Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 32
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103 Messuþjónahópur ásamt sóknarpresti. Í Hallgrímskirkju starfar fjöldi sjálf boðaliða sem taka þátt í starfi kirkjunnar með ýmsum hætti. Meðal þeirra eru messu- þjónar sem taka þátt í öllum messum kirkjunnar. Hlutverk þeirra felst meðal annars í að taka hlýlega á móti kirkjugestum og afhenda þeim sálmabækur og -skrár, lesa Biblíutexta og almenna kirkjubæn auk þess að aðstoða við útdeilingu í altarisgöngum. Starf- andi eru fimm hópar messuþjóna sem skipta á milli sín messum ársins. Þeir sem vilja taka virkan þátt í þessu starfi skrá sig í messuhóp og taka þátt í messum á nokkurra vikna fresti. Að vera í messuhóp er ætlað að efla fólk og gefa þeim sem vilja færi á að vera virkir þátttak- endur í kirkjunni. Öllum er velkomið að vera í messuþjónahópi og er áhuga- sömum bent á að hafa samband við presta Hallgrímskirkju. Lifandi þátttaka í helgihaldi Mikið verður um dýrðir á morgun þegar vígslu-afmæli Hallgrímskirkju verður fagnað með hátíðarmessu en þennan dag, 26. október, eru 33 ár frá vígslu Hallgrímskirkju. Að auki minnumst við þann 27. október 345. ártíðar Hallgríms Péturssonar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Messuþjónar aðstoða. Tónlistarflutningur: Mótettu- kór Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi þennan dag hafa þau Bogi Bene- diktsson og Rósa Árnadóttir. Strax eftir messuna verða afhent fyrstu eintök nýrrar þýð- ingar og útgáfu Passíusálmanna á ensku. Þýðandi er dr. Gracia Grindal, ljóða- og sálmaskáld, sem um langt skeið var prófessor í prédikunarfræðum við Luther- stofnunina í St. Paul, Minnesota. Þýðingin er gefin út af Hall- grímskirkju í samvinnu við Skálholtsútgáfuna með stuðningi Kristnisjóðs. Hún kemur út í veglegu kiljuformi með vísunum í steindan glugga Leifs Breið- fjörð yfir kirkjudyrum og form Hallgrímskirkju. Hönnuður bókarinnar er Halla Sólveig Þor- geirsdóttir. Að lokinni athöfn og kirkju- kaffi, rétt fyrir klukkan 13.00 mun Leifur Breiðfjörð glerlistamaður segja frá tilurð steinda glugg- ans yfir kirkjudyrum, táknum, merkingu, formum og litum. Hátíðarmessa á Hallgrímsdegi Hátíðarmessa verður í Hallgrímskirkju á morgun. Einar Karl Haraldsson, formaður útgáfustjórnar, segir bókina einstaklega vandaða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þjóðkirkjan hefur falið Hall-grímskirkju það verkefni að gefa Passíusálma Hallgríms Péturssonar út á erlendum tungu- málum. Ensk þýðing Arthurs Charles Cook hefur verið prentuð þrisvar sinnum en er nú uppseld,“ útskýrir Einar. „Það er alltaf ein- hver hluti af hinum mikla fjölda ferðamanna í kirkjunni sem er for- vitinn um skáldið sem Hallgríms- kirkja er helguð og vill kynna sér Passíusálmana. Og við erum svo heppin að spánný ensk þýðing var fyrir hendi.“ Þroskað ljóðskáld að verki Einar segir þau sem koma að verkefninu vera himinlifandi með þýðandann sem búi yfir viða- mikilli og dýrmætri þekkingu. „Það var hún sem valdi Hallgrím og það er mikill happafengur fyrir Hallgrímskirkju. Gracia Grindal var prófessor í prédikunarfræðum við Luther-stofnunina í Saint Paul í Minnesota og er sjálf ljóða- og sálmaskáld. Hún lýsir því í fjörlegum for- mála hvernig hún komst í kynni við Passíusálmana við rannsóknir á norrænum sálmum og kirkjutón- list. Þegar hún komst á eftirlaun gat hún helgað sig glímunni við Passíusálmana. Hún lagði greini- lega mikla alúð og vinnu í þýð- inguna og lýsir því hve samvinna hennar við Karl Sigurbjörnsson biskup, Sigurð Sævarsson tónskáld og Margréti Eggertsdóttur, rann- sóknarprófessor við Árnastofnun, skipti miklu máli fyrir útkomuna.“ Einar segir Grindal listilegan þýðanda sem hafi frumtextann í heiðri. „Það sést að þroskað ljóð- skáld er að verki. Hún nær því að vera nálæg frumtextanum og trú tónlistinni sem honum tilheyrir. Ljóðrænan tapast ekki í þýðingu eins og stundum vill verða. Og þetta er mikil kúnst því svo merki- lega vill til, eins og hún lýsir, að enskan, þetta orðríkasta mál allra tungumála, er tildæmis fátæk af rímorðum.“ Þá gæti hún þess einnig að textinn sé aðgengilegur sam- tímalesendum. „Gracia lýsir því hvernig hún forðast að nota orð sem hljóma ankannalega eða forn- yrðisleg í eyrum lesenda í dag. Til þess að nálgast íslenskuna leitar hún í angló-saxíska málhefð þar sem oft er að finna einfaldar og skýrar samsvaranir.“ Litrík og vönduð hönnun Líkt og í þýðingunni var mikill metnaður lagður í hönnun bókar- innar. „Útgáfustjórnin ákvað, að tillögu Eddu Möller hjá Skálholts- útgáfunni, að gefa ensku þýðing- una út í veglegri kilju sem í sjálfu sér er nýjung. Einnig var ákveðið að nota myndstef úr 9 metra háum steindum glugga Leifs Breiðfjörð, sem er yfir aðaldyrum Hallgríms- kirkju, í hönnun bókarinnar ásamt formum úr kirkjunni,“ segir Einar. „Tekinn er einkennislitur úr lita- pallettu glerlistaverksins. Í ensku útgáfunni er hann gulur sem er tákn vonar, visku og þróttar. Aðrir litir úr verkinu munu síðan ein- kenna væntanlegar útgáfur meðal annars á þýsku og dönsku. Hönn- uður bókarinnar er Halla Sólveig Þorgeirsdóttir.“ Einar segir Passíusálmana hafa mikla þýðingu fyrir íslensku þjóðina. „Þeir hafa verið gefnir út í næstum 100 útgáfum, oftar en nokkur önnur íslensk bók. Snilld þeirra felst í persónulegri einlægni skáldsins, meistaratökum á form- inu og djúpri andlegri visku. Þeir hafa verið fólki huggun, styrkur og vegvísir í meir en 350 ár.“ Einar greinir áhuga á bókinni meðal ferðafólks og segir hana enn fremur eiga fullt erindi við afkom- endur Vestur-Íslendinga. „Við höldum að þessi aðgengilega enska útgáfa eigi erindi til Vestur-Íslend- inga enda eru Passíusálmarnir sannarlega hluti af sameiginlegri arfleifð okkar og þeirra. Hún gæti líka þótt tilvalin til að gefa vinum erlendis. Hægt verður að panta hana gegnum heimasíðu Kirkju- hússins og á Amazon.“ Þess má geta að sendiherrar Bretlands og Kanada verða við- staddir útgáfuathöfn við lok messu í Hallgrímskirkju á morgun. Passíusálmarnir á ensku og í lit Engin bók hefur verið prentuð jafn oft hér á landi og Passíusálmarnir. Á morgun kemur út ný ensk þýðing og er það dr. Gracia Grindal sem á heiðurinn af henni. Einar Karl Haraldsson, formaður útgáfustjórnar, segir að hún sé fyrsta konan sem ræðst í þýðingu á Passíusálmunum. Snilld þeirra felst í persónulegri einlægni skáldsins, meistaratökum á form- inu og djúpri andlegri visku. Þeir hafa verið fólki huggun, styrkur og vegvísir í meir en 350 ár. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHALLGRÍMSKIRKJA 2 6 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 8 8 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 6 -9 6 8 C 2 4 1 6 -9 5 5 0 2 4 1 6 -9 4 1 4 2 4 1 6 -9 2 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.