Skessuhorn - 07.10.2015, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2015 13
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2015
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudaginn 15. október
Föstudaginn 16. október
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Arnór Ísfjörð Guðmundsson hefur
stofnað fyrirtækið AIG stál í Ólafs-
vík. Enn sem komið er starfar hann
einn við fyrirtækið og segir meira
en nóg að gera og sjái nú fram á að
þurfa að ráða mann með sér. Arnór
starfar einnig sem leiðsögumaður í
laxveiði á sumrin. Hann er að upp-
lagi sjómaður en lenti í slysi og varð
að hætta á sjó og í framhaldi þess
að finna sér annað að gera. „Ég fór
að fikta við stálsmíðar en fór samt á
síldveiðar eftir slysið. Ég byrjaði á
að smíða síldarhristara á smábátinn
sem ég var með og annan útbúnað
til að létta störfin um borð í bátn-
um. Síðan fór þetta að vinda upp á
sig. Svo þegar makrílinn kom setti
ég upp búnað í þrjá báta. Eftir það
fór ég að vinna í Ægi sjávarfangi og
var að smíða þar samhliða öðrum
störfum.“
Arnór segir að þegar hann var í
Ægi sjávarfangi hafi hann lært mikið
af Ásgeiri Valdimarssyni sem er vél-
stjóri þar og fór þá að smíða flókn-
ari hluti. „Ég á því Ásgeiri mikið að
þakka. Eftir áramót 2015 fór ég að
spá í að opna lítið smíðafyrirtæki
og fór síðan að kaupa mér tæki. Ég
hætti alfarið starfi mínu í Ægi í vor
og fór að smíða ásamt því að sinna
leiðsögn í laxveiðinni.“ Arnór segist
vera með aðstöðu í skúr hjá tengda-
foreldrum sínum en sé að leita að
hentugu húsnæði. Það hafi hins veg-
ar gengið fremur illa.
Kvíðir ekki
verkefnaskorti
„Ég er fjarnámi í stálmíði með þess-
ari vinnu en ég hef haft meira en
nóg að gera. Ég hef meðal annars
verið að gera skilti fyrir veiðistaði og
sinna ýmissi sérsmíði.“ Þegar frétta-
ritara bar að garði var Arnór að end-
urnýja pall á bryggjubíl. „Ég tek að
mér allskonar verkefni. Einnig hef
ég unnið mikið fyrir fiskeldisstöðvar
og veiðifélög á Suðurlandi.“ Arnór
segist ekki kvíða verkendaskorti og
sé með stórt verkefni í undirbúningi
sem hann ráði ekki einn við og þurfi
því að bæta manni við. Hann segir
að það sé nóg að gera hjá öllum iðn-
aðarmönnum í Snæfellsbæ.
„AIG stál sinnir eingöngu smíði
og er ég ekki að taka að mér upp-
tekt véla, skipta um startara eða þess
háttar. „Það eru önnur fyrirtæki sem
sjá um það,“ segir Arnór að lokum
og heldur áfram við vinnu sína við
bryggjubílinn. af
Fyrirtækið AIG stál stofnað í Ólafsvík
Arnór við vinnu sína í skúrnum. Hann leitar nú að hentugra húsnæði.
Pallur smíðaður á bryggjubílinn.
Dag ur í lífi...
Nafn: Emma Rakel
Björnsdóttir.
Fjölskylduhagir/bú-
seta: Ég bý ein í íbúð á
Akranesi.
Starfsheiti/fyrirtæki:
Starfsmaður í Fjöliðj-
unni.
Áhugamál: Það er svo
margt, til dæmis sund,
að hjóla, að vera í tölv-
unni og að vera með
vinum mínum.
Miðvikudagurinn
30. september 2015.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði ekki fyrr en
11 og það fyrsta sem ég gerði
var að fá mér morgunmat.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Ég fékk mér bara fjör-
mjólk í morgunmat.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég mætti klukkan 13
í vinnuna og fór á hjóli.
Fyrstu verk í vinnunni: Það
fyrsta sem ég gerði var að byrja
að líma á stikur.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Ég var bara að slappa af hjá
mömmu og pabba. Ég fer alltaf
til þeirra í hádeginu.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Þá var ég í kaffi.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti fimm mínútur í fjögur. Við
hættum alltaf þá eða aðeins fyrr,
ef við höfum verið dugleg. Það
síðasta sem ég gerði var að líma,
ég var að líma allan þennan dag.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Þá
fór ég í Krónuna að versla fyrir
mömmu og svo heim til mömmu
og pabba.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Kjötfars með brauði. Ég
eldaði fyrir mig og Adda bróð-
ur minn.
Hvernig var kvöldið? Ég fór á
boccia æfingu frá kl. 18 til 19.
Við vorum að æfa fyrir mót. Svo
fór ég til Adda, ég fór í tölvuna
og Addi kom aðeins til mín í
heimsókn.
Hvenær fórstu að sofa? Ég
fór ekki að sofa fyrr en klukkan
svona eitt.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Ég kíkti í tölvuna áður en
ég fór að sofa.
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Það er spurning, ætli það
hafi ekki verið boccia æfingin.
Ég vann Áslaugu.
Eitthvað að lokum? Áfram
Þjótur og áfram ÍA!
Starfsmanns hjá Fjöliðjunni
21:00 Tónleikar með Ylju og Teiti Magnússyni á RúBen, aðgangseyrir kr. 2.000
15:00 Konurnar okkar – sögusýning vegna kosningaréttar kvenna í 100 ár. Sunna,
Rauða krossins.
20:00 Konukvöld Gleym mér ei í Sögumiðstöð
MIÐVIKUDAGUR 7.OKTÓBER
FIMMTUDAGUR 8.OKTÓBER
FÖSTUDAGUR 9.OKTÓBER
LAUGARDAGUR 10.OKTÓBER
SUNNUDAGUR 11.OKTÓBER
MÁNUDAGUR 12.OKTÓBER
ÞRIÐJUDAGUR 13.OKTÓBER
FIMMTUDAGUR 15.OKTÓBER
LAUGARDAGUR 17.OKTÓBER
VERIÐ VELKOMIN OG
GRUNDARFIRÐI
DAGSKRÁ 7.-17. OKT. 2015
GÓÐA SKEMMTUN!
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
SPEGLAR SKORNIR AÐ
ÞÍNUM ÓSKUM
LED LÝSING - SANDBLÁSUM
ispan@ispan.is • ispan.is
30%
afsláttur af speglum