Fréttablaðið - 28.10.2019, Side 34
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Snjalltæknin eirir engu og ryðst að sjálfsögðu inn á baðherbergið rétt eins og
aðrar vistarverur heimilisins.
Nú til dags eru margir farnir að
uppfæra baðherbergin sín með
hátækniklósettum, snertilausum
krönum og öðrum geimaldar-
nýjungum. Hér eru fimm spenn-
andi nýjungar sem mætti hafa í
huga næst þegar baðherbergið er
gert upp.
Snertilaus krani
Við höfum líklega f lest kynnst
snertilausum krönum á almenn-
ingsklósettum, en það er farið
nýta þá á heimilum líka. Kran-
arnir nota hreyfiskynjara til að
nema handahreyfingar, svo það
er nóg að veifa hendinni undir
krananum til að setja hann í gang,
sem er bæði þægilegt og þrifalegt.
Sumir kranar hafa jafnvel inn-
byggða handþurrkara og aðra er
hægt að forrita til að stilla hitastig
og vatnsþrýsting.
Sjónvarp í baðskápnum
Það eru til verri leiðir til að drepa
tímann en að liggja í baði og horfa
á sjónvarp, en ef maður vill nota
símann er hætt við að hann blotni.
Sem betur fer gerir ný tækni það
mögulegt að setja LCD-skjá í bað-
herbergisskápinn. Það er líka hægt
að láta slíka skápa spila tónlist
og mörgum finnst gaman að geta
sungið með í sturtunni.
Forritanleg sturta
Nýjustu og flottustu sturturnar
hafa stafræn stjórntæki og það er
hægt að stilla hitastig og vatns-
þrýsting með fjarstýringu. Það
er líka hægt að vista uppáhalds
stillinguna sína og setja hana svo í
gang áður en farið er inn í sturt-
una, þannig að hægt sé að stíga
beint inn í akkúrat passlega sturtu.
Hátækniklósett
Það eru ýmsar gerðir af
hátækniklósettum í boði. Það er
hægt að fá klósett sem eru með
hreyfiskynjara til að vita hve-
nær á að lyfta lokinu og setunni,
hitaðar setur, lykteyðandi kerfi,
þráðlausa fjarstýringu, hátalara-
kerfi með dokku og kerfi til að
hita tærnar. Þeir sem vilja setja
upp hátækniklósett heima hjá sér
þurfa því að velja vel því margar
skemmtilegar nýjungar eru í boði.
Baðkar með hljóðkerfi
Nýjustu og f lottustu baðkörin
bjóða að sjálfsögðu líka upp á
magnaða nýja möguleika. Það
er hægt að fá baðkör með nudd-
kerfum, LED-fossum, innbyggð-
um sjónvörpum og Bluetooth-
tengimöguleikum til að hlusta
á tónlist. Það er svo líka hægt að
bæta við alls konar aukahlutum
sem geta gert baðherbergið mun
nútímalegra án þess að það kosti
stórkostlegar framkvæmdir. Fólki
er auðvitað í sjálfsvald sett að
meta hvaða græjur geti gert lífið
sem þægilegast.
Fimm flottar nýjungar
fyrir nútíma baðherbergi
Snjalltæknin býður upp á ótal möguleika og getur nýst vel á baðherbergjum. Nú eru hægt
að fá nýtískulegar græjur sem geta gert heimsóknir á baðherbergið miklu skemmtilegri.
Það eru ýmsar leiðir í boði til að snjallvæða baðherbergi nú til dags, sem getur gert þau bæði þægilegri og skemmtilegri. NORDICPHOTOS/GETTY
Fallegt baðherbergi með góðum speglum og körfum undir vaskborðinu.
Eitt af því mikilvægasta í hverju baðherbergi er spegillinn. Baðherbergið er það herbergi
í húsinu þar sem við erum oftast
ein og getum áreitislaust skoðað
okkur í spegli, hvort sem það er
nakin beint úr sturtunni eða bara
til að snyrta okkur eða farða.
Spegillinn getur verið hvort sem
er ferkantaður eða hringlaga, allt
eftir því hvað passar best inn í bað-
herbergið.
Annað sem getur verið mikil-
vægt að passi vel við umhverfið eru
handklæði. Falleg handklæði setja
mikinn svip á umhverfið. Flísar
í nútíma baðherbergi eru oftast
ljósar eða mjög dökkar. Hægt er að
gjörbreyta umhverfinu með fallega
litum handklæðum. Í stíl við hand-
klæði í ýmsum litum er hægt að
koma sér upp fylgihlutum eins og
sturtuhengjum, tannburstaglösum
og baðmottum í sama lit eða litblæ
til að setja skemmtilegt yfirbragð
á baðherbergið. Handklæði eru
þó ekki bara til prýði heldur líka
bráðnauðsynleg til að hægt sé að
sinna þeim athöfnum sem á bað-
herbergjum ber að sinna.
Nú er hægt að fjárfesta í hand-
klæðum úr lífrænni bómull enda
finnst flestum einstaklega notalegt
að hjúfra sig inn í mjúkt og hlýtt
bómullarhandklæði þegar til
stendur að láta sér líða vel.
Á myndinni má sjá sniðuga lausn
til að geyma handklæðin. Þau eru
sett í fallega körfu undir vaskborð-
inu. Skemmtileg heildarlausn.
Nauðsyn á baðinu
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
ALLT Í BAÐHERBERGIÐ
FRÁ A TIL IFÖ
Tengi hefur mikla og góða reynslu af IFÖ baðinnréttingum.
IFÖ eru sænskar hágæðavörur sem framleiddar hafa verið allt frá 1936.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
7
-C
3
B
C
2
4
1
7
-C
2
8
0
2
4
1
7
-C
1
4
4
2
4
1
7
-C
0
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K