Úti - 15.12.1936, Page 28

Úti - 15.12.1936, Page 28
28 ÚTI Blaðamál íslenskra skáta Eitl af þeim málnm, sem stjórn BÍS hefir borið ittjög fyrir brjósti, er að koma blaðamálum ísl. skáta í gotl horf. Stjórnin bað því Jón Oddgeir Jónsson að hafa framsögu um þetta málefni á aðal- fundi BÍS, sem haldin var á siðastliðnu sumri, og koma fram með tillögur um, hvernig þessum málum væri best borgið. Framsögumaður hóf mál sitt með þvi að segja frá afdrifum hinna ýmsu skáta- blaða, sem gefin hafa verið út hjer á landi, en benti jafnframt á fálmið og skipulagsleysið, sem auðkent hefði flest- ar þessar blaðaútgáfur. Taldi hann brýna þörf á því, að nú yrði úr þessu bætt, með því að koma þeim skátablöðum, sem enn lifa, undir sameiginlega stjórn. Bar hann síðan fram tillögu um það, að stjórn BÍS semdi nú þegar við stjórn skátafjel. Væringjar i Reykjavík, um að öðlast útgáfurjettinn að „ÚTI“ og við stjórn skátafjel. Ernir, um útgáfurjettinn að „Skátanum“. Þegar þeir samningar yrðu um garð gengnir, yrðu bæði þessi blöð, ásamt Skátablaðinu, sem BÍS nú gefur út, látin öll vera undir stjórn BÍS og koma út sem hjer segir: Skátablaðið (18 bls.), sem stjórn BÍS hefir gefið út i eitt og hálft ár, kæmi út á sama hátt og áður, tvö blöð á ári og yrði alment skátaldað og tilkynninga- blað stjórnarinnar. Úti (40 bls.), sem skátafjel. Væringjar liafa gefið út, kæmi einnig, eftir sem áð- ur, einu sinni á ári, s’em alment drengja- blað, en fjallaði þó nokkuð um skátamál. yrði það haft vandað að frágangi og selt sem mest, meðal almennings til út- breiðslu skátahreyfingunni. Skátinn (8 bls.), sem skátafjel. Ernir liafa gefið út mánaðarlega, sem alment skátablað, kæmi út 6—8 sinnum á ári, í sama broti og áður, og yrði einungis ætl- að foringjum og R. S.-skátum. Ennfremur lagði hann til, að sami maður yrði ekki ritstjóri, nema að einu blaði, til þess að ofldaða ekki einn mann störfum. Aftur á móti yrði einum manni falinn útgáfustjórn allra blaðanna, og væri stjórn BÍS heimilt að greiða einhver laun fyrir það starf, enda sæi sá maður um dreifingu blaðanna, innheimtu og að afla blöðunum auglýsinga. Framsögumaður sýndi framá að út- gáfustarfsemi þessi mundi geta borið sig fjárhagslega, ef vel væri á haldið. Hvatti hann fundarmenn til að ræða málið sem best og koma því á fastan grundvöll nú þegar. Marg'ir tóku til máls, og mátti fljótt hevra, að meiri hluti fundarmanna voru fylgjandi tillögu framsögumanns, um að BÍS hefði á hendi útgáfu allra is- lenskra skátablaða. Einrí fundarmanna (Fr. Michelsen) vildi þó láta „Úti“ falla úr hópi þeirra blaða, sem B. I. S. gæfi út, en láta í þess stað „Skátablaðið“ koma þess oftar. Ekki átti sú tillaga hylli fund- armanna. Hjá nokkrum fundarmanna kom það fram, að þeir óttuðust, að svo víðtæk blaðaútgáfa yrði fjárhagslegur baggi á BÍS. Um það var allmikið rætt. Að lokum kom fram tillaga um það, að fundurinn kysi þriggja manna nefnd til þess að athuga nánar kostnaðarhlið máls- ins og fleira. Skjddi sú nefnd skila áliti sínu á framhaldsfundi, kveldið eftir. Til- lagan var samþykt og kosnir voru i nefndina þeir, Gunnar Andrew, Axel Sveins og Jón Oddgeir Jónsson. Nefnd þessi skilaði ákveðnum tillög- um um málið næsta kvöld, og voru þær samhljóða tillögum framsögumanns (J. O. J.), um að öll blöðin skyldu rekin und- ir stjórn BÍS, en til þess að binda það ekki við að gefa út öll þessi blöð áfram, ef halli skyldi verða á rekstrinum, lagði Framh. á bls. 32.

x

Úti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.