Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2015, Qupperneq 24

Skessuhorn - 28.10.2015, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 201524 Lítið af afla hefur borist á land á Arnarstapa á Snæfellsnesi það sem af er þessu ári samanborið við fyrri ár. Nú í lok okótber, þeg- ar aðeins tveir mánuðir eru eftir af árinu, er búið að landa rétt rúm- um 1.600 tonnum þar frá áramót- um. Til samanburðar bárust liðlega 4.200 tonn á land á Arnarstapa árið 2014. Árið 2013 náði þessi tala upp í 2.790 tonn áður en áramótaflug- eldar landsmanna hófust til flugs á gamlárskvöld. Langvarandi löndunartregða Helsta skýringin á minni aflabrögð- um í ár er að makrílveiðar og –land- anir á Arnarstapa í sumar voru ekki svipur hjá sjón samanborið við fyrri ár. Maímánuður var góður í bol- fisklöndunum í þessari fögru höfn og lofaði góðu um framhaldið en þá var landað 546 tonnum. Lít- ill bolfiskafli barst hins vegar að landi það sem eftir lifði sumars og haustið var sömuleiðis mjög lélegt. Þar var bæði um að kenna léleg- um gæftum og tregum afla á hand- færin á strandveiðunum. Haustið var einnig lélegt. Enginn afli barst á land á Arnarstapa nú í október- mánuði fyrr en í annari viku mán- aðarins. Síðustu daga hafa hins veg- ar sex línubátar landað þar. Þannig hefur meira líf færst í höfnina. Þrá- látar norðanáttir í Breiðafirði hafa hrakið bátana suður fyrir Snæfells- nes þar sem áhafnir þeirra geta lagt og dregið línuna í skjóli frá nes- inu. Afli hefur verið þokkalegur en þorskurinn nokkuð smár. Starfs- menn Fiskistofu fylgjast með veið- unum, mæla afla og hefur komið til skyndilokana vegna of mikils und- irmálsfisks í afla einstaka báta. Í fyrsta sinn í tíu ár Blaðamaður Skessuhorns var á bryggjunni þegar bátarnir komu inn til löndunar síðdegis á fimmtu- dag. Einn þeirra báta sem þá lögð- ust að bryggju var Brynja SH frá Ólafsvík. Þeir á Brynju voru mætt- ir í tímamótalöndun. Á Arnar- stapa höfðu þeir ekki komið til að leggja upp afla í ein tíu ár. „Nei, ég hef alltaf siglt heim til Ólafsvík- ur og landað þar. Ég er svo vana- fastur,“ sagði Heiðar Magnússon skipstjóri og útgerðarmaður glað- beittur á svip þegar hann stökk í land. „Við ætlum að prófa þetta aðeins hérna sunnan megin núna. Það er spáð norðaustan leiðinda- veðri norðanmegin við Snæfells- nesið næstu daga. Hér erum við í skjóli. Eiginlega hefði maður átt að drífa sig norður í land núna á þess- um árstíma og róa frá Skagaströnd- inni. Maður var bara alltaf að bíða eftir því að það yrði betra hérna við Vesturlandið nú í haust en svo skeði aldrei neitt. Við getum þó svo sem ekki kvartað, erum búnir að vera með allt upp í 7,8 tonn af fiski á 48 bjóð núna undanfarið. Þetta er svona blandaður fiskur. Við höfum verið í Breiðafirðinum nú í haust. Mikið í Álnum og á Brotunum sem kallað er,“ sagði Heiðar í spjalli við Skessuhorn á meðan hann og áhöfn hans biðu eftir að komast undir löndunarkranann. Ánægðir með nýjan bát Heiðar festi kaup á nýjum bát fyrr á þessu ári. Hann leysti af hólmi eldri Brynu SH sem hafði þjón- að vel og dyggilega. „Nýi báturinn er að reynast okkur vel. Við feng- um hann í maí. Í júlí og ágúst vor- um við reyndar á makrílveiðum á gamla bátnum sem nú heitir Brynja II SH. Það er varla komið í ljós enn hvernig makrílvertíðin kom út hjá okkur fjárhagslega. Við eigum eft- ir að fá greitt fyrir rúm hundrað tonn af afla sumarsins. Við veidd- um einnig 40 tonn sem við frystum í beitu. Það er hægt að selja mak- rílinn. Spurningin er frekar á hvaða verði. Við erum að vona að það skili sér til okkar svona 65 til 70 krónur fyrir kílóið. Maður er bara sáttur ef það verður hægt að sleppa frá þess- ari makrílvertíð á sléttu þannig að við höfum fyrir launum og kostn- aði. Hin tvö sumrin sem við vorum á makrílnum 2014 og 2013 gengu mjög vel. Þetta jafnar sig út í heild- ina.“ Heiðar rær við þriðja mann á Brynju SH. Með honum eru þeir Kjartan Hallgrímsson og Ágúst Long sem einnig eru frá Ólafsvík. Svona bátur skapar allnokkur störf. „Svo er fólk að beita fyrir okkur í landi.“ Þeir hafa ekki orðið varir við lækkanir á fiskverði sem fjallað er um annars staðar í Skessuhorni vikunnar. „Við seljum allan okkar þorsk og ýsu á föstu verði til fisk- vinnsla sem við höfum samið við. Þorskurinn fer til Nýfisks í Sand- gerði en ýsan til Hafgæða í Reykja- vík. Það er búið að vera þannig í nokkur ár. Við erum sáttir við það verð sem við fáum,“ sagði Heiðar Magnússon og dreif sig aftur um borð í Brynju SH til að færa bát- inn undir löndunarkranann á Arn- arstapa. Það var komið að þeim. mþh Landanir glæðast á Arnarstapa Guðbjartur SH kemur til löndunar. Ásgeir Long háseti á Brynju SH. Línubáturinn Tryggvi Eðvarðs SH sígur að bryggju þokkalega siginn að aftan með nýdregin bjóð á dekki og fisk í körum. Heiðar Magnússon skipstjóri og útgerðarmaður á Brynju SH. Loksins fóru landanir á þorski að glæðast á Stapanum. Þeim gula er hér sturtað í kör með ís. Tveir skipstjórar komnir að landi á Stapanum. Heiðar Magnússon á Brynju SH og Arnar Laxdal Jóhannsson á Tryggva Eðvarðs SH. Heiðar Magnússon tekur við körum fullum af þorski úr bát sínum á bryggjunni. Arnar Laxdal Jóhannsson hagræðir þorski í körum. Að baki hans er Björgvin Guðmundsson frá Fiskistofu í Stykkishólmi. Hásetarnir á Tryggva Eðvarðs notuðu tímann og skrúbbuðu afturendann á bát sínum meðan þeir biðu eftir löndun.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.