Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2015, Side 17

Skessuhorn - 28.01.2015, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Þótt veðurspáin væri ekki góð fyr­ ir síðustu helgi var nóg að gera hjá þeim sem voru að beita og stúss­ ast í kringum útgerðina. Eða þann­ ig var það í Rifi þegar blaðamað­ ur Skessuhorns leit við í aðstöðu­ húsunum við höfnina síðastliðinn fimmtudag. Hjá útgerð Tryggva Eðvarðs SH, sem hefur átt aflamet á nokkrum vertíðum, var annað úthaldið að beita þennan daginn. Ásbjörn Óttarsson framkvæmda­ stjóri fyrirtækisins var hins vegar sem lionsfélagi farinn að undirbúa kútmagakvöld, sem Lionsklúbbur Nesþinga ásamt tveimur öðrum fé­ lögum stóð fyrir í Röstinni síðast­ liðið laugardagskvöld. Ásbjörn var sem kunnugt er alþingismaður á síðasta kjörtímabili en ákvað að því loknu að draga sig í hlé frá þing­ störfum og stjórnmálum. Blaða­ manni Skessuhorns lék forvitni á að vita hvernig Ásbirni líkaði að vera kominn aftur í sitt gamla starf í útgerðinni, eða hvort hon­ um langaði kannski á þingið aftur? „Nei, það geri ég ekki þótt fjögur árin á þinginu væru mjög lærdóms­ rík eftir 15 árin þar á undan í sveit­ arstjórnarmálum,“ sagði Ásbjörn. Hann hló þegar blaðamaður spurði hvort að réttara hefði kannski verið að orða spurninguna, hvernig væri að vera kominn aftur í almennilega vinnu? Það vakti nefnilega mikla athygli í umræðu um listamanna­ laun í þinginu að Ásbirni blöskr­ aði sá fjöldi sem þæði listamanna­ laun og taldi að fólk ætti nú frek­ ar að finna sér almennilega vinnu! Hann sýndi síðan drenglyndi og bað listamenn afsökunar á þessum ummælum. Kemst sjaldan á sjóinn Ásbjörn kvaðst hafa átt um það að velja ef hann ætlaði að halda áfram á þingi að þurfa að selja fyrirtækið. „Ég sá að þingmennskan fór ekki saman við að eiga og reka fyrirtæki, þingmannsstarfið er miklu stærra en svo. Þótt fyrirtækið okkar sé ekki stórt erum við þó að veita tíu manns vinnu. Ég valdi því að koma aftur til starfa í eigið fyrirtæki og sé ekki eftir því. Hjartað slær í sjávar­ útveginum,“ sagði Ásbjörn. Spurð­ ur hvort að hann réri ennþá með strákunum, sagði Ásbjörn að lít­ ið hafi verið um það, það væri nóg annað að gera. „Ég komst í einn róður í fyrra. Annars er tíðarfarið búið að vera ansi strembið á þessari vertíð, eilífar ógæftir og aflabrögð ekki eins góð og undanfarin ár. Við höfum þó verið að ná um hundrað tonna afla á mánuði. Þennan mán­ uðinn erum við komnir með 80 tonn en í janúar í fyrra vorum við með 160 tonn í janúar. Það er vika eftir og kannski náum við að kom­ ast vel yfir hundrað tonnin í mán­ uðinum.“ Ferðuðust mikið í kjördæmavikunum Spurður frekar út í þingmennskuna fyrir Norðurvesturkjördæmi á síð­ asta kjörtímabili sagði Ásbjörn að það hefði vitaskuld ekki verið besti tíminn sem hann kom inn á þing­ ið, allt í upplausn eftir hrunið og síðan væri það alveg ljóst að kjör­ dæmið væri allt of stórt og ómögu­ legt að sinna því eins og þyrfti að gera. „Auðvitað var ég stundum með samviskubit vegna þess að ég vildi gjarnan mæta á einhvern fund eða viðburð í kjördæminu en ekki hægt að koma því við. Við Einar Kristinn vorum þó mjög dugleg­ ir að vísitera í kjördæmavikum sem voru tvær yfir árið. Þá heimsótt­ um við öll byggðarlögin og fund­ uðum með fólki auk þess sem við fórum í fyrirtækin á svæðinu og hittum þar fjölda fólks. Þetta voru mjög gagnlegar heimsóknir og oft fengum við góðar ábendingar frá fólki á þessum ferðalögum. Annars er það ljóst í mínum huga að inni í þinginu fer fram mikið starf sem fólk gerir sér ekki grein fyrir. Þótt umræðuhefðin sé eins og hún er og blasir við fólki í gegnum fjölmiðla, er samt góð samvinna og samstarf milli flokka. Ég átti til dæmis gott samstarf við fólk úr öllum flokkum, eignaðist góða vini þvert á flokks­ línur og þannig er það með aðra þingmenn.“ Frábær mannauður í starfsliði þingsins Ásbjörn sagði að það væri líka styrk­ ur að Alþingi hefði yfir mjög góðu starfsfólki að ráða. „Það er mik­ ill mannauður sem þingið býr yfir, sama hvert litið er, alls staðar frá­ bært starfsfólk. Þjónustulundin er alveg frábær hjá starfsfólki þings­ ins. Ég orðaði það þannig að það væri alveg sama hvaða vitleysu við þingmenn bæðum þau að liðsinna okkur með, öllu var tekið með brosi á vor. Þótt starfsfólkið væri oft að vinna í tímapressu svo sem nætur og helgar við frágang nefndaálita og skjala fyrir þinglok, þá var það ekkert nema ljúfmennskan uppmál­ uð. Það verður bara með þakklæti og gleði sem ég minnist þessa fjög­ urra ára í þinginu. Alþingi er góður vinnustaður þótt ég hafi ákveðið að láta þennan tíma duga,“ sagði Ás­ björn í þessu stutta spjalli sem hann gaf sér áður en farið var að taka til kútmagana og annað fiskmeti fyrir veisluna miklu í Röstinni. þá Lögboðin samfélagsþjónusta er starfrækt í Herdísarholti í Hval­ fjarðarsveit. Hjónin Gunnar Hlöð­ ver Tyrfingsson og Unnur Herdís Ingólfsdóttir hafa um árabil starf­ rækt sambýli fyrir einstaklinga sem eiga við geðfötlun að stríða. Fjórir menn hafa átt sitt skjól hjá þeim í allt að 17 ár og í Herdísarholti frá árinu 2007 þegar hús þar voru tek­ in í notkun. Fólkið í Herdísarholti hefur síðustu árin glímt við skort á neysluvatni og vatnslaust hefur verið þar í tæpt ár. Því hefur verið bjargað með því að Gunnar Hlöð­ ver hefur ekið með þúsund tonna tank á kerru og náð í vatn á Akra­ nes, um sex kílómetra leið, tvisvar á dag. Fyrst á þvottaplönin með­ an þar var vatn að hafa en eftir að tók að vetra og frysta hefur Her­ dísarholt fengið vatn frá Slökkvi­ liði Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Gunnar Hlöðver og Unnur Herdís segja að þau hafi komið að lokuð­ um dyrum hjá sveitarfélaginu með að fá vatnsveitu heim. Eftir því hafi verið óskað bréfleiðis í júní síðast­ liðnum. „Það vantaði ekki að fólk sýndi málinu áhuga fyrir kosningar en síðan er eins og enginn vilji vita að þessu,“ segja þau Gunnar Hlöð­ ver og Unnur Herdís. Þau telja að með neysluvatnsleysinu sé verið að brjóta á starfseminni í Herdísar­ holti og einstaklingunum sem þar búa. Bera fyrir sig jafnræðisreglu Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ber fyrir sig jafnræðisreglu. Vatnsveita Hvalafjarðarsveit útvegar neyslu­ vatn til þéttbýlisins á Hagamel og á Grundartanga, en ekki til lögbýla í sveitarfélaginu. Skúli Þórðarson sveitarstjóri hefur gefið þau svör að sveitarfélagið hafi ekki aðkomu að lagningu hitaveitu á lögbýli eins og Herdísarholt og með því væri sveitarfélagið að veita slíkt for­ dæmi að það væri óvinnandi veg­ ur. Sviðsstjóri lögfræði­ og velferð­ arsviðs Sambands íslenskra sveitar­ félaga bendir á að samkvæmt lög­ um um vatnsveitu sveitarfélaga sé þeim ekki skylt að starfrækja vatns­ veitu, en í dreifbýli sé sveitarstjórn hins vegar heimilt að reka vatns­ veitur og leggja í framkvæmdir við gerð hennar enda sýni rannsóknir og kostnaðaráætlanir að hagkvæmt sé að leggja veituna og reka hana. Fólkið í Herdísarholti heldur því hins vegar fram að það sé brot á jafnræðisreglu að neysluvatn sé til reiðu fyrir fólkið sem býr í þéttbýl­ inu í sveitarfélaginu en ekki í dreif­ býlinu. Og hreinlega mannrétt­ indabrot samkvæmt vatnalögum að fólk hafi ekki neysluvatn. Vandræði sé með neysluvatn víða í sveitinni og það viðurkenni sveitarstjórn fús­ lega en bregðist ekki við því. „Þótt ljósleiðarinn sé góður hefðum við frekar viljað vatnsveitu,“ segja þau Gunnar Hlöðver og Unnur Herdís í Herdísarholti. Geta komist í lind frá OR Þau í Herdísarholti segja að eft­ ir að hafa farið bónleið til búðar bjóðist þeim að fá vatn frá lind sem Orkuveita Reykjavíkur á í Akrafjalli fyrir ofan bæinn Ós. Það yrði 2,5 kílómetra lögn og sú framkvæmd kosti að minnsta kosti þrjár millj­ ónir króna. Þeir peningar séu ekki handbærir. „Þetta er mjög erfitt og tímafrekt að ná í vatn tvisvar á dag. Við erum við það að gefast upp á þessu,“ segja þau Gunnar og Unn­ ur. Sagan um vatnsskortinn í Her­ dísarholti segja þau langa og búið sé að kosta miklu til að reyna að finna lausn á honum. Til að byrja með var fengið vatn úr lind í landi býlisins sem þornaði upp á tveim­ ur þurrkasumrum. Þá var bor­ að eftir vatni en úr þeirri borholu kom sjóblandað vatn. Í framhaldinu var svo boruð önnur hola og vatn­ ið úr henni entist í eitt og hálf ár. „Ég myndi óska eftir að fá þau við­ brögð frá sveitarstjórninni að hún ætli að skoða vatnsmálin í sveitinni en þau hef ég ekki fengið. Ég lýsi eftir þeim,“ segir Gunnar Hlöðver Tyrfingsson í Herdísarholti. þá Gunnar Hlöðver við þúsund lítra vatnstankinn sem hann keyrir með tvisvar á dag á Akranesi til að ná í vatn. Starfsemi sambýlis í Hvalfjarðarsveit í uppnámi vegna vatnsmála Gunnar Hlöðver Tyrfingsson og Unnur Herdís Ingólfsdóttir í Herdísarholti. Hús í Herdísarholti. Sáttur í gamla starfinu og langar ekki á þing Spjallað við Ásbjörn Óttarsson útgerðarmann í Rifi Ingvi Hrafn Aðalsteinsson var í seinna beitningargenginu sem var að beita á Tryggva Eðvarðs þennan daginn. Ásbjörn Óttarsson í aðstöðuhúsi útgerðar sinnar í Rifi.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.