Fréttablaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 8
50 prósent deyja þegar annað fólk er nálægt en skiptir sér ekki af. Café AUSTURSTRÆTI SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI AKUREYRI VESTMANNAEYJUM Komdu í kaff i FR AKKL AND 612 heimilislausir Frakkar létust árið 2018 samkvæmt góðgerðarsamtökunum Morts de la Ruse, sem skrásett hafa dauðsföllin á undanförnum árum. Árið 2017 létust 511 og er þetta mesta fjölgun sem mælst hefur á milli ára. Hér er einungis um staðfest tilvik að ræða en heilbrigðisyfirvöld í Frakklandi telja að tölurnar séu mun hærri. „Að eiga heimili er lífsnauð- synlegt,“ segir í tilkynningu sam- takanna. „Við sjáum glögglega hvaða áhrif það hefur á fólk að búa á götunni, bæði andlega og líkam- lega. Þegar fólk hefur búið lengi á götunni verður erfitt eða jafnvel ómögulegt að aðlagast venjulegu heimilishaldi að nýju.“ Mikil fjölgun dauðsfalla heimilislausra Heimilislaus maður á götum Parísar borgar. NORDICPHOTOS/GETTY Samtökin hafa greint þessar tölur enn frekar. Um 30 prósent heimilislausra Frakka þjást af alkóhólisma eða fíkn og stór hluti þeirra af öðrum veikindum eða fötlunum. Sjálfsvígstíðni er einnig mun hærri en hjá öðrum. Lífslíkur heimilislausra karla eru aðeins tæp 49 ár, á meðan heildar- meðaltalið í Frakklandi eru 82 ár. Karlar eru mikill meirihluti heim- ilislausra, 90 prósent. Á síðasta ári létust 13 heimilislaus börn. 50 prósent heimilislausra eru innflytj- endur og 50 prósent deyja þegar annað fólk er nálægt en skiptir sér ekki af. Eitt af kosningaloforðum Emm- anuel Macron fyrir forsetakosning- arnar árið 2017 var að allir Frakkar fengju þak yfir höfuðið. Það hefur ekki enn gengið eftir en Morts de la Ruse beita sér fyrir að öll úrræði verði nýtt, bæði neyðarsk ýli, skammtímahúsnæði og úrræði til lengri tíma. – khg JAPAN Shigeru Miyamoto, höf- undur tölvuleikjanna vinsælu um Maríóbræður, verður heiðraður af ríkisstjórn Japans á sunnudag, 3. nóvember, fyrir framlag hans til menningarinnar en það er einmitt svokallaður menningardagur lands- ins. Miyamoto, sem er 66 ára, er goð- sögn í tölvuleikjaiðnaðinum, sem hefur vaxið mikið á undanförnum árum og veltir meira en aðrar afþrey- ingargreinar, svo sem kvikmyndir og tónlist. Hann hóf feril sinn hjá Nin- tendo árið 1977 og hannaði meðal annars hinn geysivinsæla spilakassa- leik Donkey Kong árið 1981. Árið 1984 varð Miyamoto fram- kvæmdastjóri hönnunar hjá Nin- tendo, staða sem hann gegndi allt til ársins 2015 og starfar hann enn þá hjá fyrirtækinu. Þegar fyrsta heima- leikjatölva fyrirtækisins, NES, sló í gegn árið 1986 var það að miklu leyti leikjum Miyamoto að þakka, Super Mario Bros og The Legend of Zelda. Hinn ítalski pípulagningamaður Mario hefur síðan orðið einn helsti tákngervingur fyrir tölvuleikja- iðnaðinn í heild. „Við munum gera okkar allra besta til að fá fólk alls staðar í heiminum til að brosa,“ sagði Miyamoto þegar honum var tilkynnt um viðurkenn- inguna. Hann sagði einnig að öll hönnunardeildin hjá Nintendo ætti heiðurinn skilið. Nintendo lagði keppinauta sína í Sega að velli á níunda áratugnum en varð síðan undir í samkeppni við Playstation og Xbox. Nintendo hafði ekki burði til þess að keppa við fram- leiðendur þeirra, Sony og Microsoft, hvað búnað varðar. Hefur fyrirtækið því á undanförnum árum þurft að beita hugvitinu og setja öðruvísi tölvur á markað, svo sem Wii og Switch. – khg Japanir heiðra höfund Súper Maríó bræðra Við munum gera okkar allra besta til að fá fólk alls staðar í heiminum til að brosa. Shigeru Miya- moto hönnuður hjá Nintendo MEXÍKÓ Lögreglan í Mexíkóborg fann altari, sem að hluta til var gert úr mannabeinum, í athvarfi eitur- lyfjahrings. Unnið er að því að kom- ast að því hverjum beinin tilheyra með DNA-rannsóknum. Nýlega lögðu lögreglan og mexí- kóski herinn til atlögu gegn eitur- lyfjahring sem hafði aðsetur í Tepito- hverfinu. Meira en hundrað manns tóku þátt í aðgerðinni. Að sögn lögregluyfirvalda Mexíkóborgar fundust 42 höfuðkúpur, 40 kjálka- bein og 31 bein úr hand- eða fót- leggjum. Einnig fannst mannsfóstur í krukku í húsinu. 31 var handtekinn í aðgerðunum en dómari hefur þegar úrskurðað að 27 skuli sleppt. Altarið er talið minna mikið á ýmislegt sem tengist vúdúsið. Hann á upptök sín í Afríku en barst yfir Atlantshafið og er iðkaður á Karíba- hafseyjum og á meginlandi Amer- íku. Á myndum frá staðnum mátti sjá krossa, hnífa, grímur, og mynd af hyrndri geit sem oft hefur verið túlkuð sem holdgervingur kölska. Á þessu stigi er málið ekki rann- sakað sem morð því að þeir sem byggðu altarið hefðu getað komist yfir beinin á annan hátt. Ekki er þó útilokað að um manndráp sé að ræða, því of beldi tengt eiturlyfja- stríðinu hefur verið geigvænlegt og líkamsleifar fólks oft vanvirtar. - khg Altari úr mannabeinum hjá eiturlyfjahring Altarið sem fannst í Mexíkóborg. BRASILÍA Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, réðst á fjölmiðla í gær með gífurlegri heift eftir að greint var frá því að annar tveggja grunaðra morðingja Marielle Franco hefði komið við á heimili hans fyrir morðið. Franco, sem var vinstri- sinnuð stjórnmálakona í Rio de Janeiro, var skotin til bana þann 14.  mars á síðasta ári. Hún var einna þekktust fyrir að gagnrýna lögregluna fyrir að beita of beldi og drápum án dóms og laga. Þeir grunuðu eru báðir lögreglumenn. „Skítseiðin ykkar, drullusokkarn- ir ykkar! Þetta mun ekki festast við mig!“ sagði forsetinn í myndbands- upptöku á samfélagsmiðlasíðu sinni eldsnemma í gærmorgun, en hann var þá á hóteli í Sádi-Arabíu. Fréttin hafði birst í sjónvarpsþætt- inum Jornal Nacional á TV Globo kvöldið áður enn það er langlífasti og virtasti fréttaþáttur í Brasilíu. Alls var upptaka forsetans 23 mínútur og á köf lum æpti hann og var nálægt gráti. „Ég ætti ekki að missa stjórn á skapi mínu. Ég er forseti lýðveldisins. En ég játa að ég er kominn á fremsta hlunn,“ sagði Bolsonaro. „Það sem þið gerðuð var glæpsamlegt, að birta svona sögu á besta tíma í sjónvarpinu.“ Sakaði hann jafnframt fréttamennina um að vera óþjóðrækna. Í frétt Jornal Nacional kom fram að hinum grunaða, Elcio Queiroz, hefði verið hleypt inn á heimili forsetans verðandi klukkan 5.10 sama dag og Franco var myrt. Bols- onaro var þá þingmaður í Rio de Janeiro fylki og bjó í glæsihýsi við ströndina. Við hliðið sagði Queiroz verðinum að hann ætlaði að hitta Bolsonaro en hinn síðarnefndi var þá í erindagjörðum í höfuðborginni Brasilíu. Ónefndur maður, sem vörðurinn taldi vera Bolsonaro, sagði verðinum að hleypa Quei- roz inn. Einhverra hluta vegna ók Queiroz þá í burtu og fór að heimili Ronnie Lessa, sem einnig er grun- aður um morðið. Bolsonaro lét ekki aðeins gamm- inn geisa á samfélagsmiðlum heldur beitti hann embættismönnum sínum fyrir sig. Augusto Heleno, herforingi og yfirmaður öryggis- mála, sagði í gær að fréttin hefði verið tilraun til að hvetja til upp- þota og of beldis, líkt og sjá mætti í Chile og f leiri löndum rómönsku Ameríku. Þá sagði Frederick Wassef, lögmaður forsetans, að fréttin væri hreinn uppspuni. Stjórnarandstæðingar í Brasilíu hafa hins vegar kallað eftir rann- sókn á málinu og hneyksluðust jafn framt á framkomu forsetans í myndbandinu. kristinnhaukur@frettabladid.is Reyndi að heimsækja forseta Brasilíu skömmu fyrir morðið Forseti Brasilíu veittist að fjölmiðlum með geigvænlegri heift eftir að greint var frá því að grunaður morðingi andstæðings hans í stjórnmálum hefði komið á heimili hans skömmu fyrir morðið. Í löngu myndbandi æpti hann og blótaði blaðamönnum. Stjórnarandstæðingar vilja rannsókn á málinu. Bolsonaro tók myndbandið upp á hótelherbergi í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu. NORDICPHOTOS/GETTY Skítseiðin ykkar, drullusokkarnir ykkar! Þetta mun ekki festast við mig! Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 0 -A F 5 4 2 4 2 0 -A E 1 8 2 4 2 0 -A C D C 2 4 2 0 -A B A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.