Úti - 15.12.1936, Qupperneq 21
ÚTI
21
Sviffflia
Eftir Agnar E. Kofoed-Hansen.
Svifflug er íþrólt hinnar þróttmiklu og
liugprúðu æsku; æskunnar, sem kann að
gieina rjett frá röngu, holt frá óhollu og
fagurt frá ófögru. Jeg flýg eins og fugl-
inn, var mín fyrsta hugsun er jeg svif-
flaug í fyrsta skipti, jeg var snortinn af
fegurð svifflugsins á samri stundu. Jeg
i>arst um loftið borinn af ósýnilegum
örmum, alt var kyrt og hljótt, liinn þýði
niður loftsins var það eina sem rauf þessa
þögn — jeg; var laus við allan hávaða og
allan hristing — jeg var gagntekinn af
fpf/uvð flugsins.
Þegar jeg heyrði um hinn mikla áhuga
sem var vaknaður fyrir svifflugi hjer
heima, ákvað jeg á samri stundu, að jeg
skyldi gera mitt til þess að gefa löndum
mínum kost á að verða þessarar fegurð-
ar aðnjótandi. Mjer datt í hug, að skáta-
fjelögin hlytu að vera ágæt til þess að
koma skipulegri svifflughreifingu af stað;
þau höfðu fjölda röskra manna á að
skipa, unga menn vana iþróttum og úti-
veru.
En þátttaka skátanna varð þó ekki nóg
til þess að hægt væri að byggja upp starf-
ið með þeim eingöngu.
Gerði jeg þá tilraun til þess að safna
þeim Reykvikingum saman í eina heild,
sem liefðu áhuga fvrir málinu og
vildu vinna að eflingu svifflugs á ís-
landi á heilbrigðum grundvelli. Var þá
stofnað Svifflugfjelag íslands, sem þegar
hefir náð ágætum árangri með starfi sínu.
Kjarni fjelagsins eru 30 samhuga og sam-
hentir, svokallaðir virkir fjelagar, ungir
menn af öllum stjettum og á aldrinum
18—30 ára.
Svifflug má með rjettu kalla íþrótt
íþróttanna, en það eru líka fáar íþróttir,
sem krefjast jafnmikils af iðkendum sín-
um. Meðlimir fjelagsins verða að ganga
að starfinu með fullu fjöri. Fjelagið get-
ur ekki notað menn, sem mæta á öðrum
hvorum fundi og láta ekki sjá sig á flug-
hyggingarverkslæðum fjelagsins; með-
limirnir þurfa fyrst og fremst að vera
góðir fjelagar.
Jeg ætla hjer að lýsa fyrsta hluta náms-
ins, frá því að meðlimurinn eða nemend-
inn gengur inn í fjelagið og þar til liann
hefir lokið A prófi.
Aður en sjálfar flugæfingarnar hefj-
ast, eru nem. kend ýms alm. flugvísindi;
svo sem flugeðlisfræði, veðurfræði og
alm. flugfræði, þannig að hann að kensl-
unni lokinni hafi hlotið þann flug-
þroska, sem hverjum svifflugmanni er
nauðsynlegur. Hann veit þá hverju hann
á að svara, þegar fjelagar spyrja hann
Þessi mynri sýnir fyrsta svifflugið í
Danmörku, er fór fram síðastliðið vor.