hjólbörðum
valdi hlutfallslega fleiri slysum en
aðrir,“ segir Kristinn. „Ökumenn
á nöglum keyra hraðar, sem þýðir
lengri bremsuvegalengd, og á höf-
uðborgarsvæðinu er oftast keyrt
á þurru eða blautu malbiki, en við
slík skilyrði er hemlunarvegalengd
bifreiða á nagladekkjum almennt
lengri. Þá þekkist það við ákveðn-
ar aðstæður að bílar á nöglum geta
„skautað“ og það skapar hættu.
Ég leyfi mér bara að orða það
þannig að naglar drepa. Læknar
segja að allt að 80 Íslendingar deyi
ótímabærum dauða árlega vegna
svifryksmengunar og mörg hundr-
uð glíma við heilsufarsvandamál.
Það má rekja allt að 25% af upp-
sprettu svifryks til nagladekkja,“
segir Kristinn. „Þegar naglarnir
sverfa göturnar myndast líka djúp
hjólför sem fyllast af vatni og geta
skapað slysahættu, auk þess sem
tjaran úr malbikinu sest á dekk og
minnkar veggrip. Green Diamond
dekkin sverfa vegina hins vegar
14 sinnum minna. Nagladekk eru
barn síns tíma.“
Traustir viðskiptavinir og
áhersla á umhverfisvernd
„Það er alveg ljóst að forgangs-
bifreið Björgunarsveitarinnar á
Flúðum væri ekki búin að vera
á Green Diamond dekkjum í sjö
vetur ef þau væru ekki að virka,“
segir Kristinn. „Ef Green Diamond
virkar í uppsveitum Árnessýslu þá
þarf engin nagladekk á suðvestur
horni landsins. Það er komin góð
reynsla á notkum Green Diamond
dekkja frá traustum og ábyrgum
aðilum en við erum m.a. í traustu
sambandi við Hafnarfjarðarbæ,
Isavia, Ístak og fjölda annarra
stórra aðila. Ístak kaupir af okkur
nálægt 150 dekk á hverju ári. Þessi
viðskipti eru eðlilega komin til
vegna almennrar ánægju með
dekkin en einnig sannarlega
vegna þeirrar stefnu fyrirtækj-
anna og stofnananna að stuðla að
aukinni sjálf bærni og umhverfis-
vernd.
Í ljósi stöðugt aukinnar um-
ræðu um mikilvægi umhverfis-
verndar og bættra loftgæða þá
trúum við því að mörg fyrirtæki,
stofnanir og sveitarfélög hljóti
að skoða til hlítar þann mögu-
leika að setja bifreiðar sínar á
umhverfisvæn Green Diamond
harðkornadekk.“
Einstakt grip allan líftíma
dekksins fækkar tjónum
„Athuganir sýna að það virðast allt
að þrisvar sinnum meiri líkur á að
ökumenn á slitnum hjólbörðum
valdi árekstri en aðrir og flestöll
dekk byrja strax að missa grip
þegar þau slitna,“ segir Kristinn.
„Green Diamond dekkin halda
virkninni aftur á móti miklu betur
af því að iðnaðardemanturinn er í
öllu slitlaginu, en ekki bara efst, og
það er sama góða gúmmíið í öllu
dekkinu. Green Diamond dekkin
geta því fækkað tjónum heilmikið
og þannig sparað þjóðarbúinu
hluta af þeim kostnaði sem fylgir
umferðaróhöppum, en samkvæmt
Samgöngustofu er hann áætlaður
yfir 30 milljörðum á hverju ári.“
Eru Green Diamond dekkin sam-
keppnishæf í verði?
„Já, þau eru það. Green Diamond
dekkin eru ekki ódýrustu dekkin á
markaðnum, en maður ætti aldrei
að gefa afslátt af öryggi og þau eru
mjög endingargóð, þannig að þetta
eru sannarlega hagstæð kaup,“
segir Kristinn. „Það er vel þess
virði að fjárfesta í gæðadekkjum,
bæði til að tryggja öryggi, vernda
umhverfið og spara umfelgun.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.hardkornadekk.is og í síma
611 7799. Einnig má senda póst á
panta@hardkornadekk.is. þegar
ákvörðun um kaup liggur fyrir þá
er dekkjunum komið á tiltekið
dekkjaverkstæði.
Kristinn Sigurðsson, seljandi dekkjanna, segir að Green Diamond dekkin séu einu umhverfisvænu og vistvænu dekkin sem bjóðast fyirr einkabíla á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Iðnaðardemanturinn í Green Diamond dekkinu er vel sjáanlegur nær í
gegnum allt slitlag dekksins, sem þýðir að virknin varir allan líftíma dekksins
Framhald af forsíðu ➛
Guðmundur Sigurðsson,
eigandi og framkvæmda-
stjóri ferðaþjónustu-
fyrirtækisins Gateway
to Iceland:
„Ég hef verið atvinnu
bílstjóri í 47 ár. Green
Diamond dekkin eru
bestu vetrardekk sem ég
hef ekið á. Við hjá Gate
way to Iceland höfum
notað Green Diaamond
dekkin í rúm 5 ár. Dekkin
hafa alveg ótrúlegt grip.
Bílarnir skríða aldrei til
að aftan, þeir eru eins og
negldir við veginn. Það er
sama hversu mikið Green
Diamond dekkin slitna,
það er alltaf frábært grip í
dekkjunum.“
Green Diamond
reyndist hafa 36%
meiri virkni í bremsu-
prófi en það dekk sem
kom næst og 32% meiri
virkni í beygjuprófi.
Kristinn Sigurðsson
2 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RVETRARDEKK
2
3
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
0
-2
E
1
0
2
4
1
0
-2
C
D
4
2
4
1
0
-2
B
9
8
2
4
1
0
-2
A
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K