Fréttablaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 12
TILVERAN Þau sýna líka betri árangur í námi og þetta dregur úr hættu á því að þau þrói með sér áfengis- og vímuefnavanda og dregur úr hegðunarerfið- leikum. Sigrún Daníelsdóttir Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@frettabladid.is Kjarna þættir félagsfærni „Það er þekking og færni í því að þekkja og skilja eigin tilfinning- ar, þekkja og skilja tilfinningar annarra, geta sett sig í spor annarra, geta átt farsæl sam- skipti við aðra, kunna að mynda og halda vináttusamböndum, kunna að leysa ágreining á farsælan hátt, kunna að taka ábyrgar ákvarðanir. Þetta eru alls konar hlutir sem algjörlega er hægt að kenna og þjálfa rétt eins og aðra færni,“ segir Sigrún. Hvað er félags- og tilfinningafærni? Þetta er viðamesta yfirlit yfir þennan þátt í skóla-starfi sem hefur farið fram í skólastarfi hér á Íslandi,“ segir Sigrún Daníelsdóttir, verkefna- stjóri geðræktar hjá Embætti land- læknis, um skýrslu embættisins um landskönnun á geðrækt í skólum sem kom út í gær. Skýrslan segir frá niðurstöðum stórrar könnunar sem lögð var fyrir í öllum framhaldsskólum landsins og tæplega 70% allra leik- og grunnskóla. Markmið hennar er að fá yfirlit yfir stöðu geðræktar, forvarna og stuðn- ings við börn og ungmenni í íslensku skólakerfi. Þetta er gert til að skoða hversu vel vettvangur skólakerf isins nýtist til að ef la geðheilsu barna og ungmenna og koma auga á þau sem þurfa aðstoð. „Skólinn er eini vettvangur- inn sem við höfum yfir að ráða til að ná til allra barnanna í sam- félag inu og þar leynast því dýrmæt t æ k i f æ r i . Æ s k u á r i n er u mik i l- vægasti mót- unartími geðheils- unnar og því brýnt að ná til barna á þe s su m t íma ,“ segir Sigrún. Eins sjálfsagt og íþróttir Eitt af þv í sem skýrslan leiðir í ljós er að ekki er verið að kenna félags- og tilfinningafærni með markvissum hætti í skólakerfinu og þannig er farið á mis við tækifæri til að byggja upp geðheilsu barna og unglinga. Þessum þætti er mest sinnt í leikskólum en svo minnkar áherslan eftir því sem líður á skólagöngu barna. Framhaldsskólar stóðu bæði leik- og grunnskólum talsvert að baki þegar kom að kennslu í félags- og tilfinningafærni, mati og stuðningi í skólastarfi og samstarfi við for- eldra. Sigrún segir að það ætti að vera jafn sjálfsagt að kenna félags- og tilfinningafærni og skólaíþróttir. Kennslan kalli enn fremur á fag- lega sérhæfingu rétt eins og íþrótta- kennsla. „Það er margt sem okkur finnst ástæða til að kenna í skólakerfinu. Við kennum börnum að synda, kennum þeim íþróttir og að athafna sig í eldhúsinu en við höfum ekki fundið neinn sambærilegan vett- vang fyrir reglubundna kennslu í félags- og tilfinningafærni, þrátt fyrir að þetta sé grundvallarfærni fyrir farsæla skólagöngu,“ segir Sig- rún. Fram kemur í skýrslunni að rúmur helmingur leikskóla vinnur eftir heildstæðri áætlun um kennslu hegðunar-, félags- og tilfinninga- færni fyrir alla aldurshópa og eru markmið fyrir slíka kennslu til- greind í skólanámskrá. Það sama má segja um rúm 40% grunnskóla en tæpur þriðjungur hefur tilgreint markmið í skólanámskrá. Í fram- Félags- og tilfinningafærni er grundvallarfærni fyrir farsæla skólagöngu, sem þarf að fá meiri fókus í skólakerfinu. Í gegnum skóla er hægt að ná til allra barna í samfélaginu og efla geðheilsu en æskuárin eru mikilvægasti mótunartíminn hvað hana varðar. haldsskólum er hlutfallið aðeins um einn af hverjum fjórum en meirihluti skól- anna (55-60%) segir þetta að litlu eða engu leyti til staðar. Misjafnlega stödd Börnin koma misjöfn inn í skólakerfið hvað varðar félagsfærni rétt eins og aðra færni. „Sum eru þegar orðin læs þegar þau byrja í grunnskóla á meðan önnur eiga í erfiðleikum með að ná tökum á lestri. Við eigum að gera ráð fyrir því að það sé mikilvægt fyrir framtíðina að öll börn nái tökum á lestri hvort sem þau eru fær í því frá upp- hafi eða ekki. Og það er ekkert sem rökstyður að við skulum ekki líta sömu augum á félags- og tilfinn- ingafærni sem er grund- vallarfærni fyrir farsæla skólagöngu og farsælt líf,“ segir Sigrún. „Fólk er oft komið langt á fullorðinsár og er ekki enn þá orðið læst á eigin tilfinningar og á erfitt með að skilja sjónarmið annarra eða leysa ágrein- ing. Það er eins og við höfum gert ráð fyrir að þessi færni sé bara með- fædd en hún er það ekki frekar en margt annað. Þetta er hæfni sem er hægt að þjálfa og kenna og það er hvergi betri vettvangur til þess en í skólakerfinu, þar sem börn eru að æfa sig í samskiptum allan dag- inn,“ segir Sigrún og útskýrir nánar. „Við vitum það út frá rannsókn- um að þegar börn fá markvissa kennslu í félags- og tilfinninga- færni yfir margra ára tímabil í sínu námi þá eykst færni þeirra á þessu sviði. Þau sýna líka betri árangur í námi og þetta dregur úr hættu á því að þau þrói með sér áfengis- og vímuefnavanda og dregur úr hegð- unarerfiðleikum. Við höfum svo sannarlega rannsóknir sem sýna okkur að þessi kennsla ber árangur ef hún er fagleg og markviss.“ Þarf kjarnafókus Sigrún segir að víða sé verið að gera mjög góða hluti í skólakerfinu. „En við erum alls ekki að tækla þennan þátt jafn kerfisbundið og vand- lega eins og við erum að vinna með lestrar- eða stærðfræðikennslu. Punkturinn er sá að þetta sé það mikilvæg færni að hún þurfi að fá kjarnafókus í skólastarfi. Til þess að skólakerfið geti gert það þarf margt að koma til. Við þurfum að tryggja að það sé til námsefni fyrir öll skóla- Lykilfærni fyrir lífið Fé lag s- og tilfinningafærni Sjá lfs vit und Sjálfstjórn FélagsvitundÁ by rg ák va rð an at ak a Samskiptafærni Samstarf við foreldra mikilvægt Á öllum skólastigum er litið á foreldra sem mikilvæga samstarfsaðila, tekið vel á móti ábendingum þeirra varðandi skólastarfið og unnið úr þeim með skipulegum og lausnamiðuðum hætti, samkvæmt niður- stöðum könnunarinnar. Eingöngu er átt við foreldra nemenda undir 18 ára aldri. Aftur á móti er afar sjaldgæft á öllum skólastigum að foreldrar taki virkan þátt í mótun stefnu og aðgerða innan skólans á sviði hegðunar, félags- og tilfinningafærni og nokkur misbrestur er á því í grunn- og framhaldsskólum að foreldrar séu upplýst- ir um mikilvæg atriði eins og niðurstöður kannana á líðan og skólabrag og verklag í sambandi við stuðning við nemendur. Könnunin leiðir einnig í ljós mikinn mun eftir skólastigum þegar kemur að virku samstarfi og samskiptum við foreldra. Í nánast öllum leik- og grunnskólum eru haldin regluleg foreldrasamtöl um nám, líðan og félagslega stöðu barnanna í skólanum en þetta á aðeins við um 40% framhaldsskóla. Þegar spurt er hvort skólinn leggi sig sérstaklega fram um að ná til foreldra nemenda sem búa á einhvern hátt við jaðarsetta stöðu er því svarað játandi í 40% leik- og grunnskóla á móti 20% framhalds- skóla. Mun færri svarendur í framhaldsskólum segja einnig áherslu lagða á að hafa strax samband við foreldra ef áhyggjur vakna af líðan eða velferð nemenda undir 18 ára aldri. Í nánast öllum leik- og grunn- skólum er þessu svarað játandi en aðeins í 67% framhaldsskóla. Eins fær starfsfólk í framhaldsskólum mun minni stuðning og ráðgjöf frá stjórnendum og samstarfsfólki varðandi farsælt samstarf við foreldra. Framhald á síðu 14 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 0 -9 6 A 4 2 4 2 0 -9 5 6 8 2 4 2 0 -9 4 2 C 2 4 2 0 -9 2 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.