Fréttablaðið - 06.11.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 06.11.2019, Síða 2
Það sem við lærum aðallega á þessu er það að gefa út í samfélagið. Anna Fríða Ingvarsdóttir, nemandi í Hagaskóla Veður Austlæg átt 3-10 m/s. Snjókoma SA-til, annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti kringum frostmark, en frost 0 til 5 stig á N- og A-landi í dag. SJÁ SÍÐU 14 Finnur Dellsén hlaut Hvatningarverðlaunin SAMFÉLAG „Allir krakkarnir í skól- anum leggjast á eitt og safna pen- ingum til góðgerðarmála,“ segir Anna Fríða Ingvarsdóttir, nemandi í níunda bekk í Hagaskóla. Hún tekur þátt í góðgerðardegi skólans, Gott mál, og er bæði í nemendaráði og fjölmiðlanefnd. „Dagurinn er haldinn á morgun og í ár ætlum við að safna peningum til styrktar Landvernd og Bjartri sýn,“ segir Anna Fríða. „Í fyrra söfnuðum við tveimur til þremur milljónum og frá því að Gott mál var haldið í fyrsta sinn fyrir ellefu árum höfum við safnað rúmlega tuttugu milljónum.“ Gott mál verður haldið í húsnæði skólans á milli klukkan 16 og 19 á morgun og eru allir velkomnir. Í boði verða ýmsar uppákomur sem nemendurnir hafa lagt mikinn metnað í. „Það taka allir þátt en það er mis- jafnt hvað hver gerir. Tíundi bekkur sér til dæmis alltaf um draugahús sem er sett upp í kjallaranum og svo ákveður hver bekkur hvað hann vill gera,“ segir Anna Fríða. „Það eru margir bekkir með kaffi- hús í sínum stofum þar sem er selt kaffi og kökur sem við höfum bakað eða fengið í styrki. Áttundi bekkur er með gang þar sem er jólaþema og einn bekkur selur pítsur og sjeik,“ bætir hún við. „Svo geta þeir sem hafa áhuga á tónlist eða söng verið með tónlist- aratriði og aðrir með listsýningar. Fólk borgar sig þá inn á sýningarnar og getur keypt listaverkin,“ segir Anna Fríða. Hún segir stemninguna í skól- anum dagana i kringum góðgerðar- daginn vera skemmtilega og bætir við að krakkarnir læri mikið á því að halda Gott mál. „Það sem við lærum aðallega á þessu er það að gefa út í samfélagið,“ segir Anna Fríða. „Að það snúist ekki allt um að við þurfum nýjan iPad eða tölvu heldur að við getum gert eitthvað gott og með því að halda þennan dag finnum við að við getum hjálp- að.“ Aðspurð að því hvernig nem- endurnir völdu hvaða málefni skyldi styrkja segir Anna Fríða að allir nemendur hafi getað komið með hugmyndir og svo hafi farið fram kosning. „Við styrktum Bjarta sýn líka í fyrra. Þau reka munaðar- leysingjaheimili í Kenía,“ segir hún. Fyrir þá upphæð sem Hagskæl- ingar gáfu samtökunum í fyrra var opnaður skóli fyrir skjólstæðinga Bjartrar sýnar. „Núna eru þau syst- urskólinn okkar og við ætlum að styrkja þau næstu árin. Landvernd var svo valið því við vorum öll sam- mála um það hversu mikilvægt er að vernda landið okkar og náttúruna,“ segir Anna Fríða. birnadrofn@frettabladid.is Leggjast á eitt og safna fé til góðgerðarmála   Gott mál, góðgerðardagur Hagaskóla, verður haldinn á morgun. Nemendur safna peningum til styrktar Landvernd og Bjartri sýn. Dagurinn er haldinn í ellefta sinn og hafa fjölmörg málefni verið styrkt um rúmar tuttugu milljónir. 31. okt — 14. nóv hverfidmitt.is Kosning Anna Fríða er spennt fyrir góðgerðardeginum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs voru afhent við hátíðlega athöfn á Rannsóknaþingi Rannís í gær. Katrín Jak obs dótt ir for sæt is ráðherra, af henti Finni Dell sén, dós ent í heim speki við Há skóla Íslands, verðlaunin fyr ir árið 2019. Hvatningarverðlaunin eru veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. MYND/ARNALDUR HALLDÓRSSON Hleðslustöðvar fyrir rafbíla má finna víða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SA MGÖNGUR Raf bílasamband Íslands er tilbúið að gefa eftir kröfu um að ekki þurfi aðgangs- lykla frá orkufyrirtækjum til að hlaða raf bíla í skiptum fyrir að lykill frá einu fyrirtæki virki á allar hleðslustöðvar. Orkufyrirtækin hafa nú skilað inn umsögnum um breytingar á reglugerð um raforku- viðskipti. Í reglugerðinni er ákvæði um að allar hleðslustöðvar séu aðgengi- legar almenningi. Í umsögn Orku- veitu Reykjavíkur, sem á Orku náttúrunnar, segir að það þýði að hægt sé að halda núverandi fyrir- komulagi, þar sem þarf sérstakan lykil frá ON til að hlaða. Dýrt sé að koma upp búnaði til að lesa greiðslukort. Í umsögn Ísorku segir hins vegar að það þurfi ekki að ráðast í dýrar breytingar til að gera hleðslustöðv- um kleift að lesa greiðslukort, til þess þurfi aðeins vottaðar hug- búnaðarlausnir. Vilja þeir að það sé gert skýrt að raf bílaeigendur geti hlaðið bílana sína án þess að þurfa að skrá sig fyrir lykli. Jóhann G. Ólafsson, formaður Raf bílasambandsins, segir að þar sé vilji til að miðla málum. „Við erum alveg sátt við að hver og einn gefi út sinn lykil, en þá verða þeir að ganga alls staðar,“ segir Jóhann. Slíkt sé nú í undirbúningi í Bret- landi og víðar í Evrópu. – ab Lyklar virki alls staðar EGILSSTAÐIR Mjög alvarleg staða getur komið upp ef útköll í sjúkra- flug koma á sama tíma á mismun- andi landsvæðum, segir bæjarráð Fljótsdalshéraðs. Aðeins ein sjúkra- flugvél er starfrækt á landinu, gerð út frá Akureyri. „Bæjarráð Fljóts- dalshéraðs áréttar að brýnt er að komið verði upp aðstöðu fyrir hluta útgerðar þyrlusveitar Landhelgis- gæslunnar á Egilsstaðaflugvelli eða að þar verði staðsett sérstök sjúkra- þyrla til að sinna bráðatilfellum á þessu landsvæði,“ segir í bókun. – gar Vilja sjúkraflug til Egilsstaða Þyrla Landhelgisgæslunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 8 -B 5 5 4 2 4 2 8 -B 4 1 8 2 4 2 8 -B 2 D C 2 4 2 8 -B 1 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.