Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2015, Síða 32

Skessuhorn - 28.10.2015, Síða 32
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 201532 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.isparketlist@parketlist.is Fræðslumál í Borgarbyggð Pennagrein Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Sveitarfélög bera ábyrgð á rekstri grunn- og leikskóla sbr. lög um grunnskóla nr. 91/2008 og lög um leikskóla nr. 90/2008. Fræðslunefnd Borgarbyggðar er fagnefnd sem starfar í umboði sveitarstjórnar og eru helstu hlutverk hennar að fara með málefni grunn- og leikskóla eft- ir því sem lög og reglugerðir kveða á um og sveitarstjórn kann að fela henni sbr. 1. mgr. 6. gr. grunnskóla- laga og 2. mgr. 4. gr. leikskólalaga. Þegar ég hóf störf í fræðslunefnd sumarið 2014 kom fljótlega í ljós að fjárhagsstaða sveitarfélagsins var mun verri en gert hafið verið ráð fyrir, fyrir kosningar. Nýir, en löngu tímabærir kjarasamningar, komu til og þar sem launakostnaður er stærsti útgjaldaliður fræðslumála höfðu þær breytingar veruleg áhrif á stöðuna í þeim málaflokki. Betur má ef duga skal Beiðnir hafa komið fyrir fræðslu- nefnd varðandi aukin fjárfram- lög skólaárið 2014-15, t.a.m. varð- andi tölvukaup, aukinn stuðning við kennara, sérfræðiþjónustu og úrbæt- ur við húsakost. Þá hafa kennarar og skólaráð einnig lýst yfir áhyggjum af þeirri staðreynd að það fjármagn sem áætlað hefur verið í búnaðar- kaup hefur ekki nægt fyrir eðlilegu viðhaldi eða endurnýjun nauðsyn- legum tækjum. (121.fundur fræðslu- nefndar, mál1502076: http://www. borgarbyggd.is/stjornsysla/funda- gerdir/fraedslunefnd/nr/18391/) Skólar í Borgarbyggð starfa eft- ir aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og er eitt af hlut- verkum aðalnámskrár að samræma nám og kennslu og tryggja réttindi allra nemenda til jafnrétti til náms. Það á einnig við um búnað og að- stöðu nemenda til náms með það í forgrunni að skapa viðeigandi náms- tækifæri. (Menntamálaráðuneytið. (2011). Aðalnámskrá grunnskóla-al- mennur hluti. bls 7 og 31). Það er á ábyrgð sveitarstjórnar að sjá börnum fyrir viðeigandi sérfræði- þjónustu sbr. 1. mgr. 40. gr. grunn- skólalaga og 1. mgr. 21. gr. leikskóla- laga. Erfitt hefur verið að fullmanna sérfræðingateymi sérfræðiþjón- ustu sveitarfélagsins og hefur þá að- gengið ekki verið með fullnægjandi hætti. Að mínu mati er æskilegt að kortleggja sérfræðiþjónustu Borgar- byggðar í þeirri mynd sem hún er í dag. Einnig að gera könnun meðal notenda og þeirra sérfræðinga sem innan hennar starfa, með það að leið- arljósi að framkvæmd hennar byggi á heildarsýn út frá hagsmunum allra notenda sveitarfélagsins. Miklu máli skiptir að styrkja þessa þjónustu með auknum mannafla og fjármunum. Þá ber að halda því til haga að ráðn- ir hafa verið tveir talmeinafræðingar og unnið er að ráðningu sálfræðings. Er það eitt af starfssviðum fræðslu- nefndar að sjá til þess að nemendum og skólum sé tryggður greiður að- gangur að búnaði, kennsluaðstöðu og sérfræðiþjónustu og tryggja öll- um nemendum nám og stuðning við hæfi. Að sníða skólastofnunum sveitar- félagsins svo þröngan stakk að erfitt sé að halda úti lögbundinni þjónustu er ástand sem getur ekki og má ekki vara lengi. Ljóst er að fræðslumálin eru stór og mikilvægur málaflokkur og renna um 62% af tekjum sveitar- félagsins til hans. Því verður ekki hjá því komist að fara vel ofan í saumana á rekstri málaflokksins. Fjárhagsstaða sveitar- félagsins og aðgerðir Ef horft er nánar á fjárhagsstöðu Borgarbyggðar er augljóst að vand- inn liggur í rekstrinum sjálfum og ef bæta á úr þá verður annað hvort að auka tekjur eða minnka útgjöld. Best væri ef hægt væri að leysa þenn- an vanda með því að auglýsa sveit- arfélagið og þau fjölmörgu tækifæri sem það hefur upp á að bjóða, bíða þess að fólk flytji hingað og hækka þar með tekjuhlið sveitarfélagsins. Staðreyndin er hins vegar sú að það tekur tíma og að mikið þarf til að koma, til þess að um slíkan viðsnún- ing yrði að ræða á tekjuhlið sveitar- félagsins að eingöngu væri hægt að treysta á hana. Það er hreinlega ekki raunhæft. Við verðum því að ein- beita okkur að báðum þessum liðum og ekki verður undan þeirri ábyrgð skorast að horfast í augu við vand- ann eins og hann liggur fyrir. Sveita- stjórn er að takast á við vandann. Það finnst engum eftirsóknarvert að þurfa að taka sársaukafullar ákvarð- anir og eru þær ekki teknar af létt- úð eða í neinum öðrum tilgangi en þeim að rétta af reksturinn og bæta í framhaldinu aðbúnað stofnana. Miklar breytingar hafa verið gerð- ar á fjárhagsáætlun til að bregðast við helsta vandanum og hafa marg- ir þurft að taka á sig skerðingar nú þegar. T.a.m. voru fasteignaskattar hækkaðir, gjaldskrár skólanna hækk- aðar um 10% og um 5% í íþrótta- mannvirkjum sveitarfélagsins og opnunartímar íþróttamann- virkja skert- ir. Tekin var út af áætlun stækkun lóðar við leik- skólann Klettaborg, húsnæðisvand- inn á leikskólanum Hnoðrabóli lát- inn óleystur að sinni og gerðar mikl- ar breytingar á rekstri Hvanneyrar- deildar Grunnskóla Borgarfjarðar. Hætt var við lagfæringar á inngangi Grunnskóla Borgarfjarðar á Varma- landi og húsnæði Húsmæðraskól- ans verið lokað og sett á sölu. Nauð- synlegum verkefnum til lagfæring- ar á húsnæði grunnskólans í Borgar- nesi frestað og einnig að tekin yrðu inn 12 mánaða börn á alla leikskóla í Borgarbyggð. Þá hafa komið til upp- sagnir og hefur fólk þurft að taka á sig launalækkanir innan stofnana sveitarfélagsins. Nú horfum við fram á við Borgarbyggð er skólahérað. Hér eru góðir skólar á öllum skólastigum og framúrskarandi fagfólk sem starfar innan þeirra. Það hefur best sýnt sig í störfum þeirra þann tíma sem sam- dráttur hefur varað en þá hafa kenn- arar og annað starfsfólk náð að halda uppi slíkum gæðum innan skóla- starfsins sem raun ber vitni. Kominn er tími til að horfa fram á við, ákvarða hvað mestu skiptir í rekstri skólastofnana sveitarfélagsins, hvernig við viljum verja fjármunum í rekstri þeirra í fjárhagsáætlun 2016 og í framtíðinni. Það verður að hluta til gert með mótun nýrrar skóla- stefnu sem ætlað er að verði tilbúin vorið 2016 en að þeirri vinnu koma allir hagsmunaðilar og móta faglega stefnu skólastarfsins. Ég sem vara- formaður fræðslunefndar er meðvit- uð um alvarleika fjárhagsstöðu sveit- arfélagsins en það er hlutverk mitt að gera kröfu um að skólarnir okk- ar, fagfólkið sem þar starfar og börn- um sveitarfélagsins verði tryggt enn betra starfsumhverfi og fyrsta flokks aðstaða til kennslu og náms. Að þeir fjármunir sem ávinnast í hagræðing- araðgerðum, sem þegar hefur verið gripið til eða eru framundan, fari í það að byggja upp aðstöðu skólanna, innviði þeirra og þar með það góða faglega starf sem þar er unnið. Lilja Björg Ágústsdóttir, grunn- skólakennari og meistaranemi í lög- fræði Höfundur er varaformaður fræðslunefndar. Hinn illmælanlegi fórnarkostnaður Pennagrein Einhverjum kann að finnast það vera að bera í bakkafullan lækinn að skrifa enn eina greinina um skóla- mál á Hvanneyri. En ég ætla ekki að tala um stjórnsýslu sem er úr svo grárri forneskju að það er helst á færi sagnfræðinga að skilja hana og útskýra. Ég ætla ekki að tala um hvort 30-40 milljóna sparnaður, eða hvort hann sé yfir höfuð svo mik- ill, sé næg ástæða til að svipta vax- andi þéttbýliskjarna sinni öflugustu grunnstoð eða hvort það geti stuðl- að að því að LbhÍ fari af staðnum. Nei mig langar að tala um punkt sem hefur, að mínu mati, ekki farið nægilega hátt. Frá því að lokun eða niðurskurð- ur tengdur Hvanneyrardeild GBF barst mér fyrst til eyrna þá hef ég haft áhyggjur af því að þar myndu menn kasta frá sér einhverju mun dýrmætara en nokkur tölfræði, krónutala eða tilfinning nær yfir. Það er nefnilega svo að þessi skóli sem nú er talað um að loka, eða í það minnsta breyta á dramatískan hátt, hefur nefnilega ákveðna sér- stöðu meðal okkar ágætu grunn- skóla. Þó að ég geti séð það og skilið, að 30 barna skóli geti verið kostnaðarsamari per nemanda held- ur en t.d. 100 barna skóli eða þaðan af stærri þá getur hann verið mjög þjóðahagslega hagkvæmur, þó að þjóðin sem hér um ræðir sé aðeins eitt sveitarfélag. Gæði skólastarfsins í Hvanneyr- ardeild GBF hafa verið mæld, að svo miklu leyti sem hægt er að mæla slíkt, og um það er ekki deilt að þau eru síst minni en annarra skóla sveitarfélagsins. En gæðin sem ekki mælast eru þau sem ég held að sé mest eftirsjá í fari sem horfi. Það eru nefnilega börnin sem falla nið- ur um sprungurnar í stærri skólum, börnin sem ekki þrífast í stórum bekkjum eða þurfa svo mikla at- hygli frá kennurum og starfsfólki að því verður ekki við komið í bekkj- ardeildum sem telja orðið nemend- ur í tugum frekar en einingum. Ég þekki það af persónulegri reynslu og það sama hafa fleiri sagt, að börnin þeirra sem ekki þrifust almennilega í stærri skólum fóru að blómstra hér. Þar sem hægt var að nálgast þau á því plani sem þau þurftu en sem var ekki endilega sama plan og jafnaldrar þeirra voru á og hægt var að veita þeim meiri athygli án þess að það bitnaði á bekkjarfélögunum. Þetta er besta dæmið um kosti lítilla skóla, þar sem samkennsla árganga er normið. Það er mín skoðun að við sem samfélag, hvort heldur það sam- félag heitir Borgarbyggð, Ísland eða heimurinn, höfum ekki efni á að missa krakkana okkar í gegn- um rifurnar. Það skiptir ekki máli hvað þau taka sér fyrir hendur þeg- ar grunnskóla líkur, við viljum að þá hafi þau aflað sér þeirra tækja sem til þarf til að marka sér sína braut, hvert svo sem hún leiðir. Að þau hafi þann grunn sem þau þarfnist til að geta orðið það sem þau vilja. Að þau þurfi ekki á fullorðinsárum, að fara til að sækja sér þann grunn sem við ætlumst til að „grunnskóla- próf“ veiti. Ég óttast að með þeim róttæku breytingum sem fyrirhugaðar eru á skólanum hér á Hvanneyri þá séum við að auka hættuna á þessu. Með því er ég ekki að kasta neinni rýrð á hina grunnskólanna okkar, því hér er einfaldlega verið að veita nem- endum þjónustu sem er erfitt eða ómögulegt að veita þar. Alveg síðan ég sá hvaða áhrif það hafði til batnaðar á dóttur mína að hefja nám hér, þá hefur mér fund- ist að Hvanneyrardeild GBF væri vannýtt auðlind. Hér er vel hægt að taka við aðeins fleiri nemendum án þess að kostum smæðarinnar sé fórnað og að það ætti að vera val- kostur fyrir foreldra sem eiga börn sem þrífast ekki nægilega vel í stærri skólum. Ég vil því að lokum skora á sveit- arstjórn Borgarbyggðar að hætta snarlega við áform sín um drama- tískar breytingar á skólamálum á Hvanneyri og snúa vörn í sókn og byggja ofan á það góða starf sem hér hefur verið unnið og stuðla með því að áframhaldandi fjölbreyttu gæða grunnskólastarfi í Borgarbyggð. Konráð J. Brynjarsson, foreldri og íbúi á Hvanneyri. - - - - Daglegar ferðir frá Akranesi - Reykjavík Reykjavík - Akranes

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.