Skessuhorn - 07.10.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 41. tbl. 18. árg. 7. október 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Vökudagar
á Akranesi
29. okt. – 7. nóv.
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Aðfararnótt síðastliðins laugardags snjóaði víða um vestanvert landið. Þennan snjó tók fljótlega upp enda má segja að fullsnemmt sé á almanakinu að hafa alhvíta jörð
til lengdar. Í spákortunum eru þó áframhaldandi umhleypingar og gæti því hæglega fest snjó næstu daga, sérstaklega upp til landsins. Þessa mynd tók Þóra Árnadóttir
á Brennistöðum í Flókadal af nokkrum geitunum á bænum gæða sér á heyrúllu.
Í nýjum Hagvísi sem Vífill Karls-
son hagfræðingur hefur skrifað fyr-
ir Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi er sagt frá könnun á fjölda
ríkisstarfa á Vesturlandi og þróun í
þeim fjölda. Einnig er sagt frá svo-
kölluðum ríkisfjárjöfnuði Vestur-
lands, en hann kom vel fram í loka-
ritgerð Kamillu Rúnar Gísladóttur
í Grundarfirði. Kamilla benti þar á
að Ríkissjóður hafði 24,3 milljarða
króna í tekjur á Vesturlandi árið
2011 en ráðstafaði þar 16,8 millj-
örðum króna. Á grundvelli þessa
segir í hagvísinum að ríkisfjárjöfn-
uður hafi þá verið verulega nei-
kvæður því á Vesturlandi ráðstafaði
ríkissjóður 70% af því fjármagni
sem hann innheimti þar. Þetta má
umorða og segja að samkvæmt
þessu sé slagsíða á ríkisfjárjöfnuði
Vesturlands upp á 30%.
Í þessum Hagvísi SSV nú beindist
rannsóknin hins vegar að ríkisstofn-
unum, hálfopinberum stofnunum
og fyrirtækjum á Vesturlandi, sem
voru fjármögnuð að 2/3 hlutum hið
minnsta af ríkissjóði. Í honum kemur
meðal annars fram að störf á vegum
ríkisins á Vesturlandi voru 819 árið
2015 og hafði fækkað um 22 frá árinu
2013. Þessi fækkun nemur 2,7% á
tveimur árum. Hlutfallslega fækkar
opinberum störfum mest í mennta-
geiranum en fjölgaði mest á vegum
velferðarráðuneytisins sem kemur
aðallega til vegna hjúkrunar- og dval-
arheimila sem ríkið og sveitarfélögin
reka reyndar saman.
Íbúum á Vesturlandi fjölgaði á
þessum tveimur árum úr 15.381 í
15.566, eða um 1,2%. Árið 2013
voru 54,7 ríkisstörf á Vesturlandi á
hverja þúsund íbúa en árið 2015 voru
þau 52,6 og hefur störfum því fækk-
að um 3,9% að þessu leyti á tveim-
ur árum. Árið 2015 voru störfn á veg-
um ríkisins 723 á Vesturlandi ef horft
er eingöngu til þeirra sem unnin eru
af Vestlendingum, eða 46,4 störf á
hverja þúsund íbúa. Árið 2013 var
þessi tala 735 eða 47,8 á hverja þús-
und íbúa sem er 2,9% samdrátt-
ur. Störfum á vegum ríkisins virðist
hafa fækkað á tímabilinu 2005-2015
á Vesturlandi þótt fjöldi nýrra starfa
hafi komið til. Meðal nýrra starfa á
þessum tíma má nefna tvo framhalds-
skóla, þjóðgarð á Snæfellsnesi, Um-
ferðarstofu og Fiskistofu í Stykkis-
hólmi auk Sjávarrannsóknarsetursins
Varar í Snæfellsbæ. Þarna komu til
ríflega 53 ný störf.
Opinberum störfum fækkaði mest
í Borgarbyggð (14,4), í Stykkis-
hólmsbæ (6,6) og í Grundarfjarðarbæ
(5,5). Þeim fjölgaði lítillega á Akra-
nesi, í Dalabyggð og í Snæfellsbæ
(0,5). Opnberum störfum fækkaði
hlutfallslega mest í Skorradalshreppi
(39%), þá Grundarfjarðarbæ (12%)
og síðan í Borgarbyggð (8%) þeg-
ar stuðst var við stöðugildi á hverja
1.000 íbúa.
Hagvísi SSV er að finna á heima-
síðu samtakann ; www.ssv.is
mm
Ríkið skilar 70% þess sem það innheimtir á Vesturlandi
Hlutfallslegur fjöldi ríkisstarfsmanna miðað við hverja
1.000 íbúa. Heimild: Hagvísir SSV.
Taflan sýnir hversu mikið færri opinber störf eru á Vesturlandi
miðað við hverja 1.000 íbúa. Heimild: Hagvísir SSV.