Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2015, Qupperneq 15

Skessuhorn - 28.01.2015, Qupperneq 15
15MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Foreldrar barna með ADHD/ADD Fundur verður hjá Snillingaforeldrum fimmtudaginn 29. janúar kl. 20 í fundarsal Ráðhúss Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 Borgarnesi. Drífa Björk Guðmundsdóttir, Dr. í sálfræði og ritari ADHD samtakanna verður með stutta fræðslu um þróun ADHD einkenna með áherslu á unglingsárin í byrjun fundar og síðan gefst tækifæri til spurninga og spjalls. Snillingaforeldrar er félagsskapur foreldra barna með ADHD/ADD. Markmið Snillingaforeldra er að foreldrar geti deilt reynslu sinni, stutt hvert annað í uppeldishlutverkinu og jafnvel fengið og deilt áfram fræðslu um líðan og hegðun barna með ADHD/ADD og æskileg viðbrögð þeirra sem mest eru með börnunum s.s. foreldra og skólakerfis, og íþrótta- og tómstundakennara/þjálfara. Allir áhugasamir velkomnir. S K E S S U H O R N 2 01 5 Körfuknattleiksfélag Akraness Íþróttahúsið við Vesturgötu 1. deild karla Sunnudaginn 1. febrúar kl. 14:30 ÍA - Höttur Fjölmennum og hvetjum ÍA til sigurs! Eldur kom upp í trillunni Þrasa SH 375 í Ólafsvíkurhöfn um tvöleyt­ ið aðfararnótt síðastliðins sunnu­ dags. Slökkvilið Snæfellsbæjar var kallað út eftir að vegfarandi sá reyk leggja frá einkasvæðinu við Fing­ urbryggju. Eldur logaði frá stefni aftur í skut þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang. Sprautað var one­ seven kvoðu yfir bátinn og gekk slökkvistarf mjög fljótt og vel fyrir sig. Þrasi SH er 4,5 brúttótonna ný­ legur plastbátur, gerður út af Rafni ehf, sem einnig gerir út Katrínu SH. Þrasi SH var mjög illa farinn ef ekki ónýtur eftir brunann. Var hann færður að bryggju og tekinn á land á sunnudagsmorgun. mm/ Ljósm. þa Á mánudaginn kom út hjá Sam­ tökum sveitarfélaga á Vesturlandi Hagvísir Vesturlands sem ber yf­ irskriftina „Börn í sveitum á Vest­ urlandi.“ Þar er varpað ljósi á breytingu á fjölda barna í sveit­ um í landshlutanum. Til saman­ burðar var horft til sömu þróunar í þéttbýli á Vesturlandi, til sveita í öðrum landshlutum og erlendis. Þá var borin saman þróun á fjölda barna miðað við fjölda fullorð­ inna. Meginniðurstöður í skýrsl­ unni voru að börnum fækkaði um 42% til sveita á Vesturlandi á tímabilinu 1998­2014 á með­ an fullorðnum fækkaði einungis um 6,6%. Í öðrum landshlutum fækkaði börnum til sveita á bilinu 24­50%, mest á Vestfjörðum og Austurlandi en minnst á Norður­ landi vestra og Suðurlandi. Hins vegar fjölgaði börnum um 3% á landinu öllu á þessu tímabili. Meðal annarra niðurstaðna í skýrslunni Börn í sveitum á Vesturlandi má nefna: „Fullorðnum fækkaði um 25% á Vestfjörðum, fjölgaði um 3,5% á Suðurlandi en annars staðar var fækkunin svipuð og á Vestur­ landi. Fækkun barna til sveita á Vest­ urlandi var mest í Snæfellsbæ en það fjölgaði í Eyja­ og Miklaholts­ hreppi og Skorradalshreppi á tíma­ bilinu. Fullorðnu fólki fjölgaði yfirleitt til sveita á Vesturlandi, mest um 28% í Hvalfjarðarsveit og Eyja­ og Miklaholtshreppi. Borgarbyggð og Helgafellsveit eru þau sveitarfélög sem skera sig úr hvað það snertir: Það fækkar í Helgafellssveit á með­ an fjöldi fullorðinna stendur nokk­ urn veginn í stað í Borgarbyggð. Börnum fjölgaði yfirleitt í þétt­ býli á sunnanverðu Vesturlandi en fækkaði í þéttbýli á því norðan­ verðu. Í tveimur tilvikum; Grund­ arfirði og Stykkishólmi, var fækk­ unin um 40% sem er mjög áþekkt því sem gerðist í sveitum. Börnum fjölgaði í 12 af 32 OECD­löndum á árunum 2000­2011. Mest var fækkunin 23% í Póllandi og mest var fjölg­ unin 17% á Írlandi. Börnum fækkaði í 927 OECD­ landshlutum en fjölgaði eða stóð í stað í 433 þeirra. Mest var fækk­ unin 48% í einum landshluta Tyrklands en mest var fjölgunin 53% í einum landshluta Spánar. Tyrkland, Kórea og Pólland eru þau OECD­lönd þar sem fækk­ un barna var mest í sem flestum landshlutum. Ísland kemur einna verst út hvað varðar fækkun barna þegar þróunin er borin saman við önnur Norðurlönd. Þróunin felur í sér miklar áskor­ anir fyrir íslenskt samfélag. Þró­ unin er ískyggileg víða til sveita. Um leið tekur hlutverk sveitanna miklum stakkaskiptum í íslensku atvinnulífi og jafnvel útlit fyrir tækifæri í framtíðinni. Enn frem­ ur eru sveitirnar félagslega mik­ ilvægar til að viðhalda ákveðinni fjölbreytni í landinu. Það er því mikilvægt að huga að því hvort slá megi á þessa þróun eða snúa henni jafnvel við.“ mm/vk Bátur illa farinn eftir bruna í Ólafsvíkurhöfn Börnum fækkar um tugi prósenta til sveita Börn að leik. Myndin er úr safni Skessuhorns og tengist fréttinni ekki beint.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.