Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 35

Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 35
Ú T I 35 við. T. d. allskonar hjálparstarfsemi, ein- staklingum og því opinbera til handa. Þráfaldlega aðstoða þeir lögregluna í því, að leita að fólki, sem tapast hefir, hafa á hendi gæslu á opinberum stöðum, t. d. íþróttasvæðum, við ýmsar hátíðar og fl. Víða geta skátar lika verið til aðstoðar slökkviliðum bæjanna,' starfsemi Slvsa- varnarfjelagsins og fl. En slíkri starfsemi eiga R. S.-flokkarnir ekki að byrja á, nema liafa lært og þaulæft það áður. Víða liafa R. S., samkv. beiðnum lækna, gefið blóð til sjúklinga, sem þurfa á blóði að halda. T. d. líður varla enginn mán- uður svo, að einn eða fleiri hinna full- orðnu skáia í Revkjavík, ekki gefi blóð til sjúklinga á Landspítalanum. Þá ættu R. S. flokkar, einkum útum land, þar sem mikil sjósókn er, að halda námskeið fyr- ir sjómen og fleiri í einföldustu atriðum í hjálp í viðlögum og einkum Ufgun drukknaðra. Orðtak allra skáta er: Vertu viðbúinn. Þetta orðtak helgum vjer einnig starf- semi eldri skátanna. Fjelagar, lærum því og þjálfum oss, svo vjer getum ávalt ver- ið viðbúnir. Að lokum langar mig til þess að segja frá fyrirhugaðri ferð R. S.- flokkanna í 1. R. S. deild Væringja, að sumri kom- andi. Vjer höfum ákveðið að taka á leigu einn stóran mótorbát og fara með hon- um um Rreiðafjörð, alla Vesfirði og máske viðar. Ætlum vjer að koma í land, þar sem vjer getum skoðað merka sögu- staði, fagurt landslag og heimsótt skáta i kaupstöðunum. Jafnframt langar oss til að læra svo- lítið í sjómensku, með því að taka að oss öll störf um borð og hafa því ekki með annað af áhöfn bátanna en skipstjóra, stýrimann og vjelamenn. Sjálfir ætlum vjer því að sjá um mat- reiðslu, hásetastörf og kynnast öðrum störfum, eftir því sem ástæður leyfa. Vjer l)iðum vorsins með mikilli eftirvæntingu VÆNJATAK. Framb. af bls. 23. Hinn fjelaginn var í fyrstu dyggur við sitt starf. En dag einn fjell lítið laufhlað úr trje, er hann sat nndir, þegar hann átti að vera við vinnn. Litur laufsins var gulur og bar vott um visnun. Hann tók ekki eftir þessu litla laufblaði, en það fylgdist með honum heim um kvöldið, þótt hann vissi það ekki, enda var ganga hans reikul og hugsun sturluð. Þegar hann kom í bæinn bað bóndi hann að taka laun sín og fara, því jeg þarf þín ekki lengur með, mælti hann, þú ert á illri leið í lífinu, þú ert vinur bakkusar. Nokkur ár liðu. Leiðum hinna ungu manna !bar aftur saman. Það var um liaust, síðla kvölds, úti undir skini sljarn- anna. Þeir sögðu hvor öðrum sína sögu. Ann- ar segir að lokum: Jeg hefi lært margt fagurt á lífsleiðinni, en það mikilverðasta er það, að vinna hvert verk vel; það er lykill þekkingar og auðæfa lífsins. Það er víst satt, ansar hinn. En jeg hefi lært að líta á lífið með illum augum. Rakkus hefir verið minn kennari; þrátt fyrir það, þótt jeg hafi oft skipað honum á burt, í reiði vímunnar og sorgum afleiðinganna. En hann hefir brosað til min og tælt mig lengra og lengra niður í ómensku, leti og kæruleysi. Fyrsta staupið fanst mjer bi’osa til mín, en nú er afleiðing hvers þeirra, tár brost- inna vona og tíndrar vináttu. En vilt þú taka hönd mína og hjálpa, hjálpa . . fyrirgefðu tárin. Hátt uppi i himin-geimnum hrostu stjörnur næturinnar, til hins vonsvikna barns jarðarinnar. Jón Hallgrímsson. og vonum að þekkja að minsta kosti „32 strik“ áttavitans eftir sjóferðina. Bendt D. Bendtsen.

x

Úti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.