Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2015, Side 23

Skessuhorn - 28.01.2015, Side 23
23MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Pennagrein Loksins ræða fleiri um fjármál Krossgáta Skessuhorns Þess má geta að vegna óviðráðanlegra orsaka reyndist ekki unnt að birta krossgátu í síðasta tölublaði. Hér er hins vegar ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/ in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni. Athugið að lausnir þurfa að berast fyrir klukkan 15:00 á mánudögum. 38 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í næstsíðustu viku. Lausnarorðið var „Kuldaklædd“. Vinningshafi er Kristín Þórðardóttir, Bárðarási 16 Hellissandi. mm Frami Sögn Ánægja Reku Magn Kall Óreiða Ólæti Fæða Leik- tæki Lípurð Fát Stef Systir Ofn Sk.st. Líka Rýr Gæði Hljóp Gónir Kvendýr Mæli- eining Korn Hávaði Hátíð- legur 5 Duft Háls Rasa Krota Atriði Vonar 8 10 3 Kostur Dund Natni 12 Spurn Örn Sprotar Skaut 19 Tónn Leit Liðam. Vafi Könnun Nýtist 15 Lund Þýfi Mjöður Mein- dýr Land- bára Villt Gruna Grípa Hrekkir Herða- skjól Tölur Fugl Drolla Atorka Klók Alltaf Röst Silki 18 1 Persóna Svif- dýrið 9 Sýl Afmá Aum Þrá Lúsaegg Glundur Gripum Sko Ótt Dvelja Angan Orða- skipti Rugl Dreifir 13 Ryk Núna 17 Elfur Óhóf Glögg Sk.st. Kusk Toppa 1050 Suddi Törn Líkum Dyggir Ótta 16 Styrktu Sælu- staður 11 4 Par Býli Hersli Hætta Krap 2 Hugsun Kerra 6 14 Púka Fas Sérhlj. 20 7 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Fjármál sveitarfé­ laga og ekki síst fast­ eignagjöld eru mikið rædd í Borgarfirðinum þessa dag­ ana. Það kemur ekki til af góðu því íbúar fengu nýverið senda álagn­ ingarseðla vegna fasteignagjalda þar sem álagningarprósenta fyr­ ir íbúðarhúsnæði hafði hækkað um 36% á milli ára. Skiljanlega er íbú­ um illa brugðið enda var því haldið á lofti allt til loka síðasta kjörtíma­ bils og í kosningabaráttunni síðast­ liðið vor af fyrrum meirihluta Sjálf­ stæðisflokks og Vinstri grænna að fjárhagsstaða Borgarbyggðar væri traust eins og það var m.a. orðað í fréttabréfi fyrir ári síðan. Annað hefur komið á daginn því eins og þáverandi fulltrúar Samfylkingar­ innar í sveitarstjórn höfðu ítrek­ að vakið máls á bæði í bókunum og með greinarskrifum þá stendur rekstur sveitarfélagsins ekki styrk­ um fótum. Núverandi sveitarstjórn stóð frammi fyrir því verkefni síðastliðið haust að finna leiðir til að fjármagna hallarekstur undangenginna ára til viðbótar við kjarasamningsbundn­ ar launahækkanir. Ekki tókst nýrri sveitarstjórn að ljúka því vanda­ sama verkefni, þrátt fyrir hækkun fasteignagjalda sem skilar sveitar­ sjóði 95 milljónum árinu. Fjárhags­ áætlunin sem samþykkt var af sveit­ arstjórn í desember sl. gerir ein­ ungis ráð fyrir 4,5 milljóna króna hagnaði sem dugar skammt þeg­ ar sveitarfélaginu er skylt að jafna a.m.k. 60 milljóna króna taprekstur undanfarinna ára vegna lagaskyldu um rekstrarjöfnuð á hverju þriggja ára tímabili. Enn er óljóst hvern­ ig farið verði að því að auka hagn­ að um a.m.k. 55 milljónir á árinu en ljóst má vera að nú þegar er búið að ganga svo nærri fjárveitingum til grunnþjónustu að ekki verð­ ur lengra komist nema með því að skerða þjónustu við íbúa. Við undirrituð, fulltrúar Sam­ fylkingarinnar, höfum á undan­ förnum árum bent á hagræðing­ arleiðir til að ná niður skuldum sveitafélagsins og vaxtagjöldum með því að selja eignarhluta sveit­ arfélagsins í Orkuveitu Reykjavík­ ur. Söluandvirðið yrði nýtt til að greiða niður skuldir og lækka þann­ ig fjármagnsgjöld, en þau eru áætl­ uð 263 milljónir á árinu. Slík ráð­ stöfun hefði í för með sér aðgerð sem tryggja myndi að ekki þurfi að ráðast að innviðum samfélagsins og skera niður þjónustu við börn, aldr­ aða og aðra þá er reiða sig á aðstoð samfélagsins, ásamt því að hætta að sinna nauðsynlegu viðhaldi og ný­ framkvæmdum. Í fjárhagsáætlun fyrir 2014 var gert ráð fyrir að tekin yrðu ný lang­ tímalán að upphæð kr. 70 milljón­ um. Raunin skv. útkomuspá er sú að á árinu voru tekin ný langtíma­ lán sem nema alls 452 milljónum. Vaxtaberandi skuldir hækka um 285 milljónir á milli áranna 2013­2014 sé miðað við þessa sömu útko­ muspá. Ekki verður því með góðu móti séð hvernig rökstyðja megi þá fullyrðingu að unnið hafi ver­ ið markvisst að lækkun skulda. Afar brýnt er að auka kostnaðareftirlit með það að markmiði að koma í veg fyrir að rekstur stofnana fari fram úr fjárheimildum. Einnig er mik­ ilvægt að samnýta betur húsnæði í sveitarfélagsins svo draga megi úr rekstrarkostnaði. Sameiginleg inn­ kaup stofnana gætu vafalaust skilað lægra verði og hagræðingu og höf­ um við lagt til að áður stofnað inn­ kauparáð verði virkjað í því skyni. Sveitarstjórn þarf að hafa hugrekki til að ræða alla mögulega kosti til að bæta fjárhaginn og kanna þá til hlýtar. Fyrsta skref í þá átt væri að fá óháðan fagaðila til að leggja mat á virði eignarhluta í félögum. Það er frábært að búa í Borgar­ byggð fyrir alla aldurshópa. Hér eru góðir skólar á öllum skólastig­ um, vel er búið að heilbrigðis­ og öldrunarþjónustu, fjölbreytt at­ vinnulíf og einstök náttúra. Sveit­ arfélagið hefur alla burði til að laða til sín nýja íbúa á næstu árum ef það er samkeppnishæft í þjónustu­ gjöldum og gæðum. Hér eru allir innviðir til staðar til að fjölga íbú­ um, góðar byggingarlóðir fyrir at­ vinnuhúsnæði og íbúabyggð, skól­ ar og allflestir leikskólar geta mætt fólksfjölgun. En er sveitarstjórn til­ búin að vinna að nauðsynlegum að­ gerðum til að kostnaður við þjón­ ustu verði sambærilegur við önnur sveitarfélög? Geirlaug Jóhannsdóttir. Höf. er annar af tveimur fulltrú- um Samfylkingar í sveitarstjórn. Freisting vikunnar Í gegnum árin hefur þessi upp­ skrift gengið manna á milli og slegið í gegn í ófáum boð­ um. Bollurnar eru frábærar sem pinnamatur í hvers kyns veislum en þær eru einnig fínar í kvöld­ matinn með hrísgrjónum og góðu salati. Það besta við upp­ skriftina er að hún er einstaklega einföld. Í henni eru ekki nema fjögur hráefni og ættu því allir að geta eldað bollurnar með lít­ illi fyrirhöfn. Bæta má osti við kjötbolluuppskriftina sem bætir aðeins við bragðið og gerir þær enn betri. Kjötbollur með Ritzkexi 500 gr. nautahakk 1 egg hálfur pakki mulið Ritzkex ½ - 1 pakki púrrulaukssúpa Blandið öllu saman í skál og hrærið vel. Mótið litlar kjöt­ bollur með höndunum. Steikið á pönnu við meðalhita eða bakið í ofni við 180° þar til bollurnar eru steiktar í gegn. Chili - rifsberjasósa 1 flaska Heinz chili sósa 1 krukka rifsberjahlaup Bæði hráefnin sett í pott, hrært vel og hitað. Bon apetit! Ritzkexbollur með chili-rifsberjasósu Þótti til siðs að allar sjómannskonur gengju í slysavarnadeildina Spjallað við formann slysavarnadeildarinnar Helgu Bárðar á Hellissandi og í Rifi Í Rifi er stórt og glæsilegt nýtt hús sem gefið var nafnið Björgunarstöð­ in Von. Húsið var byggt af þremur félögum sem koma að björgunarmál­ um; björgunarsveitinni Lífsbjörg og slysavarnar­ deildinni Helgu Bárðar í Rifi og á Hellissandi og slysavarnadeildinni Sum­ argjöf í Ólafsvík. Slysa­ varnadeildin Helga Bárð­ ar var eitt þriggja félaga sem stóð að árlegu kút­ magakvöldi sem haldið var í félagsheimilinu Röst á Hell­ issandi síðastliðið laugardagskvöld. Hin félögin eru Lionsklúbbur Nes­ þinga og Leikfélag Ólafsvíkur. Þeg­ ar blaðamaður Skessuhorns var á ferð í Rifi síðastliðinn fimmtudag var einmitt að byrja á fullu und­ irbúningur að matselt vegna kút­ magakvöldsins. Formaður slysa­ varnadeildarinnar Helgu Bárðar er Inga Jóna Guðlaugsdóttir. Hún hefur verið formaður deildarinnar síðustu fimm árin og var reyndar einnig formaður um fimm ára skeið í kringum aldamótin síðustu. Allar sjómannskonur eru í deildinni Inga Jóna er frá Akranesi en flutti 21 árs á Snæfellsnesið þegar hún kynntist manni sínum Jóni Ein­ arssyni frá Glaumbæ í Staðarsveit. Inga Jóna segir að það hafi verið gott að alast upp á Skaganum en sér hafi þó liðið vel þessi 27 ár sem hún hafi búið á Snæfellsnesinu, lengst af í Rifi. Hún segist snemma hafa gengið til liðs við slysavarnadeild­ ina Helgu Bárðar. „Maðurinn minn er sjómaður og það þótti til siðs að allar sjómannskonur gengju í slysa­ varnadeildina,“ segir Inga Jóna en deildin Helga Bárðar er jafn göm­ ul henni og var stofnuð í mars árið 1966. Félagskonur eru í dag 52, þar á meðal átta stofnfélaganna. Spurð um hlutverk slysavarnadeildarinn­ ar segir Inga Jóna að henni hafi verið ætlað að afla fjár fyrir bjög­ unarsveitina og slysavarnafélag­ ið. „Starfið hefur breyst mikið frá því á fyrstu árunum sem ég var í deildinni. Aðalfjáröflun félagsins er sjómannadagskaffið sem við höf­ um haldið síðustu árin í samvinnu við slysavarnadeildina Sumargjöf í Ólafsvík. Það var náttúrlega því­ líkur munur fyrir okkur að fá þetta nýja hús því ekki veitir af plássinu þegar kemur að sjómannadags­ kaffinu. Þá þarf að færa út öll tæki og búnað af neðri hæðinni til að koma kaffi­ gestum þar fyrir í stórum og rúmgóðum sal.“ Kútmagakvöldið mjög skemmtilegt verkefni Spurð um samspil slysa­ varnadeildarinnar Helgu Bárðar og samfélagsins í Snæ­ fellsbæ, segir hún að það sé mjög gott. „Það er gríðarlega mik­ ill stuðningur hérna í samfélaginu og við eigum mjög góða og öfluga styrktaraðila hérna. Það kom líka vel fram meðan á húsbyggingunni stóð. Við fengum mikinn stuðning og hjálp bæði frá fyrirtækjum og félagasamtökum.“ Inga Jóna seg­ ir að strax upp úr áramótum byrji undirbúningur fyrir kútmagakvöld­ ið, svo sem að undirstinga sjómenn með hráefnið, en það fáist allt gef­ ins. „Kútmagakvöldið á einungis að standa undir sér fjárhagslega og er því fyrir utan okkar hefðbundnu og aðal fjáröflun. Þetta er rosalega skemmtilegt verkefni og okkur hjá Helgu Bárðardóttur finnst gam­ an að vera þátttakandi í því,“ sagði Inga Jóna að endingu. þá Inga Jóna Guðlaugsdóttir formaður slysavarnadeildarinnar Helgu Bárðar.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.