Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2015, Síða 14

Skessuhorn - 28.10.2015, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 201514 Ragnheiður Þorgrímsdóttir bóndi á Kúludalsá við Hvalfjörð hefur sent forstjóra Umhverfisstofnunar ítar- legt bréf þar sem hún gerir alvar- legar athugasemdir við tillögu Um- hverfisstofnunar um að veita Norð- uráli á Grundartanga starfsleyfi fyr- ir aukna framleiðslu um 50 þúsund tonn á ári. Ragnheiður á og rekur býlið Kúludalsá þar sem búið er með hross og rekin ferðaþjónusta ásamt námskeiðahaldi. Ítrekað hefur sjúk- dómur komið upp í hrossum á Kúlu- dalsá sem Ragnheiður telur að rekja megi til flúormengunar frá álverk- smiðjunni. Kúludalsá liggur um 4,5 kílómetra vestan við Grundartanga en á svæðinu eru austanáttir ríkjandi. „Þegar blæs af austri leggur loft- mengun frá Grundartanga yfir býl- ið. Veikindi hrossa á Kúludalsá eru tíð eftir mengunarslys hjá Norður- áli 2006,“ segir Ragnheiður í upphafi bréfs síns til Umhverfisstofnunar. Athugasemdir Ragnheiðar og kröfur vegna tillögu Umhverfis- stofnunar að nýju starfsleyfi fyrir Norðurál eru einkum eftirfarandi og fylgir þeim rökstuðningur sem lesa má í bréfi til stofnunarinnar. Í er- indi sínu segir hún jafnframt að hefja þurfi nú þegar rannsóknir á langtíma áhrifum flúors á íslenskt búfé. Hún gagnrýnir viðhorf Umhverfisstofn- unar um að slík þekking sé til stað- ar og á henni sé unnt að byggja við- mið um núverandi útsleppi Norð- uráls á flúori. Ragnheiður mótmæl- ir harðlega að utanumhald umhverf- isvöktunar vegna mengunar Norð- uráls verði áfram í höndum forsvars- manna iðjuversins. Loks krefst hún þess að loftborinn flúor og önnur skaðleg efni séu mæld allan ársins hring og niðurstöður birtar á raun- tíma. „Augljóslega er ekki að marka tölur um flúormengun frá Norður- áli vegna þess að mælingar fara ein- ungis fram hálft árið utan þynning- arsvæða iðjuveranna, þar sem stund- aður er hefðbundinn búskapur.“ mm Setja aukinn kraft í loðnuleit MIÐIN: Sjávarútvegsráð- herra hefur ákveðið í sam- ráði við Hafrannsóknastofnun að farið verði í annan loðnu- leiðangur í nóvember til að freista þess að ná betri mæl- ingu á loðnustofninum en var reyndin í hinum hefðbundna haustleiðangri sem skilaði afar litlum árangri mælt í ráðgjöf fyrir vetrarvertíð. Eftir sem áður er gert ráð fyrir að Haf- rannsóknastofnun fari í hefð- undna loðnuleit í janúar og febrúar. Árangur slíkrar leitar veltur hins vegar mjög á að- stæðum og hegðun loðnunn- ar. Stofnunin hefur aðeins yfir tveimur skipum að ráða og veðurfar oft rysjótt á þessum árstíma sem sett getur strik í reikninginn. „Mjög mikils virði í þessu samhengi er að ís- lenskar útgerðir hafi aflaheim- ildir í upphafi vertíðar en þá aukast til muna líkur á því með fjölda skipa að finna loðnuna en hegðun hennar hefur verið býsna óútreiknanleg hin síð- ari ár,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. –mm Aflatölur fyrir Vesturland 17. - 23. október. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 8 bátar. Heildarlöndun: 31.028 kg. Mestur afli: Ísak AK: 14.835 kg í sex löndunum. Arnarstapi 6 bátar. Heildarlöndun: 40.246 kg. Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs SH: 12.277 kg í tveimur lönd- unum. Grundarfjörður 7 bátar. Heildarlöndun: 270.928 kg. Mestur afli: Steinunn SH: 100.842 kg í tveimur löndun- um. Ólafsvík 10 bátar. Heildarlöndun: 65.077 kg. Mestur afli: Guðmundur Jensson SH: 16.354 kg í þrem- ur löndunum. Rif 12 bátar. Heildarlöndun: 221.452 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 68.284 kg í einni löndun. Stykkishólmur 8 bátar. Heildarlöndun: 57.130 kg. Mestur afli: Hannes Andr- ésson SH: 33.897 kg í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Rifsnes SH – RIF: 68.284 kg. 21. október 2. Hringur SH – GRU: 67.484 kg 21. október 3. Steinunn SF – GRU: 66.597 kg. 18. október 4. Grundfirðingur SH – GRU: 50.697 kg. 20. október 5. Helgi SH – GRU: 44.899 kg. 19. október. mþh Nú er vetur skollinn á með hvítri fönn og tilheyrandi kulda. Fyrir því fengu tveir erlendir ferðamenn að finna fyrr í vikunni þegar þeir ætl- uðu að ferðast til Akureyrar eft- ir dvöl á Snæfellsnesi. Fóru þeir í gegnum Dali og ætluðu beina leið yfir Haukadalsskarð sem var skráð greiðfært. Þegar ferðamennirnir voru komnir langleiðina upp á efsta punkt skarðsins reyndu þeir að spóla sig í gegnum skafl og misstu þeir þá bifreiðina út af. Þar sem síma- sambandslaust er uppi tóku þeir til þess bragðs að ganga til byggða og þökkuðu þeir sínum sæla þegar þeir mættu bændum við Kirkjufellsrétt eftir um fimm kílómetra göngu en þeir sömu hjálpuðu til við að kalla út dráttarbíl frá KM þjónustunni í Búðardal. Annar ferðamaðurinn var með auka skófatnað í bílnum og greip hann með sér þegar þeir hófu gönguna frá bílnum. Það kom hon- um vel þegar þurfti að vaða yfir á en hinn ferðafélaginn þurfti að gera sér lítið fyrir og vaða ána berfætt- ur. Það voru því kaldir en þakklátir ferðamenn sem kvöddu Dali en þeir sögðust ætla að koma aftur síðar að sumarlagi til að skoða veginn yfir Haukadalsskarð. sm Erlendir ferðamenn lentu í hrakningum á Haukadalsskarði Samtökin Umhverfisvaktin við Hvalfjörð sendi í síðustu viku ít- arlegar athugasemdir vegna nýs starfsleyfis fyrir álver Norðuráls á Grundartanga. Í því leyfi felst að leyft verði að auka álframleiðsluna úr 300 þúsund tonnum í 350 þús- und tonn árlega. Þessu mótmæl- ir Umhverfisvaktin harðlega og leggst alfarið gegn stækkuninni. Umhverfisvaktin við Hvalfjörð rökstyður andmæli sín meðal ann- ars með fullyrðingum um að vökt- un á mengun frá Norðuráli hafi ekki verið fullnægjandi. Það sé því ekki hægt að treysta niðurstöð- um hennar. Sömuleiðis er því ein- arðlega mótmælt að Norðurál hafi áfram umsjón með vöktun, mæl- ingum og mati á þeim, ásamt út- gáfu skýrslna vegna eigin mengun- ar. „Umhverfisvaktin gerir athuga- semd við það að rekstaraaðili eigi að ábyrgjast mælingar vegna eigin mengunar. Það er órökrétt því það gefur rekstaraðila óeðlilegt svig- rúm til að höndla með upplýsing- ar sem hafa afgerandi áhrif á hans eigin rekstur. Það hlýtur einnig að teljast ósanngjarnt gagnvart öðr- um atvinnugreinum á Íslandi sem búa við mun strangara eftirlit með starfsemi sinni,“ má meðal annars lesa í athugasemdum Umhverfis- vaktarinnar. Þess er og krafist að mælingar á loftmengun vegna flúors og ann- arra eiturefna utan þynningarsvæð- is álversins á Grundartanga fari fram með fullnægjandi hætti allan ársins hring. Flúor í andrúmslofti mun aðeins vera mældur hálft árið. Umhverfisvaktin mótmælir jafn- framt fullyrðingum forsvarsmanna Norðuráls um skaðleysi framleiðsl- unnar gagnvart búfé sem röngum. Annað hafi komið í ljós þó fyrir- tækið beiti slíkum fullyrðingum til stuðnings ýmsum kröfum sínum. Lesa má athugasemdir Umhverf- isvaktarinnar við Hvalfjörð við ein- staka liði í tillögu Umhverfisstofn- unar í heild á vefnum samtakanna (umhverfisvaktin.is). mþh Mótmæla harðlega stækkun álvers á Grundartanga Hráefni til álframleiðslu skipað á land við Grundartanga fyrr í þessum mánuði. Bæjarráð Grundarfjarðar mælir ekki með því að Grundarfjarðar- bær taki þátt í að kaupa fiskiskip- ið Haukaberg SH 20. Skipið var selt ásamt aflaheimildum í sumar til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Haukaberg mun nú vera til sölu án aflaheimilda. Sigmar Hrafn Eyjólfs- son sem var stýrimaður á Hauka- bergi sendi bréf til Grundarfjarðar- bæjar í byrjun október þar sem velt var upp hugmyndum um möguleg kaup bæjarins á skipinu. „Ég lagði upp hugmyndir um samstarf þar sem við myndum síðan veiða þann byggðakvóta sem Grundarfjörður fær úthlutað,“ staðfestir Sigmar við Skessuhorn. „Bæjarráð hafnaði því að fara í slíkt samstarf á þeim for- sendum sem ég lagði upp. Það er þá kannski spurning á hvaða forsend- um bærinn væri hugsanlega til í að taka þátt í einhverju svona,“ spyr Sigmar. mþh Haukaberg SH til sölu Haukaberg SH stóð fyrr í þessum mánuði upp í slippnum hjá Skipavík í Stykkishólmi og mun vera til sölu án aflaheimilda. Skipið var smíðað hjá Þ&E á Akranesi árið 1974. Leggst gegn starfsleyfi fyrir aukinni framleiðslu Ljósmynd þessi sýnir jaxla í hryssunni Litlu Glóð IS1997235303 frá Kúludalsá sem felld var í febrúar 2012, þá 15 vetra. Hestur frá Ragnheiði sem var veikur í fyrra þannig að hann átti erfitt með að standa upp og gat sig varla hreyft. Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði hélt kótilettukvöld fimmtudagskvöldið 15. október og er óhætt að segja að þetta árlega tiltæki hafi fallið vel í kramið hjá Grund- firðingum því aldrei hefur mæting- in verið jafn góð. Þarna voru kótil- ettur í raspi, grænar baunir, rauðkál, kartöflur, sulta og smjör eins og lög gera ráð fyrir. Blakdeildin bauð upp á happdrætti ásamt mjög vel heppn- uðum skemmtiatriðum og var mikið hlegið þetta kvöld. Kótilettukvöld- ið var inni í dagskrá Rökkurdaga en þeir kláruðust svo á laugardaginn á fiskisúpukvöldi Northern Wave film festival, eins og kemur fram á öðrum stað í blaðinu. tfk Kótilettukvöld blakkvenna Matgæðingarnir Hjalti Allan Sverrisson, Lísa Ásgeirsdóttir kona hans á móti honum og svo Kjartan Sigurjónsson við hliðina á Lísu. Miklir matmenn og þá sér- staklega Hjalti sem veigraði sér ekki við að stilla sér upp með einni kótilettu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.