Fréttablaðið - 28.10.2019, Side 38
Elsku eiginmaður minn, pabbi okkar,
sonur, bróðir og tengdasonur,
Lárus Dagur Pálsson
sem lést 19. október, verður
jarðsunginn laugardaginn 2. nóvember
klukkan 14 frá Löngumýrarkapellu.
Anna Sif Ingimarsdóttir
Páll Ísak Lárusson
Ingimar Albert Lárusson
Kolfinna Katla Lárusdóttir
Páll Dagbjartsson, Helga Friðbjörnsdóttir
Svanhildur Pálsdóttir
Kolbrún Pálsdóttir
Helga María Pálsdóttir
Ingimar Ingimarsson og Kolbrún Ingólfsdóttir
Í Svefneyjum á Breiðafirði er ég fæddur og þar átti ég heima í 17 ár um miðja tuttugustu öldina. Þetta eru mínar rætur,“ segir Þórður Sveinbjörnsson sem nýlega gaf út Svefneyingabók.
Í bókinni er rakin saga eyjanna frá
landnámi þeirra um 900 til okkar daga.
Fjallað er um byggð eyjanna, fólkið sem
þar bjó í gegnum aldirnar, lífsbaráttu
þess og örlög. Höfundur hefur viðað að
sér ýmsum heimildum sem varpa ljósi á
mannlífið þar í aldanna rás.
Þórður fæddist í Svefneyjum árið 1941
og átti þar heima til 17 ára aldurs. Hann
lýsir hér á eftirminnilegan hátt bernsku-
árum sínum í eyjunum frá sjónarhóli
ungs drengs og segir frá búskaparhátt-
um um miðja 20. öldina, svo og ýmsum
atburðum er þar gerðust.
Eyjabúskapurinn var um margt frá-
brugðinn hefðbundnum búskap í sveit-
um landsins. Má þar nefna samgöngur,
sem eingöngu fóru fram á sjó, báturinn
var farartækið, sem kom í stað hesta eða
bifreiða. Féð þurfti að f lytja til lands
að vori og aftur út í eyjarnar að hausti
ásamt lömbunum. Ferðalög og f lutn-
ingar á skepnum og varningi gátu tekið
á og oft var vosbúð á sjónum.
En á móti kom það sem eyjarnar og
sjórinn gáfu fólkinu, sem naut þess að
hafa ávallt nægan mat. Matarskortur
þekktist ekki og ekki nóg með það, því
í harðindum gerðist það að sveltandi
fólk úr öðrum byggðum var flutt út í eyj-
arnar, þar sem nægan mat var að hafa.
Fiskurinn, fuglinn, selurinn og eggin,
allt þetta var kjarngóður matur, sem var
til í ríkum mæli.
Þórður segir hugmyndina að bókinni
hafa vaknað fyrir um tveimur árum
þegar hann var að vinna að örnefna-
skrá fyrir eyjarnar. „Fyrir þremur árum
tók ég saman örnefni sem í Svefneyjum
eru skráð og færði inn á kort og gaf út
á prenti ásamt örnefnaskýringum og
sögnum þeim tengdum. Við þessa vinnu
vaknaði forvitni mín á að færa til bókar
meiri fróðleik um eyjarnar – mínar kæru
æskustöðvar. Bókin er afrakstur þeirrar
vinnu.“
Að sögn Þórðar var búskapur stund-
aður í Svefneyjum fram á níunda ára-
tug síðustu aldar, en þegar honum
lauk eignaðist Dagbjartur Einarsson,
útgerðarmaður í Grindavík, eyjarnar
og eru þær nú að mestu í eigu og umsjá
afkomenda hans.
Bókina prýðir fjöldi mynda af fólki,
fallegri náttúru eyjanna, bátum og
fuglalífi sem þar er ríkulegt. „Vonandi
verður það sem í bókinni er að finna í
máli og myndum hagnýtur fróðleikur
inn í framtíðina og líka einhverjum til
skemmtunar. Ef svo verður er ég sáttur,“
segir Þórður. david@frettabladid.is
Saga og lýsing mannlífs í
Svefneyjum á Breiðafirði
Svefneyingabók eftir Þórð
Sveinbjörnsson er greinar-
góð lýsing á Svefneyjum á
Breiðafirði, sögu byggðar
og gróskumikils mannlífs.
Við þessa vinnu
vaknaði forvitni mín á
að færa til bókar meiri fróðleik
um eyjarnar – mínar kæru
æskustöðvar.
Þórður Sveinbjörnsson
Svefneyjar eru hluti svonefndra Inneyja í hinum gamla Flateyjarhreppi, sem auk Svefneyja eru Hvallátur, Skáleyjar og
Sviðnur. Þar er ríkt fuglalíf og ber mest á æðarfugli. Lundabyggð er einnig mikil á svæðinu. MYND/MATS WIBE LUND
Það var þennan mánaðardag árið 1977
sem breska hljómsveitin Sex Pistols
gaf út hljómplötuna Never Mind the
Bollocks.
Sex Pistols var pönkhljómsveit
sem var stofnuð í London árið 1975.
Það ár í nóvember kom hljómsveitin
fyrst fram á hljómleikum í listaskóla
í London. En eftir að hafa spilað í ein-
ungis tíu mínútur tóku yfirvöld skólans
rafmagnið af. Sumir segja þetta vera
opinberan fæðingardag pönksins.
Í upphafi samanstóð sveitin af
söngvaranum Johnny Rotten (John
Lydon), Glen Matlock, bassa, Steve
Jones, gítar, og Peter Cook á trommur.
Árið 1977 var Matlock rekinn og Sid
Vicious tók við. Sér-
kennileg hegðun hans
og geggjuð framkoma
vakti mikla athygli.
Alls gaf hljóm-
sveitin, sem er ein
frægasta hljómsveit
pönkbylgjunnar í
Bretlandi, út fjórar
smáskífur og eina
breiðskífu, Never
Mind the Bollocks,
Here’s the Sex
Pistols. Breiðskífan
komst á metsölu-
lista Breta þrátt fyrir – og
kannski vegna þess –
að hafa verið bönnuð víða.
Johnny Rotten
yfirgaf hljóm-
sveitina eftir
stormasama Banda-
ríkjaferð 1978.
Rotten var ruddi og
móðgaði áhorfendur
sína og hrækti jafn-
vel á þá. Goðsögnin
Sid Vicious lifði stutt
en hratt og lést úr
of stórum skammti
heróíns í febrúar
1979 skömmu eftir að
hljómsveitin lagði upp
laupana.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 2 8 . O K T Ó B E R 197 7
Sex Pistols gaf út hljómplötuna Never Mind the Bollocks
Út er komið kverið Fundur
er settur!, um fé-
lagsstörf,
fundarsköp og
ræðumennsku
eftir þá Björn
Jón Braga-
son, kennara
í lögfræði við
Verzlunarskóla
Íslands, og Pétur
Má Sigurðsson,
fráfarandi forseta
nemendafélags
skólans. Það er nem-
endafélag skólans
sem gefur kverið út.
Í inngangsorðum
segja höfundar að
það sé von þeirra
að það geti orðið
sem flestum til
dýpri skilnings á
félagsstörfum,
hvort heldur sem
er á vettvangi
almennra félaga eða
fyrirtækja.
Fundur er settur
306 Maxentíus verður keisari
Rómar.
1449 Kristján 1. krýndur
konungur Danmerkur.
1492 Kólumbus kemur til Kúbu.
1538 Háskólinn í Santo Dom-
ingo, fyrsti háskóli í Vesturheimi,
stofnaður.
1628 Franska húgenottaborgin
La Rochelle gafst upp fyrir her
konungs eftir fjórtán mánaða
umsátur.
1780 Reynistaðarbræður Einar og
Bjarni leggja af stað við fimmta mann
með fjárrekstur norður yfir Kjöl. Þeir
fórust allir á leiðinni.
1848 Dómkirkjan í Reykjavík var vígð
eftir gagngera endurbyggingu kirkj-
unnar.
1868 Thomas Alva Edison sækir um
fyrsta einkaleyfi sitt, vegna kosninga-
vélar sem hann hafði fundið upp.
1886 Frelsisstyttan (Liberty Enlighten-
ing the World) afhjúpuð á Liberty Island
í New York-borg.
1909 Francis Bacon, írsk-enskur listmálari, fæddur.
1929 Dow Jones-vísitala kauphallarinnar í New York féll
um tæp 13%.
1955 Bill Gates, stofnandi Microsoft, fæddur.
1962 Kúbudeilan: Sovétmenn lýsa því yfir að
eldflaugar verði fjarlægðar frá Kúbu.
1967 Julia Fiona Roberts, bandarísk
leikkona, er fædd í borginni Smyrna í
Georgíufylki í Bandaríkjunum.
1971 Breska þingið samþykkir aðild
Bretlands að Evrópska efnahagsbanda-
laginu. Landið gerist síðan aðili að innri
markaði Evrópu í ársbyrjun 1973.
1981 Hrauneyjafossvirkjun í Tungnaá tekin í notkun.
Virkjunin er 210 megavött.
1987 Þáttur Hermanns Gunnarssonar, Á tali hjá Hemma
Gunn, hefur göngu sína í Sjónvarpinu.
2004 Samráð olíufélaganna á Íslandi: Samkeppniseftir-
litið dæmir fjögur íslensk olíufélög til hárra sekta fyrir
ólöglegt samráð.
2017 Alþingiskosningar fara fram á Íslandi.
Merkisatburðir
2 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
7
-A
B
0
C
2
4
1
7
-A
9
D
0
2
4
1
7
-A
8
9
4
2
4
1
7
-A
7
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K