Skessuhorn - 28.01.2015, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
Ferð þú á þorrablót?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Ragnar Skúlason:
Ég ætlaði á skoskt þorrablót en
það klikkaði. Haggis er það al
besta líkist mjög íslenskri lifrar
pylsu.
Ólafur Elíasson:
Nei, ekki í vetur en mér þykir
þorramaðurinn ákaflega góður,
er alveg brjalaður í‘ann.
Davíð Heiðar Hendrisson:
Nei, allavega ekki í ár.
Sigþór Eiríksson:
Nei, ekki í ár en er reyndar mik
ið fyrir þorramat.
Irma Dögg Sigurðardóttir:
Nei, ekki í vetur en ég ætla á blót
Skagamanna á næsta ári.
Heilsu Hof í Reykholtsdal býð
ur upp á námskeið í Tai Jutsu bar
dagalist fyrir krakka á aldrinum
1216 ára. Kennt verður á þriðju
dögum klukkan 1921. „Nú hef
ur verið bryddað
uppá þeirri nýj
ung að foreldrar/
forráðamenn fá
ókeypis aðgang
að líkamsrækt
arsal staðarins
meðan á æfingu
stendur. Marg
ir koma langt að
og geta nú sleg
ið tvær flugur í
einu höggi, ekið
barninu á æfingu og haft tíma fyrir
sig í heilsueflingu á meðan. Salur
inn er með hin ýmis tæki, svo sem
hlaupabretti, fjölþjálfa, róðaravél,
stígvél, lóð, bekki og bjöllur svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Sigrún
Hjartardóttir hjá Heilsu Hofi. mm
Knattspyrnukonan Jóhanna
Steinþóra Gústavsdóttir frá
Grundarfirði hefur gengið til liðs
við Val. Jóhanna er komin heim
frá Noregi þar sem hún spilaði
á síðasta tímabili með Sarpsborg
í næstefstu deild. Liðið komst
í umspil á liðnu hausti um sæti
í norsku úrvalsdeildinni en tap
aði. Jóhanna Steinþóra hefur
lengst af spilað með FH og hef
ur skorað 29 mörk í 59 leikjum
með Hafnarfjarðarliðinu. Hún
er aðeins á 23. aldursári og þykir
eiga framtíðina fyrir sér í boltan
um. Valur hefur að undanförnu
verið að styrkjast fyrir komandi
átök í Pepsídeildinni næsta sum
ar. Tveir nýir leikmenn komu
til félagsins á dögunum auk Jó
hönnu, Anna Garðarsdóttir
sem snúið hefur til baka til síns
gamla félags og Inga Dís Júlíus
dóttir sem á 105 meistaraflokks
leiki að baki með Þór/KA og
Aftureldingu. Þá hafa þær Katr
ín Gylfadóttir og Hugrún Arna
Jónsdóttir framlengt samninga
sína um tvö ár með Val. þá
Lið ÍA í fyrstu deild karla
í körfuboltanum tap
aði stórt fyrir FSu þeg
ar liðin mættust á Selfossi
síðastliðið fimmtudagskvöld.
Skagamenn léku án annars þjálfara
síns, Fannars Helgasonar og fengu
rassskell, 59:102. Árborgarlið
ið keyrði yfir gestina strax í byrjun
og var staðan eftir fyrsta leikhluta
29:15 og í hálfleik 45:33. Heima
menn gerðu síðan út um leikinn í
þriðja leikhluta sem þeir unnu 31:9.
Jamarco Warren skoraði 32 stig
fyrir ÍA, Áskell Jónsson 12, Magn
ús Bjarki Guðmundsson 6, Birkir
Guðjónsson 4, Þorleifur Baldvins
son 3 og Erlendur Þór Ottesen 2.
ÍA er áfram með 12 stig og í 4. sæti
deildarinnar en FSu í 2. sæti með
18 stig.
Í næstu umferð mæta Skaga
menn toppliði Hattar frá Egilsstöð
um og fer leikurinn fram í íþrótta
húsinu við Vesturgötu næstkom
andi sunnudag. þá
Skotfélagið Skotgrund – skotfélag
Snæfellsness birti nýverið ársskýrslu
sína fyrir árið 2014. Í henni kemur
fram að árið var viðburðaríkt hjá fé
laginu. Haldin voru þónokkur mót
fyrir félagsmenn, kynningar á starf
seminni, aðstaða fyrir hreindýra
próf komið upp og margt fleira.
Eitthvað var um framkvæmdir á
árinu en aðstaða á riffilsvæðinu
var stórbætt þegar nýir battar voru
steyptir. Einnig varð nafnabreyting
á félaginu en nafni þess var breytt
úr skotfélaginu Skotgrund í Skot
grund skotfélag Snæfellsness,
enda eru félagsmenn alls staðar af
Snæfellsnesi. Það er mikill hugur
í félagsmönnum Skotgrundar en
þeir hyggja á frekari framkvæmdir
á árinu og verður fróðlegt að fylgj
ast með þeim. Hægt er að nálgast
ársskýrsluna á heimasíðu félagsins:
http://skotgrund.123.is
tfk
Jóhanna Steinþór Gústavsdóttir.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Jóhanna til Vals
Hákon Varmar
þjálfar börn
í Tai Jutsu í
Heilsu Hofi.
Foreldrar geta styrkt
sig meðan börnin
æfa Tai Jutsu
Stórtap Skaga-
manna í körfunni
Viðburðaríkt ár hjá
Skotgrund á Snæfellsnesi
Um síðastliðna helgi fór fram Ís
landsmeistaramót meistaraflokks
í latín dönsum hjá Dansíþrótta
sambandi Íslands í Laugardalshöll.
Samhliða því fór fram opið RIG
mót og bikarmeistaramót í stand
ard dönsum. Vestlendingar áttu
sína fulltrúa á mótinu og stóðu
þau sig allir með stakri prýði. Þrír
Borgfirðingar kepptu í meistara
flokki í dansi og dönsuðu þeir með
frjálsi aðferð, fimm dansa í hvorum
flokki. Bestum árangri náði Borg
firðingurinn Brynjar Björnsson.
Dansfélagi hans er Perla Stein
grímsdóttir og keppa þau í meist
araflokki ungmenna. Þar náðu þau
öðru sæti og tryggðu sér með því
rétt til þess að fara á heimsmeist
aramót ungmenna og Evrópu
meistaramót ungmenna á þessu ári.
Brynjar og Perla kepptu jafnframt í
opnu RIG keppninni, þar sem tvö
erlend pör kepptu líka. Þau kepptu
þar til úrslita og höfnuðu í fimmta
sæti. Borgfirðingurinn Arnar Þórs
son keppir í meistaraflokki fullorð
inna og dansar við Laufeyju Höllu
Atladóttur. Þau dönsuðu til úrslita
í standard dönsum og urðu í sjötta
sæti.
Vel gekk hjá yngri
flokkum
Í flokki unglinga II (14 15 ára) var
Elís Dofri Gylfason fulltrúi Vest
lendinga. Hann dansar við Sonju
Þorsteinsdóttur og kepptu þau til
úrslita í standard dönsum og höfn
uðu í fimmta sæti. Þá tóku tvö
borgfirsk pör þátt í flokki þeirra
sem dansa með grunnsporum. Það
voru þau Anton Elí Einarsson og
Arna Jara Jökulsdóttir og Jóhann
Páll Oddsson og Rakel Eir Er
lingsdóttir. Anton og Arna dansa í
flokki unglinga II. Þau urðu í fyrsta
sæti í latín dönsum og í þriðja sæti
í standard. Jóhann Páll og Rakel
Eir dansa í flokki barna II og lentu
þau í þriðja sæti í latín en fimmta í
standard.
Frá ungmennafélaginu Skipa
skaga mættu fjögur grunnspora
pör. Í flokki barna I (9 ára og yngri)
kepptu þau Mateuzs Dominik
Grzybowski og Aldís Thea Daníels
dóttir og sigruðu þau sína andstæð
inga örugglega. Pörin Almar Kári
Ásgeirsson og Demi Van Den Berg
höfnuðu í fimmta sæti í standard í
barnaflokki II (1011 ára) og Trist
an Sölvi Jóhannsson og Rósa Krist
ín Hafsteinsdóttir fengu fjórða sæt
ið í standard og það sjötta í latín í
sama aldursflokki. Að lokum keppti
eitt dömupar fyrir Skipaskaga, þær
Sigrún Dóra Jónsdóttir og Líf Ra
mundt Kristinsdóttir. Þær keppa í
dömuflokki barna II og dönsuðu
tvo dansa í hvorum flokki. Í stand
ard höfnuðu þær í öðru sæti og í því
þriðja í latín.
Nánari úrslit má finna á vef Dans
íþróttasambands Íslands, www.dsi.
is. Næsta dansmót verður haldið í
Laugardalshöllinni helgina 21.22.
mars, en það verður Íslandsmeist
aramót meistaraflokks í tíudönsum
(þ.e. samanlagður árangur bæði lat
ín og standard), ásamt dansmóti í
grunnsporum.
grþ/gbf
Verðlaunaafhending Íslandsmeistara í latíndönsum ungmenna. F.v. Brynjar Björnsson og Perla Steingrímsdóttir DÍH, Íslands-
meistararnir Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Gints Roberts Berzins DÍK, Harpa Steingrímsdóttir og Kristinn Þór Sigurðsson
DÍH, Friðgerður Sunna Sigurðardóttir og Björn Sverrir Ragnarsson DFB, Kamilla Rós Bjarnadóttir og Reynir Stefánsson DR og
Sindri Guðlaugsson og Aníta Kingo Andersen DÍH. Ljósm. Guðrún Björk Friðriksdóttir.
Góður árangur Vestlendinga á dansmóti