Skessuhorn


Skessuhorn - 07.10.2015, Qupperneq 6

Skessuhorn - 07.10.2015, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 20156 Trillukarlar fagna olíu- verðslækkun LANDIÐ: Meðalverð á litaðri olíu við bátadæl- ur í höfnum landsins hef- ur lækkað um nálega fjórð- ung, eða 24,3% á síðustu tíu mánuðum. Í nóvember í fyrra kostaði olían 164 krónur líterinn en er nú 40 krónum ódýrari. Þetta kemur fram á vef Lands- sambands smábátaeigenda en samtökin hafa fylgst með þróun olíuverðs síð- ustu ellefu mánuði. Ekk- ert lát virðist á verðlækk- unum á olíunni. „Olís býð- ur í dag lægsta lítraverðið 122,60 m.vsk, sem er 4,1% lækkun milli mánaða,“ seg- ir orðrétt á vef samtakanna um leið og félagsmenn eru hvattir til að fylgjast með verðþróuninni, væntanlega til þess að veita olíufélög- unum virkt aðhald. –mþh Hefja vetrarstarf BA AKRANES: Briddsspilar- ar á Akranesi hefja vetrar- starf sitt fimmtudaginn 8. október klukkan 19:30. Að sögn Einars Guðmunds- sonar formanns félagsins verður vetrarstarfið með hefðbundnum hætti, hefst á sama tíma og venjulega og spilað sem fyrr í salnum á þriðju hæði í Kirkjubraut 40. „Allir sem vilja eru vel- komnir að spila með okk- ur,“ segir Einar. –mm Áfram hreyfing á fylgi flokkanna LANDIÐ: Sjálfstæðisflokk- urinn eykur fylgi sitt um tæp þrjú prósentustig milli mán- aða og mælist með 24%. Pí- ratar mælast stærsti flokkur- inn líkt og undanfarna mán- uði og var fylgi þeirra 35% í september. Þetta kem- ur fram í nýjasta þjóðar- púlsi Gallup. 11% sögðust myndu kjósa Vinstrihreyf- inguna - grænt framboð, 10% Framsóknarflokk- inn annars vegar og Sam- fylkinguna hins vegar og um 6% Bjarta framtíð. 5% sögðust myndu kjósa aðra flokka en nú eiga sæti á Al- þingi. Stuðningur við ríkis- stjórnina jókst um tvö pró- sentustig milli mánaða, en liðlega 36% þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja hana. –mm Eyðum meiru en við öflum LANDIÐ: 8,4 milljarða króna halli var á vöruskipt- um við útlönd fyrstu átta mánuði þessa árs sem þýð- ir að Íslendingar eyða meiru en þeir afla. Fyrstu átta mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir tæpa 432,3 millj- arða króna en inn fyrir rúma 440,6 milljarða króna fob. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 5,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuður- inn var því 3,1 milljörðum króna lakari en á sama tíma í fyrra. Í frétt Hagstofunnar segir að í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 47,1 milljarð króna og inn fyr- ir 48,9 milljarða króna fob sem þýðir að vöruskiptin voru óhagstæð um 1,8 millj- arð króna. Í ágúst 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 2,3 milljarða króna á gengi hvors árs. –mm Veiddu 29 hrefnur í sumar FAXAFLÓI: Alls veidd- ust 29 hrefnur við Ísland í sumar og voru allar skotnar í Faxaflóa. Aðeins einn bát- ur, Hrafnreyður KÓ, stund- aði veiðarnar að þessu sinni. Gunnar Bergmann Jóns- son talsmaður hrefnuveiði- manna segir í samtali við sjávarútvegsblaðið Fisk- fréttir að menn hefðu vilj- að veiða 35 til 40 dýr í sum- ar. Verkfall dýralækna fyrri hluta sumars hafi hins vegar hamlað veiðum og því hafi minna orðið úr vertíðinni en vonir stóðu til. Mark- aður fyrir hrefnukjöt er tal- inn ágætur og fara um 65% af því til veitingahúsa en hitt í verslanir. Í fyrravetur varð skortur á hrefnukjöti í landinu og var þá brugðið á það ráð að flytja það inn frá Noregi. Komi slíkur skortur upp í vetur þá segir Gunn- ar að menn séu tilbúnir að gera slíkar ráðstafanir aftur á vetri komanda. –mþh Félagið Gullberi ehf. á og rekur tvær aðskildar hitaveitur í Lund- arreykadal í Borgarfirði, en hlut- hafar félagsins eru ábúendur jarða í dalnum. Framdalurinn fær vatn úr borholu á Englandi. Vatn í neðri hluta veitunnar kemur hins vegar úr borholu í landi Snartarstaða og er dælt um alla sveitina. Nú hefur verið ákveðið að endurnýja hluta af tveimur leggjum í veitunni. Annars vegar frá Lundi II að Oddsstöðum en hins vegar frá Snartarstöðum að Kistufelli. Samtals er þetta um átta kílómetra kafli og verður unnið að framkvæmdum þegar veður leyfir í haust. Gamla lögnin er úr plasti og var farin að gefa sig enda er plastið ekki framleitt til að þola meira en 20 ára endingartíma, sérstaklega ekki þegar saman fer mikill þrýstingur og heitt vatn, en vatnið frá Snartar- stöðum er um 99 gráðu heitt í bor- holunni. Nú verður lögnin lögð í einangraða stállögn. Umsjón með verkinu hafa feðgarnir Árni Ingv- arsson og Þorvaldur Árnason sem reka Búhag ehf. á Skarði. Guðmundur Þorsteinsson er for- maður stjórnar Gullbera ehf. Að- spurður segir hann að kostnaður við verkið sé áætlaður um 40 milljón- ir króna auk virðisaukaskatts. „Við fjármögnum þetta að hluta með eigið fé, en það sem upp á vantar fáum við að láni hjá Arion banka í Borgarnesi, sem hefur sýnt sér- staka lipurð í samskiptum og veitt ágæta þjónustu,“ segir Guðmund- ur. Hann segir óhjákvæmilegt að hækka afnotagjald verulega af veit- unni, en samt sé verðið hagstætt miðað við sambærilegar hitaveit- ur. Gullberi ehf. er félag sem auk hitaveitunnar á jörðina Gullbera- staði og nýtur laxveiðihlunninda úr Grímsá. Sú eign hefur gert vatns- veituna í Lundarreykjadal hagstæð- ari íbúum dalsins en gerist og geng- ur. mm Endurnýja hitaveitu í Lundarreykjadal Frá því Fjöliðjan í Borgarnesi var stofnsett um aldamótin síðustu hefur starfsemin verið til húsa í gömlu slökkvistöðinni við Kveld- úlfsgötu 2b. Nú hefur Borgar- byggð hins vegar selt það húsnæði og til stendur að Fjöliðjan verði flutt út í Brákarey, í húsnæði sem áður hýsti kjötvinnsluna í Borgar- nesi. Að sögn Helga Guðmundsson- ar, verkstjóra Fjöliðjunnar í Borg- arnesi, hefur þegar verið hafist handa við að lagfæra húsnæðið og áætlað er að Fjöliðjan verði flutt inn 1. desember næstkomandi. „Það fer reyndar eftir því hvern- ig gengur að lagfæra húsnæðið en það hefur verið miðað við að við verðum flutt inn um mánaðamót- in nóvember-desember. Það gæti auðvitað breyst, þessi dagsetning er fyrst og fremst gefin upp til við- miðunar,“ segir Helgi. Alls starfa um 15 manns hjá Fjöliðjunni og munu báðar deildir hennar flytja alla starfsemi sína út í Brákarey. „Hæfingin verður þar sem matsalur kjötvinnslunnar var áður og nú síðast morgunkorns- framleiðsla. Umbúðamóttakan og afgreiðsla því viðkomandi verður þar sem áleggspökkunin var,“ seg- ir hann. „Við flytjum þarna í hús- næði sem er rúmbetra en það sem við vorum í áður og þjónar okkar starfsemi betur,“ bætir Helgi við. kgk Horft yfir Snartarstaði í Lundarreykjadal. Ljósm. Mats. Fjöliðjan í Borgarnesi verður flutt í Brákarey Ölver Þráinn Bjarnason og Guðmundur Ingi Einarsson að störfum í Fjöliðjunni í Borgarnesi.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.