Fréttablaðið - 26.10.2019, Page 4
GOÐSÖGNIN NÝR JEEP® WRANGLER
jeep.is
JEEP® WRANGLER RUBICON
Rock-Track® fjórhjóladrif, Select-Trac® millikassi, Tru-Lock® 100%
driflæsingar að framan og aftan, aftengjanleg jafnvægisstöng að
framan, Heavy Duty fram- og afturhásing, 17” álfelgur, 32” BF
Goodrich Mudtrack hjólbarðar, bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð,
bakkskynjarar, aðgerðarstýri, hraðastillir, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, rafdrifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir hliðarspeglar
og fjarstýrðar samlæsingar.
WRANGLER RUBICON BENSÍN 273 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
WRANLGER RUBICON DÍSEL 200 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
d
35
” d
ek
k
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
JAFNRÉTTI Ísland fellur úr fyrsta
sætinu niður í það fimmta á lista yfir
þau lönd þar sem konur njóta jafn-
réttis og öryggis. Listinn var unninn
af Georgetown-háskóla og Friðar-
rannsóknarstofnun Oslóborgar og
nær til 167 landa. Síðasti listi var
birtur árið 2017. Noregur er nú besta
land heims fyrir konur að búa í, en
þar á eftir koma Sviss, Danmörk og
Finnland.
Tryggvi Hallgrímsson, sérfræð-
ingur hjá Jafnréttisstofu, segir of
snemmt að fullyrða að bakslag sé
komið í jafnréttisbaráttuna. Ísland
sé lítið flöktandi mengi og breyting-
ar séu fljótar að hafa áhrif á heildar-
niðurstöður. Þegar hafi verið tekin
stór skref í jafnréttismálum sem ekki
sé auðveldlega hægt að taka til baka.
„Þetta er þó áminning um að við
þurfum að vera vakandi,“ segir hann.
Þegar rýnt er í tölurnar eru það
einkum þrír þættir sem draga Ísland
niður. Atvinnuþátttaka kvenna,
öryggi og hlutfall á þjóðþingi.
Atvinnuþátttakan sem endur-
speglar atvinnutækifæri kvenna,
hrynur úr 77,2 prósentum niður í
68,6 en mælt er hlutfall allra kvenna
25 ára og eldri. Rímar þetta nokkuð
við nýlega rannsókn félagsfræðings-
ins Kolbeins Stefánssonar um að
konur yfir fimmtugu fari í auknum
mæli á örorku. Þrátt fyrir þetta hrap
er Ísland enn ofarlega á lista meðal
þróaðra ríkja.
Öryggið fellur einnig skarplega
niður um tæp 10 prósent, úr 79,6 í
69,9. Þessi tala var fengin úr könnun
Gallup þar sem konur og stúlkur,
eldri en 15 ára, voru spurðar hvort
þeim fyndist þær öruggar einar á
gangi um nótt nálægt heimili sínu.
Í þessum flokki er Ísland tæpum 20
prósentum á eftir Svisslendingum,
þar sem öryggið mældist mest á
Vesturlöndum.
Hvað öryggið varðar dettur
Tryggva einna helst í hug að sam-
félagsumræðan haf i áhrif og
#metoo-byltingin á vissan hátt. Ekki
sé óhugsandi að einstök mál, eins og
morðið á Birnu Brjánsdóttur sem
lagði undir sig fjölmiðlaumfjöllun
á löngum tíma, hafi áhrif. „Þetta er
vísan til áhyggna kvenna af að verða
fyrir ofbeldi. Við getum gert miklu
betur í úrvinnslukerfinu og rétti
brotaþola til að sækja mál. Út frá
þessu mætti spyrja hvort konur séu
farnar að vantreysta réttarkerfinu og
réttarvörslukerfinu,“ segir Tryggvi.
Þriðja þáttinn má skýra af alþing-
iskosningunum árið 2017 þegar
konum fækkaði um sex, úr 30 í 24.
Merkjanlegur munur varð í tveim-
ur öðrum þáttum rannsóknarinnar.
Farsímanotkun íslenskra kvenna
minnkaði úr 98,7 prósentum í 93,9,
en hún er er talin nauðsynleg fyrir
efnahagslega, stjórnmálalega og
samfélagslega þátttöku. Sá hluti sem
kom best út fyrir íslenskar konur
var efling jafnréttislöggjafar. Telja
þar inn í bæði reglur um jafnlauna-
vottun og löggjöf um bann við mis-
munun á vinnumarkaði og í þjón-
ustu. kristinnhaukur@frettabladid.is
Ísland ekki lengur á toppi lista
um jafnrétti og öryggi kvenna
Á nýjum alþjóðlegum lista yfir jafnrétti og öryggi kvenna fellur Ísland úr fyrsta sæti niður í það fimmta.
Áhrifin eru mest í atvinnuþátttöku og kynjaskiptingu á þjóðþinginu. Þá fellur öryggi skarplega. Sér-
fræðingur hjá Jafnréttisstofu segir of snemmt að fullyrða að bakslag hafi komið í jafnréttisbaráttuna.
Atvinnuþátttaka, öryggi og hlutfall á þjóðþingi hafði mest áhrif til lækkunar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
69,9 af hundraði kvenna
eldri en 15 ára töldu sig
öruggar einar á gangi um
nótt nálægt heimili sínu.
7
mánuðir hafa liðið síðan Bo-
eing 737 MAX-flugvélarnar voru
kyrrsettar. Icelandair gerir ekki
ráð fyrir að þær verði komnar
aftur í rekstur fyrr en í fyrsta lagi í
febrúarlok 2020.
TÖLUR VIKUNNAR 20.10.2019 TIL 26.10.2019
650
tonn eru smjörbirgðir MS. Þær
hafa ekki verið meiri í þrjú ár og
segir formaður Landssam-
bands kúabænda þetta gefa til
kynna að
mjólkur-
fram-
leiðsla sé
eilítið of
mikil í dag.
5 stjörnur voru vott-aðar Hótel Gríms-borgum, sem er fyrsta fimm stjörnu hótel Íslands. Alls
rúmar hótelið um
240 gesti.
157
lög voru send inn
til Söngvakeppni
Sjónvarpsins í
ár samkvæmt tilkynningu
frá RÚV. Eurovision fer fram í
Rotter dam í Hollandi á næsta
ári.
18
milljónir króna voru greiddar af
Seðlabanka Íslands í námsstyrk í
tengslum við starfslokasamning
fyrrverandi framkvæmdastjóra
gjaldeyriseftirlits
bankans.
Freyja Haraldsdóttir
fyrrverandi
varaþingmaður
fór fyrir Hæsta-
rétt til að leita
réttar síns til að
sitja námskeið
þar sem hæfni
umsækjenda
um fósturforeldri er
metin. Lögmaður Freyju var gagn-
rýninn á að NPA-aðstoðin sem
Freyja nýtur sé orðin að hindrun
fyrir fósturhlutverkið.
Harpa Elín Haraldsdóttir
íbúi í Santiago
hefur verið búsett
í höfuðborg
Chile í rúman
áratug. For-
dæmalausar
óeirðir brutust
út í borginni fyrir
stuttu. Hefur
þeim verið mætt með mikilli
hörku. Fram að því hafði Chile
verið með stöðugri ríkjum Suður-
Ameríku. Harpa Elín segir mikla
óánægju hafa kraumað undir
yfirborðinu. Kornið sem fyllti
mælinn var 5 króna hækkun á
miðaverði í neðanjarðarlestina
sem íbúar ódýrari svæða Santi-
ago treysta á. Hún segir ástandið
einkennilegt, friðsæld er í hennar
nærumhverfi en á sama tíma er
fólk virkilega óttaslegið.
Harpa Rún Kristjánsdóttir
ljóðskáld
hlaut Bók-
menntaverð-
laun Tómasar
Guðmundsson-
ar fyrir ljóða-
handritið Eddu.
Í tilkynningu
frá Reykja-
víkurborg segir að í ljóðum Eddu
megi greina sátt við gang lífsins
þótt hann sé sársaukafullur.
Þrjú í fréttum
Fósturforeldrar,
jarðgöng og
ljóðahandrit
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-A
5
5
C
2
4
1
6
-A
4
2
0
2
4
1
6
-A
2
E
4
2
4
1
6
-A
1
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K