Fréttablaðið - 31.10.2019, Page 34

Fréttablaðið - 31.10.2019, Page 34
Þegar maður er búinn að safna svona mörgum Airwaves-árum í röð tímir maður ekki að slíta keðjuna,“ segir Emmsjé Gauti sem stígur tvisvar á svið á Iceland Airwaves að þessu sinni, þrettánda árið í röð. „Talan þrettán hefur engin áhrif á mig; ég er ekki vitund hjátrúar- fullur,“ segir hann og skellir upp úr. Áður en sólóferill Emmsjé Gauta fór á flug fékk hann dýrmæt tækifæri á Iceland Airwaves. „Ég ólst upp á Airwaves sem er frábær stökkpallur fyrir óreynda tónlistarmenn að stíga út fyrir þægindarammann og koma fram á almennilegum sviðum. Hátíðin er menningarviðburður sem Íslendingar mega ekki missa frá sér og líka mikilvægur vettvangur sem gefur listamönnum tækifæri til að kynnast blaðamönnum stórblaða í tónlistarheiminum sem og for- stjórum sem hafa áhrif í alþjóðlegu tónlistarsenunni,“ segir Gauti og er fullur tilhlökkunar fyrir hátíðinni fram undan. „Á Airwaves myndast orka sem fyrirfinnst hvergi annars staðar. Hún stafar að hluta til vegna þess að áhorfendaskarinn er blanda af einlægum músíkunnendum og túristum. Fyrir mig er það enn meira krefjandi. Ég spila endalaust af tónleikum hér heima á ári hverju og er því farinn að lesa stemning- una nokk vel en Airwaves fylgir meiri óvissa og tilheyrandi stress sem umbreytist í jákvæða orku og drifkraft því ég syng á íslensku og það er mikil áskorun að ná upp sem mestri stemningu á giggi þar sem ekki tala allir íslensku.“ Spilar út öðruvísi korti Á þrettán árum hefur Emmsjé Gauti komið fram á fleiri en hundrað Airwaves-tónleikum, bæði On- og Off-Venue. „Airwaves er snilld og ég man ekki eftir leiðinlegu Airwaves-giggi því öll hafa þau haft sinn sjarma. Eitt eftirminnilegasta giggið var Off-Venue í jarðböðunum í Mývatnssveit. Þar var eitthvað mjög skemmtilegt í gangi, og síðan hef ég farið í tvígang norður í jarð- böðin til að spila fyrir fólk sem svamlar um ofan í náttúruauðlind, sem er frekar ruglað fyrirbæri til að gigga við,“ segir Gauti og hlær við. Tímir ekki að slíta keðjuna Emmsjé Gauti er ókrýndur konungur íslensku rapp- og hipphopp-senunnar. Hann kemur tvisvar fram á Iceland Airwaves í ár, bæði On- og Off-Venue, og segist ekki hjátrúarfullur 13. árið í röð. Emmsjé Gauti gæðir sér hér á uppáhaldshamborgaranum sínum, hamborg- ara nr. 1, í Hagavagninum sínum við Vesturbæjarlaug. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Síðasta platan kemur út í lok 2012 og við erum að leggja lokahönd á plötu núna. Við erum búin að vinna lengi að þess- ari plötu og hún er loksins að verða tilbúin,“ segir Sigríður. „Það er rosa sigur fyrir okkur og ákveðinn léttir.“ Hún segir nýju plötuna að vissu leyti frábrugðna en þó rök- rétt framhald af fyrri plötu. „Ég myndi segja að það væri lógískt framhald af síðustu plötu en það gerist auðvitað ýmislegt hjá fólki á svona löngum tíma sem hefur óneitanlega áhrif,“ útskýrir Sigríður. „Hún er ekki úr einhverri allt annarri átt en auðvitað eru ein- hverjar breyttar áherslur sem aðrir sjá kannski betur en við. Við nátt- úrulega lifum með efninu og sjáum ekki stórar breytingar en vissulega ákveðinn þroska í einhverja átt.“ Áhrif úr ýmsum áttum Það er óhætt að fullyrða að með- limir Hjaltalín séu fjölhæfir en þau hafa, samhliða vinnslu á nýju plöt- unni, verið önnum kafin við ýmis önnur tónlistarverkefni síðastliðin ár. Aðspurð hvort greina megi áhrif úr þessum ólíku áttum í nýja efninu segja þau að svo sé hiklaust. „Engin spurning. Það hefur áhrif eins og allt annað, fólk þroskast og fullorðnast og breytist sjálft, í sama takti og sem músíkantar. Við erum náttúrulega að vinna í ýmsum geirum,“ segir Sigríður. Hjörtur tekur undir þau orð. „Á tímabili var Högni í GusGus og þá komu dálítil raftónlistaráhrif sem má að einhverju leyti heyra á nýju plötunni, svo var ég í námi í Hollandi frá 2011-2015, þá vorum við byrjuð á plötunni og þá fór ég meira að pæla í lagasmíðum, sem ég hafði ekkert endilega mikið verið í áður,“ segir Hjörtur. „Svo hefur Viktor verið mjög virkur úti í Berlín, verið að semja kvikmynda- tónlist og vinna með mörgum. Hann hefur verið með mjög flottar strengjaútsetningar á plötunni. Þetta hefur allt skilað sér.“ Hjaltalín kom fyrst fram á Airwaves árið 2006 í Þjóðleik- húskjallaranum. Bæði Sigríður og Hjörtur segja að það hafi verið einna eftirminnilegustu tónleikar hljómsveitarinnar á þessari hátíð. „Við komum fyrst fram á Airwaves þegar við vorum að byrja í þessari mynd sem við erum í í dag árið 2006 í Þjóðleikhúskjall- aranum. Það markaði eiginlega upphaf hljómsveitarinnar í þeirri mynd sem hún er í nú. Þá vorum við með þessi klassísku hljóðfæri og þá kom ég inn í fyrsta skipti. Við getum svolítið sett það sem mælistiku á hljómsveitina,“ segir Sigríður. „Við höfum oft átt töfrandi stundir á hátíðinni þó að fyrsta skiptið sé líklega alltaf eftirminni- legast,“ segir Hjörtur. Þá segir hann hljómsveitina afar þakkláta í garð hátíðarinnar sem hafi mikla þýðingu fyrir tónlistarfólk hér á landi. „Við erum þakklát fyrir að fá tækifæri til að spila á þessum vett- vangi, við höfum upplifað mikla vinsemd í okkar garð og þykir vænt um það, þetta er svona upp- skeruhátíð þar sem maður getur séð hvað aðrir eru búnir að vera að gera og er bara mikils virði.“ Ný plata eftir sjö ár Hljómsveitin Hjaltalín kemur fram í Listasafninu á fimmtudagskvöldið. Sigríður Thorlacius og Hjörtur Ingvi Jóhannsson segja að meðal annars verði flutt ný lög. Hjaltalín leggur nú lokahönd á nýja plötu. MYND/KÁRI BJÖRN ÞORLEIFSSON Tónlistarkonan Georgia er fædd og uppalin í norð-vesturhluta London. Hún leikur á fjölda hljóðfæra og spilar, semur og tekur upp alla tónlistina sína sjálf. Georgia spilar á Iceland Airwaves í Listasafni Reykjavíkur á fimmtudagskvöld kl. 20.50. Georgia gaf út sína fyrstu plötu árið 2015. Hún var tekin upp í heimastúdíói og vakti strax athygli fyrir frumleika, en það varð strax ljóst að Georgia væri engri lík. Hún hefur svo fylgt breiðskífunni eftir með nokkrum smáskífum, en sú nýjasta, Never Let You Go, kom út í september. Þann 10. janúar er svo von á nýrri breiðskífu, sem nefnist Seeking Thrills. Í tónlist Georgia blandast saman ýmis áhrif og hún er hröð, létt, tilfinningaþrungin og melódísk partítónlist sem ber keim af klúbbamenningu níunda og tíunda áratugarins. Það munaði samt litlu að Georgia hefði aldrei orðið tón- listarkona. Hún var fengin til liðs við knattspyrnulið Queens Park Rangers þegar hún var barn og endaði með því að spila með nokkrum stúlkum sem enduðu í enska landsliðinu. Georgia fór seinna til kvennaliðs Arsenal en eftir að þjálfari hennar lést hætti hún í knattspyrnunni og fór að starfa sem trommari. Hún tromm- aði svo meðal annars fyrir Kwes og Kate Tempest áður en hún hóf sólóferilinn. Frumleg og fjörleg Airwaves er snilld og ég man ekki eftir leiðinlegu Airwa- ves-giggi því öll hafa þau haft sinn sjarma. Hann mælir með því að fólk taki sér rölt í bænum og detti inn á óvænta Off -Venue-tónleika. „Off -Venue er yndislegur partur af Airwaves og gefur hátíðinni enn meiri vigt. Mér þykir fagurt að fjöl- skyldufólki sé sinnt á sama tíma og haldin eru viðameiri gigg á börum. Sjálfum þykir mér skemmtilegast að sjá tónlistarmenn sem ég veit ekkert um og hef oftsinnis labbað inn á lítið Off -Venue snemma kvölds þegar enginn er kominn en það eru oft bestu giggin. Að sama skapi þykir mér einstakt að spila fyrir alla flóru fólks og börnin líka á Off -Venue-tónleikum þar sem áhorfendur voru ekki endilega á leið á tónleika en rráku inn nefið og skemmtu sér hið besta.“ Emmsjé Gauti kemur fram On- Venue í Gamla bíói á fimmtudag kl. 23.20 og Off-Venue á Slippbarnum Marina á föstudag kl. 17.30. „Það verður öllu tjaldað til, eins og alltaf. Margar hreyfingar og gimmik hafa orðið til á Airwaves og fólk má búast við því að við stokkum upp. Airwaves er enda vettvangur til að spila út öðruvísi korti og ég er spenntur fyrir því.“ Enska tónlistarkonan Georgia hefur vakið mikla athygli fyrir frumlega partítónlist sem hún blandar saman úr ýmsum ólíkum áhrifum. Við höfum oft átt töfrandi stundir á hátíðinni þó að fyrsta skiptið sé líklega alltaf eftirminnilegast. Hjörtur Ingvi Jóhannsson Georgia spilar á Lista- safni Reykjavíkur á fimmtudags- kvöldinu. 6 ICELAND AIRWAVES 3 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 0 -7 D F 4 2 4 2 0 -7 C B 8 2 4 2 0 -7 B 7 C 2 4 2 0 -7 A 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.