Fréttablaðið - 28.10.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 5 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 2 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
Jafnvígur á rafmagni & bensíni
Golf GTE
Verð frá
4.390.000 kr
Veldu þinn uppáhalds á
www.hekla.is/volkswagensalur
Tengiltvinnbíll
LÖGREGLUM ÁL Íslenskur karl-
maður er í haldi lögreglunnar á
Spáni vegna gruns um fíkniefna-
misferli. Hann var handtekinn á
f lug vellinum í Barcelona í síðustu
viku er hann hugðist ferðast þaðan
til Íslands. Mikið magn kókaíns
fannst í farangri mannsins.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að um rúmlega 5 kíló hafi verið að
ræða. Alþjóðadeild Ríkislögreglu-
stjóra hefur ekki svarað fyrirspurn
blaðsins um hvort lögregluyfirvöld
á Spáni hafi óskað eftir samstarfi
vegna málsins en miðlæg rann-
sóknardeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu hafði ekki fengið
slíka beiðni síðdegis á föstudag.
Lagt hefur verið hald á mikið
magn af kókaíni hér á landi á þessu
ári. Í maí voru tveir Íslendingar
teknir í Leifsstöð með 16 kíló falin
í ferðatöskum. Tveir voru teknir
með 5,5 kíló í Leifsstöð í septem-
ber. Þá voru fimm kíló af kókaíni
falin í bíl sem kom til landsins með
Norrænu í ágúst.
Alls hefur verið lagt hald á meira
en 30 kíló af kókaíni við komu til
landsins í ár. Kókaín er talsvert
dýrara en önnur fíkniefni. Sam-
kvæmt tölum SÁÁ hefur götuvirðið
lækkað nokkuð frá árslokum 2017,
farið úr rúmum 18 þúsund krónum
fyrir grammið niður í 14 þúsund.
Sérstök umræða fór fram aá
Alþingi um f ík niefnafaraldur
nýverið. Fram kom í máli Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
að í fyrra hafi meira en helmingur
innlagna á Vog verið vegna fíknar
í örvandi efni. – ab
Tekinn með kókaín á Spáni
Íslenskur karlmaður var handtekinn á flugvellinum í Barcelona á Spáni með mikið magn af kókaíni.
Maðurinn var á leiðinni til Íslands. Lagt hefur verið hald á mikið kókaín á þessu ári og er verðið lágt.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að maðurinn hafi
verið með rúmlega fimm
kíló af kókaíni í farangri.
Vel viðraði til útivistar um landið allt um helgina og áfram gæti orðið þokkalegasta veður í dag. Bjart en kalt og hægur vindur í höfuðborginni og á Austurlandi. Munu sumir þurfa að skafa
bílinn. Búast má við skúrum við vesturströndina og vindi fyrir norðan. Nokkrir kylfingar nýttu sér blíðviðrið og léku golf á Seltjarnarnesinu í vetrarsólinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
STJÓRNMÁL Undirnefnd fjárlaga-
nefndar leggur til að Ríkisendur-
skoðun verði falið að meta nýjan
samning milli ríkis og kirkju og
hvort hann samræmist lögum um
opinber fjármál.
Einnig er lagt til að óskað verði
eftir minnisblaði um afstemmingu
ráðuneytisins og Ríkisendurskoð-
unar á skuldastöðu ríkisins vegna
eignatilfærslu kirkjujarða til ríkis-
ins í tengslum við samkomulag frá
árinu 1997. – aá / sjá síðu 6
Vilja láta meta
kirkjusamning
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
7
-A
6
1
C
2
4
1
7
-A
4
E
0
2
4
1
7
-A
3
A
4
2
4
1
7
-A
2
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K