Fréttablaðið - 28.10.2019, Síða 44
Við getum ekki komið í veg fyrir
að þú breytist í foreldra þína ...
En við getum tryggt að þú vitir
hvað er að frétta!
KVIKMYNDIR
The Laundromat
Leikstjórn: Steven Soderbergh
Aðalhlutverk: Meryl Streep, Gary
Oldman og Antonio Banderas
Kvikmyndin The Laundromat
hefur undanfarið verið sýnd á
kvikmyndahátíðum víða um heim
en er nú loksins kominn á Netf lix
þar sem hún er best geymd. Þessi
grátbroslegi snúningur leikstjór-
ans Stev ens Soderberg á leyni-
makki lögfræðistofunnar Mossack
Fons eca sækir innblástur og bak-
grunn sinn til Panama-skjalanna
en vekur því miður upp spurn-
ingar um hvort leikstjórinn hefði
nokkuð átt að standa upp úr sínum
helga steini.
Óskarsdrottningin Meryl Streep
fer fyrir f lokki einvalaliðs leikara
í myndinni í hlutverki eldri konu
sem leitar réttar síns þegar hún
missir eiginmann sinn og líftrygg-
ing hans gufar upp í skattaskjólum
skúffufyrirtækja.
Í baráttu sinni stendur hún í
raun fyrir allar þær meðal Jónínur
og Jóna sem gráðugir aurapúkar
svína stanslaust á.
Lögfræðingarnir alræmdu Jür-
gen Mossack og Ramón Fonseca,
sem leiknir eru af Gary Oldman
og Antonio Banderas, rekja (hetju)
sögu sína eins og um ævintýri sé að
ræða, enda er þetta mál svo ótrú-
legt að það er eins og skáldskapur.
Rétt eins og skúffufyrirtækja- og
skattaskjólavefur Mossack Fon-
seca og slíkra fyrirtækja er The
Laundromat margþætt og snúin
kvikmynd. Í henni f léttast saman
sögur, innan aðalsögunnar, af
ímynduðum fórnar lömbum og
fjárglæfraskúrkum. Þetta verður
til þess að erfitt getur reynst að
fylgja sögunni eða láta sér annt um
persónurnar þar sem hoppað er úr
einu í annað. Ekki aðeins í efnis-
tökum heldur einnig kvikmynda-
töku og klippingu sem sveif last
eftir viðfangsefninu hverju sinni.
Þeir sem eru ókunnugir málinu
og orðum eins og „skúffufyrir-
tæki“, „af landsfélög“ og „Panama-
skjöl“ þurfa þó ekki að örvænta
þar sem í myndinni er leitast við
að einfalda málið með því að láta
Mossack og Fonseca sjálfa útskýra
f léttur sínar fyrir áhorfandanum.
Þeir brjóta þannig fjórða vegginn
með því að ávarpa áhorfendur með
myndlíkingum og leikmyndinni
eins og þeir séu að leika í einhvers
konar Mel Brooks-gríni.
Í The Laundromat er stokkið
svo til saumlaust milli súrr-
ealisma og raunsæis þar
sem fylgst er með fórnar-
lömbum hneykslisins,
eymd þeirra og von-
leysi í eftirmálunum.
Inn á milli dúkka svo
félag a r nir Mos sack
og Fonseca upp með
sínar teiknimyndalegu
útskýringar.
Edda Karítas Baldursdóttir
NIÐURSTAÐA: Stjörnum
prýdd en samhengislítil
afgreiðsla Stevens Soder-
bergs á Panama-skandalnum
er þeim sem komu að þessari á
köflum súrrealísku Netflix-mynd
ekki til mikils sóma þótt enginn bíði
varanlegan skaða af því að eyða tíma í
hana á tölvu- eða sjónvarpsskjá.
Samhengislaus
súrrealismi
Panama-skjalanna
KVIKMYNDIR
Der goldene Handschuh
Leikstjórn: Fatih Akin
Aðalhlutverk: Jonas Dassler,
Margarete Tiesel, Katja Studt
Sýningar á þýsku kvikmyndinni
Der goldene Handschuh, eða Gyllti
hanskinn, eru hafnar í Bíó Paradís
undir þeim formerkjum að hér sé án
efa komin „ógeðslegasta mynd sem
þú munt sjá á árinu!“
Vissulega er eitthvað til í þessu en
rétt að vara fólk við að draga ekki þá
ályktun af þessum orðum að hér sé
kominn einhver splatter-hryllingur
í ætt við Hostel-subbuskapinn í
Íslandsvininum Eli Roth.
Der goldene Handschuh er miklu
meira en það og þótt hún sé óneitan-
lega hryllileg þá er hún eitthvað allt
annað og miklu meira en stöðluð
hryllingsmynd þótt hún fjalli um
kolbrjálaðan og afmyndaðan rað-
morðingja sem gekk laus í Hamborg
á öndverðum áttunda áratug síðustu
aldar og myrti helst vegalausar og
rosknar vændiskonur.
Þetta er æði sérstök og býsna
merkileg mynd en miklu frekar
ljót, grótesk, drungaleg og sorgleg
en „ógeðsleg“ þótt fyrir augu, og þá
frekar hugskotssjónir en á tjaldinu
sjálfu, beri algert og ágengt ógeð.
Leikstjórinn Faith Akin sýnir
hér alls konar skemmtileg tilþrif í
persónusköpun, kvikmyndatöku,
lýsingu, eða skorti á henni öllu
heldur, þegar hann dregur fram
kalda og hráa mynd af nöturlegu
samfélagi fordæmdra og glataðra
sálna í Þýskalandi í skugga heims-
styrjaldarinnar.
Hann skrifar handritið upp úr
skáldsögu Heinz Strunk sem aftur
sækir innblástur í raunverulega
atburði og sanna sögu Fritz Honkas,
snarbilaðs, áfengissjúks og afmynd-
aðs raðmorðingja sem tældi til sín
vændis- og drykkjukonur upp úr
1970. Getulaus og liðónýtur í einu
og öllu fékk hann síðan útrás fyrir
gremju sína með því að slátra bless-
uðum konunum og faldi sundurhlut-
aðar jarðneskar leifar þeirra innan í
veggjum risíbúðar sinnar.
Frábær leikmyndin er svo þrúg-
andi viðbjóðsleg að maður nánast
finnur ógeðslega nályktina sem ligg-
ur yfir húsinu. Jafnvel þótt Honkas
dreifi hinum sígildu bílailmtrjám
út um allt. Alger brautryðjandi sem
datt niður á þessa „snilldarlausn“
löngu á undan John Doe í Se7ven.
Þessi andskoti allur er lyginni
líkastur og maður þarf ítrekað að
staldra við undir áhorfinu og minna
sig á að þetta GERÐIST í alvörunni.
Og eins sjúkt og það kann að hljóma
þá er þessi mynd vægast sagt áhuga-
verð og eftir að raunverulegar mynd-
ir af vettvangi glæpa Honkas og
helstu persónum og fórnarlömbum
hafa liðið yfir tjaldið með kreditlist-
anum getur maður ekki beðið eftir
að komast í tölvu til að gúgla þennan
mannandskota.
Þetta ruglaða skrímsli sem samt
er einhvern veginn óhjákvæmilegt
að sýna smá samúð, skilning. Alltaf
magnað þegar tekst að sýna óskiljan-
lega andstyggilegt fólk í mennsku
ljósi þrátt fyrir ólýsanleg voðaverk
þess.
Gyllti hanskinn dregur nafn sitt af
sóðalegri krá sem lætur Keisarann,
Skipperinn og Kaffi Amsterdam líta
út eins og B5 en þar vomaði Honkas
yfir og lagði snörur sínar fyrir konur
sem eru svo bágt staddar að þær láta
allt yfir sig ganga fyrir sjúss og húsa-
skjól.
Rétt er að halda því til haga og
staðfestingar á því að Gyllti hansk-
inn er alvöru kvikmynd sem ekki
þarf að skammast sín fyrir að gefa
séns að hún var tilnefnd til Gull-
bjarnarins á Kvikmyndahátíðinni
í Berlín í ár og hlaut Þýsku kvik-
myndaverðlaunin fyrir förðun og
Jonas Dassler og Margarete Tiesel
voru tilnefnd sem bestu leikarar í
aðalhlutverkum.
Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Der goldene Handschuh
er kynnt sem ógeðslegasta myndin sem
þú munt sjá á þessu ári. Heldur óná-
kvæmt og gæti virkað sem fráhrindandi
vísbending um að hér sé á ferðinni
subbu splatter, sem myndin er ekki. Ljót
er hún, grótesk og átakanleg en um leið
frábærlega leikin og stórmerkileg mynd
sem vel er þess virði að leggja á sig.
Djúpköfun ofan í
myrkur sálarinnar
Afmyndaður og sálsjúkur raðmorðinginn Fritz Honka fyrir framan veiðiland sitt, subbubúlluna Gyllta hanskann.
Margarete Tiesel sýnir magnaðan leik sem ógæfukonan Gerda Voss sem
dregst ofan í ógeðslega og lífshættulega veröld ofbeldishneigða kúgarans.
Meryl Streep lætur
skúffufyrirtækin ekki
eiga neitt inni hjá sér og
snýr vörn í sókn af hörku.
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
8
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
7
-C
D
9
C
2
4
1
7
-C
C
6
0
2
4
1
7
-C
B
2
4
2
4
1
7
-C
9
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K