Fréttablaðið - 28.10.2019, Side 4
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
®
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI
jeep.is
JEEP® GRAND CHEROKEE VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
NORÐURLÖND Norðurlandaráðs
þing verður formlega sett á morgun
en þingið fer fram í sænska þinginu
í Stokkhólmi. Meðal dagskrárliða
fyrsta dagsins er norrænn leiðtoga
fundur þar sem forsætisráðherrar
Norðurlandanna taka þátt. Þar
munu ráðherrarnir ræða hvernig
norræna samfélagslíkanið geti
þróað og stuðlað að sjálf bærum
umskiptum.
Ísland tekur við formennsku í
Norðurlandaráði á næsta ári og
verður formennskuáætlun Íslands
kynnt á þinginu. Yfirskrift áætlun
arinnar er „Stöndum vörð“ og er þar
vísað í áskoranir tengdar lýðræði og
loftslagsbreytingum.
„Í fyrst lagi ætlum við að standa
vörð um lýðræðið, sem er eitt af
grunngildum norrænna ríkja, með
því að berjast gegn upplýsinga
óreiðu og falsfréttum. Líklegt er að
þetta málefni verði mjög í sviðsljós
inu á næsta ári þegar forsetakosn
ingarnar fara fram í Bandaríkjun
um,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir,
formaður Íslandsdeildar Norður
landaráðs.
Silja Dögg hefur verið tilnefnd
sem forseti Norðurlandaráðs á
næsta ári og Oddný G. Harðardóttir
sem varaforseti.
Í áætluninni er einnig lögð
áhersla á líffræðilegan fjölbreyti
leika. Silja Dögg segir að um ansi
víðtækt hugtak sé að ræða en
ákveðin svið hafi verið valin sem
leggja á sérstaka áherslu á.
„Annað er líffræðilegur f jöl
breytileiki í hafi, en minna hefur
farið fyrir þeim þætti vandans
heldur en því sem snýr að lífi á
landi. Hitt er að gefa ungu fólki
tækifæri til að hafa áhrif á mótun
nýju markmiðanna um líffræðilega
fjölbreytni,“ segir Silja Dögg.
Þriðji þáttur áætlunarinnar snýr
að ef lingu tungumálaskilnings á
Norðurlöndum. „Forsenda þess að
Norðurlönd geti unnið saman að
stórum og mikilvægum verkefnum
er að við treystum böndin milli
okkar. Tungumálakunnáttan er lyk
ilþáttur í því. Því miður er kunnátta
okkar Íslendinga í dönsku og öðrum
skandinavískum málum minni nú
en var fyrir nokkrum áratugum.“
Styrkja þurfi stöðu norrænu
tungumálanna í skólakerfinu og
auðvelda aðgengi fólks að sjón
varpsefni, bókmenntum og öðru
menningarefni frá Norðurlöndun
um. Það þurfi þó að horfast í augu
við að margir Finnar, Íslendingar
og Grænlendingar skilji ekki skand
inavísku málin og finna þurfi leiðir
til að þeir verði ekki útilokaðir frá
norrænu samstarfi.
Að venju verða verðlaun Norður
landaráðs veitt í tengslum við
þingið en af hendingin fer fram
annað kvöld. „Það verður auðvitað
að vanda gaman að fylgjast með
afhendingu verðlaunanna. Íslend
ingar hafa hlotið mörg verðlaun á
síðustu árum þannig að ég er bjart
sýn á að þeim sem tilnefndir eru í
þetta sinn gangi líka vel,“ segir Silja
Dögg.
Fyrir utan dagskrá sjálfs þingsins
fara fram fjölbreyttir fundir og við
burðir á vegum ýmissa norrænna
aðila.
„Í tengslum við þingið verður
líka haldinn sérstakur fundur þar
sem við þingmenn ætlum að ræða
sameiginlega umsókn Norðurlanda
um að halda heimsmeistarakeppni
kvenna í fótbolta 2027,“ segir Silja
Dögg. sighvatur@frettabladid.is
Loftslagsmálin til umræðu á
þingi Norðurlandaráðsins
Þing Norðurlandaráðs, hið 71. í röðinni, fer fram í Stokkhólmi í vikunni en þar koma saman þing-
menn og ráðherrar frá öllum Norðurlöndunum. Loftslagsmál, sjálfbærni og þátttaka ungs fólks í
mótun markmiða eru áberandi á dagskránni. Ísland fer með formennsku í ráðinu á næsta ári.
1 Starfs maður McDonalds kastaði blandara í and litið á
við skipta vin. Konan hlaut alvar-
lega áverka í andliti.
2 Sprengdi sjálfan sig í loft upp ásamt þremur börnum sínum.
Donald Trump Banda ríkja for seti
stað festir að Abu Bakr al-Bag hdadi,
leið togi íslamska ríksins, hafi fallið.
3 Tilkynnt um hávaða, öskur og læti í gufubaði í Breiðholti.
Mennirnir lofuðu að lækka í sér og
tónlistinni.
4 Dauðar slóðir Stjórnarráðsins. Páll Hilm ars son, sér fræð ing ur
hjá gagn a þjón ust u Reykj a v ík ur -
borg ar, seg ir lík legt að ís lensk ar
vef síð ur séu að hverf a.
5 Thunberg beinir spjótum sínum að Zuckerberg. Zuck-
erberg var spurður spjörunum
úr um stefnu Facebook er varðar
ritskoðun auglýsinga.
VIÐSKIPTI Á grundvelli vettvangs
athugunar hjá Arion banka hefur
Fjármálaeftirlitið komist að þeirri
niðurstöðu að úrbóta sé þörf við
virðismat útlána bankans. Þetta
kemur fram í gagnsæistilkynningu
á vef eftirlitsins.
Í athuguninni var úrtak útlána til
fimm viðskiptamanna og tengdra
aðila skoðað og niðurstöður virðis
mats með áherslu á bókfært virði
skuldbindinganna athugað. Ekki
var gerð athugasemd við bókfært
virði. Hins vegar fann eftirlitið að
skráningarkerfi trygginga þar sem
það var ekki talið endurspegla
stöðu viðskiptamanna nægilega.
Þá voru dæmi þess að ferli við
virðismat var ekki fylgt og að óvissa
væri um virði trygginga bankans
vegna útlána til eins viðskipta
manns. Þá hafi skilyrðum fyrir
lánveitingum til tveggja viðskipta
manna ekki verið fullnægt. – jþ
AUSTURLAND Íbúar á Fljótsdals
héraði, í Seyðisfjarðarkaupstað,
Djúpavogshreppi og Borgarfjarðar
hreppi samþykktu að sameinast í
eitt sveitar félag í íbúakosningu sem
fram fór á laugardag. Nýtt sveitar
félag verður það stærsta á landinu.
Kjörsóknin var 75,9 prósent og
alls voru 88,6 prósent fylgjandi sam
einingu. Mestur var stuðningurinn á
Fljótsdalshéraði, 93,9 prósent, en það
er jafnframt stærsta og fjölmennasta
sveitarfélagið af þessum fjórum.
Mesta andstaðan var í Djúpavogs
hreppi þar sem 35,8 prósent kusu
gegn sameiningu og 64,2 prósent
með. Í Seyðisfjarðarkaupstað studdu
87,4 prósent sameiningu og í Borgar
fjarðarhreppi 72,1 prósent.
Íbúafjöldi hins nýja sveitarfélags
verður um 5.000 manns, eða mjög
svipað og í Fjarðabyggð, sem varð til
úr þremur sveitarfélögum árið 1998
og þrjú til viðbótar bættust við árið
2005.
Þegar sameiningin tekur gildi
Íbúar samþykktu að sameina fjögur sveitarfélög á Austurlandi í eitt
verða aðeins fjögur sveitarfélög á
Austurlandi, hin tvö fyrrnefndu,
Vopnafjarðarhreppur og Fljótsdals
hreppur. Enn þá á eftir að finna nafn
á hið sameinaða sveitarfélag en ný
sveitarstjórn verður kosin þar næsta
vor. – khg
n Borgarfjarðarhreppur
n Seyðisfjarðarkaupstaður
n Fljótsdalshérað
n Djúpavogshreppur
Aðferðir Arion
aðfinnsluverðar
Silja Dögg Gunnarsdóttir, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, á fundi ráðsins árið 2017.
2 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
7
-B
E
C
C
2
4
1
7
-B
D
9
0
2
4
1
7
-B
C
5
4
2
4
1
7
-B
B
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K