Úti - 15.12.1936, Page 34
24
ÚT I
Starfsemi fullorðnu skátanna
Ein af hinum merkilegri starfsgreinum skátafjelagsskaparins, er starf-
semi fullorðnu skátanna „Rover Scouts“, eins og Baden Powell hefir
nefnt þá, en hann liefir lagt grundvöllin að starfsháttum þeirra, í hók
sinni „Rovering to Success“, er út kom árið 1922. Um allan heim eru
skátar þessir nefndir R. S. (skammstöfun fyrir Rover Scout) og eru
þeir einnig nefndir svo hjer.
Til þess að geta orðið R. S. þarf skátinn að vera orðinn 18 ára að aldri,
hafa verið skáti vissan tíma og hafa lokið 2. fl. prófi. Ennfremur að hafa
sýnt dugnað í starfi sínu, og vera fús á að starfa áfram í anda skáta-
laganna.
Hjer var fyi’sti R. S. flokkurinn stofnaður þ. 23. nóv. 1928, innan Vær-
ingjafjelagsins. Foringi þessa elsta flokks, eða flokka, því þeir eru nú
orðnir fjórir og' nefnist því sveit, er Bendt D. Bendtsen. Hann gekk í
Væringjafjelag'ið árið 1926 og hefir starfað síðan, af mikilli ósjerplægni,
fyrir málefnum skáta.
Ritstj. „Úti“ fór fyrir nokkru á fund B. D. B. og hað hann að segja
lesendum blaðsins eitthvað frá starfsháttum R. S„ þvi lítið hefir verið
um þá skrifað i ísl. sliátablöðum. Honum fórust svo orð:
„Æfingar vorar eru talsvert frábrugðn-
æfingum yngri skátanna. Eins og kunn-
ugt er, eiga piltarnir að liafa hlotið al-
menna skátamentun, þegar þeir fá að
verða R. S. Þessvegna förum við litið inn
á það svið, að kenna flokksmönnum vor-
um slíkt, nema lijálp í viðlögum, því það
eru fræði, sem ávalt þarf að endurnýja.
Vjer höldum sameiginlega fundi tvisvar
i mánuði og eru það í senn bæði fræðslu
og skemtifundir. Stundum hera þessir
fundir keim af málfundum, því vjer
þjálfum oss í því að geta talað og hugsað
um ýms málefni er varða sjálfa oss,
þjóðfjelag vort og alheimsmál.
Höfuðstarf R. S. er þó einkum tvens-
konar. Aðalverkefnið er að starfa að vel-
gengi skátafjelagsskaparins. T. d. með
því að stofna nýja skátaflokka, eða sveit-
ir, innan fjelagsins og jafnvel hjálpa til
þess að stofna ný fjelög í nálægum kaup-
stöðum. Ennfremur með því að aðstoða
yngri skátana í kenslu, vera prófdómarar
við sjerpróf og fl„ flytja erindi á sveita-
fundum þeirra og svo framvegis.
Það er mikilsvert atriði, að eldri skát-
arnir aðstoði hina yngri og starfi með
fullu fjöri. Slíkt heldur jafnvægi i fje-
lagsskapnum og eykur möguleika hans.
Hitt verkefni R. S.-flokkanna er útá-