Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2015, Page 22

Skessuhorn - 28.01.2015, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Snjóatíðin frá því í byrjun jólaföstu hefur orðið til þess að margir hafa orðið sér út um snjóblásara til að moka heimreiðar og stíga að hí­ býlum sínum. Eitt fyrirtæki í Borg­ arnesi hefur meðal annars sérhæft sig í innflutningi í tækjum eins og snjóblásurum og ísbrjótum. Það er Frístundahús sem er með aðsetur á Sólbakka 27, en einnig er fyrirtæk­ ið með heimasíðuna fristundahus. is. Einar Þórisson framkvæmda­ stjóri og eigandi fyrirtækisins segist vera búinn að selja nokkra snjóblás­ ara af stærri gerðinni í vetur en þeir hafi klárast fyrir nokkru. „Ég hefði getað selt svona 30­40 slíka en þar sem við setjum saman tækin og höf­ um ekki pláss fyrir stóran lager gat ég ekki annað þessari eftirspurn. En við eigum ennþá eftir nokkra blásara af minni gerðinni. Það var ekki fyrr en komið var fram í miðj­ an desember sem skriðan fór af stað og það var erfitt að bregðast við á skömmum tíma,“ sagði Einar þegar blaðamaður Skessuhorns hitti hann í síðustu viku. Fjölbreytt vöruval Aðspurður sagði Einar að tals­ vert hefði verið spurt um ísbrjót­ ana en ekki ennþá selst mikið af þeim, enda ekki líkt því eins mik­ ið um klakamyndun eins og síð­ asta vetur. Frístundahús var stofnað árið 2008 þegar Einar og fjölskylda flutti í Borgarnesi. Fyrst snerist starfsemin um byggingu og sölu á frístundahúsum, en vinnuslys varð til þess að Einar fór út í innflutning og verslun. Fyrirtækið selur tals­ vert af vélum sem ekki hefur verið mikið framboð af hér á landi. Einar og hans fólk flytur þær ósamsettar hingað til lands og oft koma íhlut­ irnir frá nokkrum stöðum í sömu vélina. Einar segir vöruvalið fjöl­ breytt en það er aðallega fyrir verk­ taka, bændur, áhaldahús, iðnaðar­ menn, björgunarsveitir og slökkvi­ lið. „Sem dæmi má nefna háþrýsti­ dælur, jarðvegsþjöppur, pressu­ tengi, plötulyftur, vélhjólbörur, laser mæla, beltavagna, slökkvibíla á beltum, torfærutæki og traktora.“ Þakkar góða banka- fyrirgreiðslu Einar segir að umfang starfsem­ innar hafi aukist svo mikið síðustu misserin að hún sé nú á þremur stöðum í Borgarnesi. Stefnt sé að því að koma starfseminni undir eitt þak. Hann segir beinan innflutning og samsetningu á staðnum lykil­ inn að því að geta boðið upp á hag­ stæðara verð á vélum og lagnaefni en víða þekkist. „Þú mættir gjarnan nefna góða þjónustu Landsbank­ ans á Akranesi fyrir einstaka þjón­ ustu og fyrirgreiðslu til nýrra fyr­ irtækja eins og okkar. Vil ég nefna þau Hannes Ellertsson útibússtjóra og Lindu B. Pálsdóttur á fyrirtækja­ sviðinu. Því án Landsbankans hefði þetta ekki verið hægt,“ sagði Einar að endingu. þá Verslunin Kristý er til húsa í versl­ unarmiðstöðinni Hyrnutorgi í Borgarnesi. Það er Oddný Þór­ unn Bragadóttir sem á og rekur verslunina en þar má finna ýmis­ legt: Skó, fatnað, úr og skartgripi svo eitthvað sé nefnt. Blaðamað­ ur Skessuhorns leit inn hjá Odd­ nýju og veitti því athygli að hún selur íslenskt handverk í bland við innfluttar vörur. Vörurnar hann­ ar hún og framleiðir sjálf. Er hún bæði með íslenskan fatnað, húfur og ýmsa fylgihluti. Byrjaði á skófylgihlutum Oddný opnaði verslunina Kristý árið 1992 við Skúlagötu 13, þar sem Blómasetrið og Kaffi Kyrrð eru í dag. „Við fluttum í Hyrnutorg í desember 2009. Við vorum áður með meira af handverki og gjafa­ vöru, smíðað var úr gulli og silfri. En við hrunið duttu gjafavörurnar út. Við misstum svo aðstöðuna til að smíða þegar við fluttum hingað og verkstæðið fór í geymslu,“ segir Oddný sem hélt þó áfram að skapa. Hún hannar nú og saumar undir merkinu Donna Nord, eða Kona norðursins. „Ég byrjaði á skófylgi­ hlutum. Við vorum farin að selja skó og stígvél. Ég veitti því athygli að margar íslenskar konur eru með svera kálfa og áttu erfitt með að fá á sig stígvél. Ég hannaði því viðbót við skóinn til að leysa það vanda­ mál. Ég myndi vilja geta framleitt meira af þessu en það er erfitt að finna samstarfsaðila í leðrinu,“ seg­ ir hún og bætir því við að það séu ekki margir á Íslandi með iðnað­ arvélar sem geti unnið með leðr­ ið í einhverju magni. Í framhald­ inu datt Oddnýju í hug að byrja að sauma húfur. Þær eru úr þæfðri ull, klæddar með flís að innan. „Það er skemmtilegt að gera þetta. Ég hef fengið mjög góð viðbrögð við húf­ unum enda er enginn sem gerir eins húfur. Þetta hefur svo undið aðeins upp á sig. Ég er líka að sauma fatn­ að, svo sem leggings fyrir íslensk­ ar konur. Þær eru með góðri ísetu og háum og breiðum streng. Svo geri ég toppa, pils og kjóla. Ég er bara að leika mér og geri eina flík af hverju.“ Nýtir laxaroð og hraunmola Oddný er Borgnesingur í húð og hár. Hún er þar fædd og uppalin og hefur búið þar mest alla tíð. Þó bjó hún í Englandi í sjö ár, þar sem hún fór í enskuskóla og kynntist eigin­ manni sínum sem kemur frá Líbýu. Í Englandi lærði hún einnig gull­ smíði. Hún hefur ekki alveg sagt skilið við skartið, þrátt fyrir að í dag hafi hún ekki aðstöðu til að smíða úr gulli og silfri. Þess í stað gerir hún armbönd úr leðri og laxaroði. Roð­ ið er í ýmsum litum og með breyti­ legri áferð en það fær hún frá Sjáv­ arleðri á Sauðárkróki. „Ég geri líka hálsmen og hringa með íslenskum hraunmolum, sem ferðamennirn­ ir eru hrifnir af. Þetta snýst allt um að skapa eitthvað, maður hefur þörf fyrir það,“ segir Oddný og brosir. Hún segist verða vör við aukna um­ ferð ferðamanna í Borgarnesi. „Það er mikið af fólki sem rúllar hér í gegn en mest yfir sumartímann. Þetta er árstíðabundið. Svo kem­ ur fólkið úr sumarbústöðunum hér í kring mikið í Hyrnutorg. Maður fær tækifæri til að kynnast því fólki og það hefur myndast föst tenging við það, sem er mjög ánægjulegt,“ segir handverks­ og verslunarkon­ an Oddný að endingu. grþ Talsvert hefur verið spurt um ísbrjótana sem fyrirtækið selur. Annaði ekki spurn eftir snjóblásurum Litið inn hjá Frístundahúsum í Borgarnesi Einar Þórisson framkvæmdastjóri og eigandi Frístundahúsa. Enn eru til hjá fyrirtækinu minni gerðin af snjóblásurum. Skófylgihlutir Oddnýjar geta breytt venjulegum skóm í stígvél. Snýst um þörfina fyrir að skapa eitthvað Oddný Þórunn Bragadóttir hannar og selur íslenskt handverk í Borgarnesi Oddný með eina af Donna Nord húfunum sem hún selur í Kristý.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.