Skessuhorn - 28.01.2015, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Álitlegir stóðhest-
ar væntanlegir
VESTURLAND: Stjórn
Hrossaræktarsambands Vestur
lands skrifaði í síðustu viku á
vef sinn að nú styttist í að listi
um stóðhesta næsta sumar verði
birtur. Þeir hestar sem nú þegar
er staðfest að verði til notkun
ar í landshlutanum eru: Loki frá
Selfossi, Þorlákur frá Prestsbæ,
Snillingur frá Íbishóli, Eldjárn
frá Tjaldhólum, Jarl frá Árbæj
arhjáleigu II, Brennir frá Efri
Fitjum, Hrafn frá EfriRauða
læk og Farsæll frá LitlaGarði.
Þá segir að myndir af stóðhest
unum og nánari upplýsing
ar megik finna á facebooksíðu
Hrossvest.
-mm
Samstarfssamn-
ingar í endur-
skoðun
AKRANES: Á fundi bæjarráðs
Akranes 15. janúar sl. var tekið
fyrir erindi sveitarstjórnar Hval
fjarðarsveitar frá því í desember
þar sem samningum er sagt upp
frá og með áramótum og óskað
endurskoðunar á þeim. Um er
að ræða samkomulag um rekst
ur tónlistarskóla og samstarfs
samningar um félagsstarf aldr
aðra og um ýmis málefni á sviði
félags og íþróttamála. Bæjarráð
vísaði erindinu til meðferðar í
fagráðum Akraneskaupstaðar. Í
bókun frá fundum segir að bæj
arráð telji eðlilegt að samstarfs
samningar séu sífellt í endur
skoðun og leggur áherslu á að
bæði sveitarfélögin noti þetta
tækifæri til að efla og þróa sam
starfið áfram.
–þá
Fjöldi myndaður
vegna hraðaksturs
VESTURLAND: Samtals
voru 146 ökumenn myndaðir
fyrir of hraðan akstur í umdæmi
lögreglunnar á Vesturlandi í
liðinni viku. Flest hraðabrot
in voru mynduð í Hvalfjarð
argöngunum og við Fiskilæk.
Fimm umferðaróhöpp urðu
í umdæminu í vikunni, flest
vegna vetrarfærðar og nær öll
án teljandi meiðsla. Ökumað
ur sendibifreiðar sem fór útaf
og valt nokkrar veltur á Útnes
vegi á Snæfellsnesi sl. fimmtu
dag kvartaði yfir eymslum í
baki. Var hann fluttur á heilsu
gæslustöðina í Ólafsvík og það
an til Reykjavíkur til frekari
rannsóknar. Krapi og hálka var
á veginum. Einn ökumaður var
tekinn ölvaður við akstur og
annar undir áhrifum fíkniefna í
umdæmi lögreglunnar á Vestur
landi í liðinni viku.
–þá
Bíll brann
NORÐURÁRDALUR: Síð
degis á miðvikudaginn í liðinni
viku kom upp eldur í mannlaus
um fólksbíl sem stóð skammt
frá íbúðarhúsi ofan við Hreða
vatnsskála í Norðurárdal. Í
fyrstu var mikill viðbúnaður
enda stóð bíllinn nálægt hús
inu og vindur stóð á það. Bif
rastardeild Slökkviliðs Borgar
byggðar fór strax á vettvang og
náði að halda eldinum í skefjun
þar til aukin aðstoð barst með
slökkviliðsmönnum úr Borg
arnesi. Betur fór en á horfðist
með húsið en bíllinn er gjöró
nýtur eftir brunann. –mm
Verslunarstjóra-
skipti í Bónus
BORGARNES: Verslunar
stjóraskipti hafa orðið í versl
un Bónuss í Borgarnesi og fleiri
breytingar einnig verið gerð
ar í starfsliði. Skessuhorn hafði
að beiðni viðskiptavina sam
band við Guðmund Marteins
son framkvæmdastjóra og leit
aði svara við ástæðu breyting
anna: „Það var samkomulag á
milli okkar Stefáns Haralds
sonar að hann léti af störfum á
þessum tímapunkti og nýr versl
unarstjóri tæki við. Bjarni Sig
urðsson hefur verð ráðinn inn
sem verslunarstjóri og nokkrar
breytingar aðrar orðið á hópn
um í Borgarnesi eins og gengur
og gerist með nýjum stjórnend
um, einhverjir hætta og aðrir
koma inn í staðinn,“ segir Guð
mundur Marteinsson.
–mm
Kanna betur
flóasiglingar
AKRANES/RVK: Eins og ít
arlega var kynnt í síðasta tölu
blaði Skessuhorns höfðu Faxa
flóahafnir frumkvæði að forat
hugun á rekstrarlegum forsend
um þess að hafnar yrðu reglu
bundnar siglingar milli Reykja
víkur og Akraness með hrað
skreiðum farþegabáti. Niður
staða þeirrar skýrslu var í gróf
um dráttum á þá lund að verk
efnið gæti reynst rekstrarlega
hagkvæmt en myndi trauðla
standa undir afborgunum af
stofnkostnaði. Niðurstaðan var
engu að síður nógu jákvæð til
þess að undir lok síðustu viku
undirrituðu Dagur B. Eggerts
son borgarstjóri og Regína Ás
valdsdóttir bæjarstjóri á Akra
nesi viljayfirlýsingu þess efn
is að sveitarfélögin hefji sam
eiginlega skoðun á því hvort
flóasiglingar á milli Akraness
og Reykjavíkur geti verið góð
ur valkostur í almenningssam
göngum. Þetta kemur fram í til
kynningu frá Reykjavíkurborg.
-mm
Aðalmeðferð lokið í þjóðlendumálinu
og beðið úrskurðar
Aðalmeðferð í þjóðlendumálum
sem snúa að sveitarfélaginu Borg
arbyggð og einstökum landeigend
um lauk í desembermánuði. Óðinn
Sigþórsson í Einarsnesi, sem vann
að málinu fyrir heimaaðila í Borg
arfirði, segir að reikna megi með
að það taki óbyggðanefnd allt upp
undir ár að kveða upp úrskurð í
málunum sem eru fimm er lúta að
lendum í Borgarbyggð. Óðinn seg
ir að fyrir aðalmeðferð hafi komið
fram gögn sem styrki stöðu heima
aðila verulega gagnvart ríkinu og
enn séu að berast gögn í málinu.
Óðinn telur það þó galla á máls
meðferðinni að gagnaöflun sé ekki
lokið fyrir kröfugerð og aðalmeð
ferð.
Varðandi kröfugerð ríkisins segir
Óðinn, eins og reyndar hefur kom
ið fram áður í Skessuhorni, að ríkið
geri kröfu um nánast allt fjalllendi
utan jarða í Mýrasýslu og Borgar
fjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar
og einnig einstakar jarðar og lands
svæði þeim fylgjandi, svo sem Kal
manstungu og Kjarardal. Óðinn
segir það ánægjuefni að í nýlegum
úrskurði Óbyggðanefndar varðandi
þjóðlendur í Húnavatnssýslum var
viðurkenndur eignarréttur heima
aðila á mjög landmiklum jörðum
en ríkið hafði gert kröfur í þá hluta
þeirra sem lagðir höfðu verið undir
afréttarnot.
þá
Sólarsport opnað á efri hæð sundlaugarinnar
Rekið til Þverárréttar í Eyja- og Miklaholtshreppi. Myndin er ekki beint tengd efni
fréttarinnar. Ljósm. tfk.
Margt var um manninn á opnu húsi
síðasta laugardag þegar Sólarsport
í Ólafsvík opnaði nýja og glæsilega
aðstöðu á efri hæð sundlaugarinnar.
Um 200 manns mættu á opna hús
ið til að skoða aðstöðuna, gæða sér
á ljúffengum veitingum og gleðj
ast með þeim hjónakornum Jó
hönnu Hjelm og Gylfa Scheving
sem eiga og reka Sólarsport. Hafa
þau staðið í rekstri í 30 ár. Jóhanna,
eða Jóa eins og hún er kölluð, átti
og rak fyrst Sólarnes sólbaðstofuna
í kjallaranum heima hjá sér. Það var
svo árið 1998 sem þau fluttu nið
ur á Ólafsbraut og opnuðu Sólar
sport. Voru þau mjög ánægð með
móttökurnar og hlakka til að halda
áfram á nýja staðnum.
þa
Afhenti afrakstur sölu vitasokka
Hilmar Sigvaldason vitavörður í
Akranesvita afhenti nýverið fyrsta
afraksturinn af sölu Akranesvita
sokka til Vesturlandsvaktarinn
ar, Hollvinasamtaka HVE. Sölu
virðið var 65 þúsund krónur. Það
var sokkaverksmiðjan Trico sokk
ar á Akranesi sem framleiðir þessa
sokka og hafa þeir verið til sölu
í Versluninni Bjargi og hjá Ey
mundsson á Akranesi. „Salan hef
ur farið fram úr björtustu vonum
og hef ég þegar pantað um 200 pör
til viðbótar,“ segir Hilmar. Hann
vill koma á framfæri að dagana 20.
og 21. desember síðastliðinn voru
haldnir tónleikar í Akranesvita til
styrktar Vesturlandsvaktinni. Fjöldi
tónlistarmanna kom fram og allir
gáfu vinnu sína. Tónleikarnir tók
ust mjög vel og gat fólk sett frjáls
framlög í kassa í anddyri vitans. Þar
söfnuðust 56 þúsund krónur. „Ég
vil líka koma á framfæri þökkum til
allra sem að tónleikunum komu og
þeim sem gáfu sitt framlag til Vest
urlandsvaktarinnar.“
mm Hilmar með Akranesvita-sokkana.