Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2015, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 28.10.2015, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 20158 Einn í tjaldi í frosti og snjó BORGARNES: Sitthvað kem- ur fram í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi fyrir liðna viku. Lög- regla hugaði m.a. að tjaldbúa í ein- mana tjaldi sem var á tjaldstæðinu í Borgarnesi um helgina. Kom í ljós að í því bjó bandarískur ferðamað- ur og að ekkert amaði að honum. Hann var hinn hressasti og kvaðst hafa upplifað mun meiri kulda á hálendinu á ferð sinni um landið á undanförnum vikum. Hann var með góðan svefnpoka og bauð lög- reglan honum góða nótt. Lögregl- an hefur náð að upplýsa töluvert af þeim innbrotum sem framin voru í sumarbústaði í héraðinu að undan- förnu. Um par var að ræða sem á tenginu við héraðið en býr á höf- uðborgarsvæðinu. Fimm umferð- aróhöpp urðu í umdæmi LVL í vik- unni, flest tengd vetrarfærð. Ekið var á hross neðan við Munaðarnes en hrossin höfðu sloppið út úr girð- ingu þar skammt frá. Bíllinn, pall- bifreið, er ónýtur, en ökumaður- inn slapp lítið meiddur. Þrjú hross drápust við ákeyrsluna. Ökumað- ur lenti í vandræðum undir Hafn- arfjalli vegna hjólbarða sem sprakk hjá honum. Hann fipaðist við akst- urinn og bíllinn snerist og rásaði til á veginum í hálku og krapa. Það varð síðan til þess að ökumaður sem kom úr gangstæðri átt beygði yfir á öfugan vegarhelming og hafnaði þar utan í bifreið sem kom á móti honum. Bíllinn sem að hjólbarð- inn sprakk á slapp hins vegar alveg og hélt áfram þar til að hann stöðv- aði til að skipta um dekk. Ökumað- ur missti stjórn á bifreið sinni móts við Grjóteyri á sunnudag í hálku og fór bifreiðin útaf og valt. Öku- maðurinn hlaut minniháttar áverka sem gert var að á heilsugæslustöð- inni í Borgarnesi. Loks voru tveir ökumenn teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. -mm Ellefu sækja um starf skógræktar- stjóra LANDIÐ: Sigríður Júlía Bryn- leifsdóttir framkvæmdastjóri Vest- urlandsskóga er meðal ellefu um- sækjenda um starf skógræktar- stjóra. Umsóknarfrestur rann út 19. október síðastliðinn og mun nú valnefnd meta hæfni og hæfi um- sækjenda ásamt því að skila grein- argerð til umverfisráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára. Auk Sigríðar sóttu um starfið Aðal- steinn Sigurgeirsson skógfræðing- ur, Björn Bjarndal Jónsson fram- kvæmdasjóri, Edda Sigurdís Odds- dóttir líffræðingur, Guðmund- ur Guðbergsson Platoon Comm- ander, Hreinn Óskarsson skóg- fræðingur, Jón Ágúst Jónsson for- stöðumaður, Lárus Heiðarsson skógræktarráðunautur, Loftur Þór Jónsson lektor, Páll Sigurðsson Ph.D og skógfræðingur og Þröstur Eysteinsson sviðsstjóri Þjóðskóg- anna. –mm Margir á rjúpu VESTURLAND: Mikið var um rjúpnaskyttur í Borgarfirði fyrstu helgina á veiðitímabilinu, sérstak- lega á Holtavörðuheiði og Bröttu- brekku. Þeir veiðimenn sem lög- reglan hafði afskipti af reyndust vera með byssuleyfi og veiðikort og rétt skráðar byssur. Samkvæmt lögreglu var mikið skotið á rjúpna- slóðum, en lögregla hafði ekki upplýsingar um veiði. Samkvæmt heimildum Skessuhorns náðu ein- hverjir veiðimenn nógu í jólamat- inn, meðan aðrir þurfa að fara aftur til að ljúka því ætlunarverki. -mm Senda stuðnings- yfirlýsingu til Ísalfólks GRUNDART: „Trúnaðarráð starfsmanna Norðuáls styður starfsmenn og trúnaðarráð Rio Tinto ÍSAL í báráttu þeirra fyrir bættum kjörum og í að koma í veg fyrir félagslegt undirboð á starfs- svæði Rio Tinto ÍSAL,“ segir í fréttatilkynningu frá trúnaðarráði starfsmanna Norðuráls á Grund- artanga. „Það er er hagur okkar allra launamanna að standa saman og verja okkar laun og vinnu með því að leyfa ekki félagslegt und- irboð og koma í veg fyrir aukna verktöku, þar sem yfirleitt er ráð- ið inn fólk sem eru á verri kjörum en eru á innan fyrirtækjanna sem sækja í aukna vertöku og er um leið aðför að samningsbundn- um kjörum. Trúnaðarráð starfs- manna stendur heilshugar á bak- við starfsmenn Rio Tinto ÍSAL sem og aðra launamenn sem eru í kjarabaráttu,“ segir í yfirlýsingu trúnaðarmannaráðsins. –mm Hefja aðaltví- menning í næstu viku BORGARFJ: Borgfirskir bridds- spilarar öttu kappi í Logalandi að kveldi 26. október sl. Mæting var með ágætum en 13 pör mættu til leiks. Spiluð voru 24 spil. And- kílingarnir Sveinn Hallgrímsson á Vatnshömrum og Gylfi Sveins- son á Hvanneyri léku við hvurn sinn fingur og komu í mark með 69% skor! Næstir þeim urðu for- maðurinn, Jón Eyjólfsson á Kópa- reykjum, og makker hans Baldur í Múlakoti, en þeir náðu rúmum 64% sem oftast dugar til sigurs. Aðrir skoruðu minna og sum- ir jafnvel miklu minna. Í næstu viku hefst svo aðaltvímenningur félagsins og verður hann leikinn á fimm mánudagskvöldum. Spil- að verður með forgefnum spil- um. Aðeins nokkur sæti eru laus og því vissara að mæta tímanlega til skráningar. Spilamennska hefst eins og vanalega klukkan 20:00 í betri stofu Logalands. –ij Bjartmar í Logalandi BORARFJ: Bjartmar Guðlaugs- son heldur tónleika í Logalandi í Reykholtsdal næstkomandi laug- ardagskvöld. Hann flytur þar öll sín þekktustu lög og mun ef- laust detta í sögugírinn svo það er von á virkilega góðri kvöld- stund í Logalandi, segir í tilkynn- ingu. Húsið verður opnað kl. 20 og tónleikarnir hefjast kl. 21 og standa í u.þ.b. tvær klukkustund- ir. Aðgangseyrir er 2.500 kr. –mm Færri brautskráðir úr námi LANDIÐ: Skólaárið 2012-2013 brautskráðust færri nemendur úr skólum á Íslandi en árið á undan, bæði á framhalds- og háskólastigi. Í samantekt Hagstofunnar kemur fram að brautskráðum háskóla- nemum fækkaði um 78 (-1,9%) frá fyrra ári og er þetta annað árið í röð sem brautskráðum háskóla- nemum fækkar. Á framhalds- skólastigi fækkaði brautskráðum nemendum um 238 frá fyrra ári, eða um 3,9%. –mm Kvenfélagið 19. júní starfar á Hvanneyri, í Andakíl, Bæjarsveit og Skorradal. Félagið var stofnað árið 1938 og hefur unnið ötullega að mannúðarmálum í héraðinu. Á þessu ári þegar konur halda upp á 100 ára afmæli kosningaréttar á Ís- landi hefur starf kvenfélagsins ver- ið með miklum blóma. „Það sem einna merkilegast er á vettvangi félagsins að margar ungar konur gengu til liðs við okkur á þessu ári. Ellefu ungar og kraftmiklar kon- ur óskuðu eftir að fá að leggja fé- laginu lið í starfinu og er fjölgun- in um 25% í félaginu. Við sem fyrir vorum erum mjög ánægðar með að fá liðsauka. Starfið verður öflugra og margar hendur vinna létt verk,“ segir Rósa Marinósdóttir, formað- ur 19. júní. mm „Við erum að fá núna á bilinu 280 og 290 krónur fyrir kílóið af þess- um væna þorski. Í byrjun októ- ber var verðið um hundrað krón- um hærra en það hefur hríðfall- ið. Ég veit ekki hvað er að ger- ast. Krónan hefur reyndar verið að styrkjast í haust, meðal annars vegna velgengni ferðaþjónustunn- ar og góðrar gjaldeyrisöflunar þar, en það skýrir ekki allt. Það hefur verið sagt að góðar gæftir og afla- bröð norðanlands valdi þessu. Það getur verið en þar eru þeir ekki að fá svona stóran fisk. Það eru kaup- endur hér sunnanlands sem eru að kaupa þorskinn frá okkur, þeir eru ekki að versla þetta fyrir norðan,“ segir Eiður Ólafsson skipstjóri og útgerðarmaður á netabátnum Ísak AK. Verðþróunin vonbrigði Eiður dró ekki dul á að verðþróun- un á þorski sem hann hefur selt af báti sínum á fiskmarkaði nú í haust hefur valdið honum vonbrigðum. „Maður hélt samkvæmt reynslu fyrri ára að þessar haustvikur ættu að vera besti tíminn með góðri eftir- spurn og ágætum verðum. Skýring- in væri sú að menn væru að hugsa um hráefni í jólaþorskinn, svo sem til söltunar, en það virðist ekki vera. Á þessum tíma fyrir ári þá vorum við að fá allavega hundrað krónum meira fyrir kílóið af þessum þorski heldur en við fáum í dag.“ Við spurningu um það hvort út- gerðin sé nú komin að hungur- mörkum og tímabært sé að hætta og selja bát, búnað og kvóta svar- ar hann: „Maður veit aldrei. Það eru mjög margir einyrkjar að gef- ast upp á útgerð. Það eru svo litlar heimildir á þessum bátum. Svona bátur þyrfti að hafa allavega 140 tonna þorskkvóta á ársgrundvelli ef vel ætti að vera. Ég er með ein- hver 70 – 80 tonn. Svo bætast veiði- gjöldin við allan annan kostnað. Rekstur á svona bátum er hættur að standa undir sér. Við þessar að- stæður er bara sjálfhætt. Við vorum á makrílveiðum í sumar og það var afar döpur afkoma á þeim þó veiðin væri oft góð.“ Vel haldinn þorskur Eiður rær sjálfur á bát sínum frá Akranesi. Með honum er ann- ar Skagamaður, Stefán Þór Þóris- son. Þegar blaðamaður Skesshorns hitti þá félaga að máli í síðustu viku voru þeir að landa dagsafla sínum í Akraneshöfn. „Það er búið að vera aðeins kropp en ekki mikið. Eig- inlega er fiskiríið búið að vera lé- legt mjög víða hér í Faxaflóa und- anfarið. Dragnótabátarnir eru til að mynda ekki að fá neitt. Þeir grenja alvega svakalega.“ Þeir á Ísak eru sem fyrr var greint á netaveiðum. „Við höfum verið hér við Baulurifið svokallaða um sjö mílur hér suðvestur af Akranesi. Þetta er bara rétt varla klukkutími að sigla þangað. Þetta er dagsaflinn sem við erum að landa núna. Eitt- hvað um 700 kíló í 55 net sem lágu í sex trossum. Við erum með átta og níu tommu riðla sem möskvastærð í netunum. Mest níu tommu.“ Eiður Ólafsson segir að þorskur- inn sem nú veiðist sé þó vænn og vel haldinn. Meðalviktin á þessum sem við erum að fá núna er um 12 kíló hver fiskur. Þorskurinn er að éta síli. Það er sjá að eitthvað sé til af því þó eflaust hafi makríllinn tek- ið sinn toll af æti á grunnslóðinni nú í sumar. Við reiknum með að vera á þessum veiðum fram að jól- um.“ mþh Mæðgurnar Nanna Guðjónsdótt- ir og Hrönn Huld Baldursdótt- ir standa þessa dagana og vikurnar fyrir fjársöfnun til hjálpar Guðrúnu Nönnu Egilsdóttur sem er haldin taugasjúkdómnum Spinal Muscular Atropy (SMA). Guðrún Nanna er dóttir Hrannar og því dótturdótt- ir Nönnu. Sjúkdómur Nönnu leið- ir til lömunar. „Það er ekki til nein meðferð eins og er en við erum að safna fyrir hana til að verða tilbú- in til að standa straum af kostnaði þegar það verður. Líðan Guðrúnar Nönnu er stöðug eins og er. Hún gat gengið fram til tíu ára aldurs en er nú í hjólastól og stundar nám í Borgarholtsskóla með unnusta sín- um. Hún er nú 21 árs og hefur ekki getað gengið í 11 ár.“ Framfarir eru örar í læknisfræði og rannsókn- ir standa yfir sem lofa góðu um að hægt verði að finna lækningu í ná- inni framtíð. Fjármunum safna þær mæðgur með því að selja ýmsa fallega smá- hluti, svo sem eyrnalokka, hálsmen, bókmerki og fleira. Þær mæðgur voru í Bónus í Stykkishólmi á föstu- daginn og í Búðardal um helgina þegar Haustfagnaður fór fram í héraðinu. „Fyrir mánuði vorum við í Ólafsvík og Grundarfirði og einnig á Akranesi. Það seldust svo margar vörur upp að við urðum að gera hlé og förum því aftur af stað núna,“ sögðu þær þar sem þær voru staddar í verluninni Virkinu í Rifi á Snæfellsnesi á fimmtudaginn þegar blaðamaður Skessuhorns hitt þær. Nánari upplýsingar um söfn- unina má finna á Facebook-síðunni Styrktarsjóður Guðrúnar Nönnu. mþh Selja muni til styrktar ungri konu með taugasjúkdóm Þær mæðgur Nanna og Hrönn Huld í versluninni Virkinu í Rifi á Snæfellsnesi. Fundur var haldinn í kvenfélaginu þriðjudaginn 20. október og við það tilefni var myndin tekin af nokkrum þeirra kvenna sem á þessu ári gengu í félagið. Ellefu nýir liðsfélagar í Kvenfélaginu 19. júní Lélegt þorskverð hjá bátaflotanum Stefán Þór Þórisson háseti sveiflar þorski upp í eitt karið sem á að fara á fiskmarkaðinn á Akranesi. Eiður skip- stjóri álengdar. Eiður Ólafsson landar þorskinum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.