Skessuhorn - 28.10.2015, Qupperneq 35
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 35
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Leikmenn Snæfells héldu austur
á Egilsstaði síðastliðinn föstudag
og mættu Hetti í Domino‘s deild
karla í körfuknattleik. Snæfelling-
ar náðu undirtökunum í upphafi
leiks og leiddu framan af fyrri hálf-
leik en náðu aldrei afgerandi forystu
og Höttur minnkaði muninn í fimm
stig undir lok annars leikhluta. Snæ-
fell byrjaði síðari hálfleikinn betur
en leikmenn Hattar tóku við sér um
miðjan þriðja leikhluta og komust
að lokum yfir þegar fimm mínút-
ur lifðu leiks. Upphófust þá spenn-
andi lokamínútur. Þegar aðeins tíu
sekúndur voru eftir leiddu heima-
menn með einu stigi. Snæfellingar
tóku frákast og keyrðu upp í hraða-
upphlaup. Boltinn barst til Sher-
rod Wright í horninu. Hann lyfti
sér upp og setti þriggja stiga körfu í
þann mund sem lokaflautan gall og
tryggði Snæfellingum þar með sinn
fyrsta sigur í deildinni, 60-62.
Það var fyrrnefndur Sherrod sem
var atkvæðamestur í liði Snæfells.
Hann skoraði 22 stig og tók sex frá-
köst. Næstur honum kom Austin
Bracey með 13 stig, þrjú fráköst og
tvær stoðsendingar.
Snæfellingar mæta Grindvíking-
um suður með sjó í næsta deildarleik
fimmtudaginn 29. október. kgk
Flautukarfa Sherrod tryggði
Snæfellingum sinn fyrsta sigur
Sherrod Wright tryggði Snæfelli
fyrsta sigur liðsins í deildinni með
flautukörfu gegn Hetti á Egilsstöðum á
föstudaginn. Ljósm. sá.
Snæfell sótti Hauka heim í þriðju
umferð Domino‘s deildar kvenna
í körfuknattleik síðastliðinn mið-
vikudag. Haukar byrjuðu betur og
skoruðu fyrstu sjö stig leiksins en
eftir það rankaði lið Snæfells við
sér og jafnaði metin fyrir lok ann-
ars leikhluta. Gestirnir náðu svo
yfirhöndinni og komust sex stig-
um yfir en Hafnfirðingum tókst að
minnka muninn í tvö stig áður en
flautað var til leikhlés, 32-34.
Snæfellskonur mættu mjög
ákveðnar til síðari hálfleiks og virt-
ust hreinlega skora að vild. Mest
höfðu þær ellefu stiga forystu og
útlit fyrir að þær ætluðu að gera út
um leikinn. Haukar náðu hins veg-
ar að minnka muninn með ágæt-
um kafla. Með góðum lokaspretti
síðustu mínútur leiksins tókst
þeim svo að ná forystu og knýja
fram fjögurra stiga sigur, 66-62 og
fyrsta tap Snæfells í deildinni stað-
reynd.
Litlu munaði að ræsa þyrfti út
þrennuvaktina vegna stórleiks
Denise Palmer. Hún lauk leik með
með 26 stig, tólf fráköst og átti sjö
stoðsendingar.
Næst tekur lið Snæfells á móti
Keflavík í Stykkishólmi laugardag-
inn 31. október næstkomandi. kgk
Fyrsta tap Íslandsmeistaranna
Denise Palmer átti stórleik gegn
Haukum en það dugði ekki til og fyrsta
tap Snæfells í deildinni staðreynd.
Ljósm. sá.
ÍA mætti Hamri í Hveragerði í 1.
deild karla í körfuknattleik föstudag-
inn 23. október síðastliðinn. Jafnt var
á með liðunum framan af en heima-
menn í Hamri náðu undirtökunum
í upphafi annars leikhluta og leiddu
með sex stigum í hálfleik, 51-46.
Skagamenn fylgdu Hamarsmönn-
um eins og skugginn í byrjun síðari
hálfleiks en með góðum spretti undir
lok þriðja leikhluta náðu heimamenn
að slíta sig frá ÍA. Þeir héldu Skaga-
mönnum frá sér í lokaleikhlutanum
og unnu að lokum tólf stiga sigur,
98-86. Sean Tate var atkvæðamestur
í liði ÍA með 42 stig, fimm stoðsend-
ingar og þrjú fráköst. Áskell Jónsson
kom næstur honum með 21 stig, sex
fráköst og fjórar stoðsendingar.
Eigi skal gráta Björn bónda, held-
ur safna liði og leita hefnda. Næsti
leikur ÍA verður í Powerade-bikarn-
um föstudaginn 30. október næst-
komandi. Andstæðingurinn er ein-
mitt Hamar og aftur verður leik-
ið í Hveragerði. Næsti deildarleik-
ur liðsins fer svo fram föstudaginn
6. nóvember þegar liðið fær KFÍ í
heimsókn. kgk
ÍA tapaði í Hveragerði
Leikstjórnandinn Sean Tate skoraði
42 stig þegar ÍA tapaði gegn Hamri
síðasta föstudag. Ljósm. jho.
Sigurður Arnar Sigurðsson for-
maður ÍA mætti á æfingu hjá Klif-
urfélagi ÍA á laugardaginn síðast-
liðinn og afhenti félaginu viður-
kenningarskjal fyrir uppbygging-
arstarf. Þórður Sævarsson, þjálfari
og stofnandi Klifurfélagsins, veitti
skjalinu viðtöku ásamt fjárstyrk
sem verður notaður til áframhald-
andi uppbyggingar hjá félaginu.
Sigurður sagði við þetta tilefni að
framkvæmdastjórn ÍA fagni því
frumkvæði og drifkrafti sem Klif-
urfélagið hafi sýnt við að koma sér
upp æfingaaðstöðu. Þar ríki hinn
sanni íþróttaandi og áhugi, þar sem
verkin eru látin tala. „Klifuríþróttin
er góð viðbót við þær íþróttagrein-
ar sem fyrir eru hjá bandalaginu og
það eykur enn á fjölbreytileikann í
starfinu okkar,“ sagði Sigurður.
Klifurfélag ÍA var upphaflega
óformlegt grasrótarfélag. Starf-
semin byrjaði í september 2013
þegar Þórður Sævarsson íþrótta-
kennari reisti lítinn grjótglímu-
vegg í íþróttahúsinu við Vesturgötu
á Akranesi og bauð nemendum sín-
um og öðrum áhugasömum að æfa
þar klifur. Starfsemin hefur und-
ið utan um sig og er félagið núna
í formlegu ferli til að gerast átj-
ánda aðildarfélag ÍA. Nú í haust var
klifurveggurinn svo stækkaður til
muna til að mæta örri fjölgun iðk-
enda. Var sú vinna öll unnin í sjálf-
boðastarfi.
Boðið er upp á æfingar fyrir
börn á aldrinum sex til sextán ára
og fjöldi iðkenda er kominn vel á
þriðja tuginn. Félagið er í góðri
samvinnu við önnur klifurfélög á
landinu. Farið er í æfingabúðir og
keppt hefur verið á ýmsum mótum,
þar á meðal Íslandsmeistaramótinu
þar sem Ástrós Elísabet Ástþórs-
dóttir hjá Klifurfélagi ÍA hlaut silf-
urverðlaun í samanlagðri mótaröð
til íslandsmeistara.
Þegar veður og aðstæður leyfa er
klifrað línuklifur í klettum Akra-
fjalls. Línuklifur innandyra er líka
æft reglulega í veggnum hjá Björg-
unarfélagi Akraness. Klifurfélag-
ið leigir út salinn í kjallara íþrótta-
hússins að Vesturgötu fyrir barna-
afmæli og rennur ágóðinn af leig-
unni til félagsins.
-fréttatilkynning
Klifurfélag ÍA hlýtur viðurkenningu
Skallagrímur fékk lið Ármanns í
heimsókn í þriðju umferð 1. deildar
karla í körfuknattleik föstudaginn
23. október síðastliðinn. Leikur-
inn var í járnum framan af og liðin
skiptust á um að leiða þar til annar
leikhluti var rétt rúmlega hálfnað-
ur. Þá náðu leikmenn Skallagríms
góðum spretti og leiddu með 14
stigum þegar flautað var til hálf-
leiks, 53-39. Forystuna létu Borg-
nesingar aldrei af hendi heldur
bættu í og stungu gestina af. Að
þriðja leikhluta loknum höfðu þeir
skorað 85 stig gegn 62 og lokatöl-
ur urðu 124-82, ótrúlegt stigaskor
í Fjósinu í Borgarnesi og Skalla-
grímur búinn að vinna þrjá fyrstu
leiki sína í deildinni í vetur.
Þrátt fyrir að hafa látið lítið fyrir
sér í fyrsta fjórðungnum lauk J.R.
Cadot leik með 32 stig, 15 fráköst,
sex stoðsendingar, þrjú varin skot
og tvo stolna bolta. Þá skoraði Sig-
tryggur A. Björnsson 31 stig, gaf
níu stoðsendingar, vann boltann
sjö sinnum og tók sex fráköst.
Næsti leikur liðsins verður í
Powerade-bikarnum föstudaginn
30. október gegn Fjölni. Leikið
verður í Borgarnesi.
Í næsta deildarleik fara Skalla-
grímsmenn hins vegar norður til
Akureyrar og mæta Þór föstudag-
inn 6. nóvember næstkomandi.
kgk
J.R. Cadot fór mikinn þegar Skalla-
grímur gjörsigraði Ármann síðasta
föstudag. Hann skoraði 32 stig og tók
15 fráköst. Ljósm. fengin af
facebook-síðu Skallagríms.
Skallagrímur flengdi Ármann í Fjósinu
Landsliðskonan Sigrún Ámunda-
dóttir mun ekki leika fleiri leiki
með Skallagrími í 1. deild kvenna
í körfuknattleik á yfirstandandi
keppnistímabili. Hún hefur sam-
ið við Grindvík og mun leika með
liðinu í Domino‘s deildinni í vet-
ur. Hún lék tvo leiki með Skalla-
grími í haust og skoraði í þeim 31,5
stig að meðaltali og tók 8,5 fráköst.
Sigrún lék með Norrköping Dolp-
hins í Svíþjóð í fyrra og fyrir vetur-
inn hugðist hún halda erlendis í at-
vinnumennsku á nýjan leik. Gengi
það hins vegar ekki eftir var gert
ráð fyrir að hún færi í lið í úrvals-
deildinni.
Frá upphafi lá því fyrir að Sig-
rún myndi ekki klára leiktímabil-
ið með Skallagrími. Engu að síð-
ur er mikill missir af henni og að
sama skapi fengur fyrir Suðurnesja-
liðið. Í tilkynningu frá körfuknatt-
leiksdeild Grindavíkur kemur fram
að liðið ætli sér að gera atlögu að
öllum þeim titlum sem í boði eru
á tímabilinu. Sigrúnu telja þeir enn
fremur vera lokapúslið sem vantað
hafi í liðið svo þær áætlanir geti tal-
ist raunhæfar. kgk
Sigrún Ámunda úr Skallagrími í Grindavík
Sigrún Ámundadóttir í leik með Skalla-
grími gegn KR í haust.
Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.
Meistaraflokkur Grundarfjarð-
ar í körfubolta lék sinn fyrsta leik
laugardaginn 17. október þegar
liðið tók á móti b-liði Keflavíkur.
Heimamenn í Grundarfirði voru
með mikla yfirburði í leiknum og
gestirnir sáu aldrei til sólar. Það fór
svo að Grundfirðingar kláruðu leik-
inn 89-35. Svo var næsti leikur hjá
strákunum laugardaginn 24. októ-
ber þegar þeir heimsóttu b-lið KFÍ
en leikurinn fór fram í íþróttahúsi
Bolungarvíkur. Þar voru heima-
menn sterkari aðilinn og unnu
fimm stiga sigur 62-57 og þar með
var fyrsta tap Grundfirðinga stað-
reynd. Þeir eiga svo heimaleik þann
1. nóvember gegn fyrstu deildar liði
Breiðabliks í bikarkeppni KKÍ.
tfk
Grundarfjörður byrjar með sigri og tapi