Fréttablaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki velja að flétta reglu-bundna starfsemi saman við samfélagsverkefni og kaupa vörur af Múlalundi sem annars væru keyptar annars staðar. Þannig skapast störf fyrir fólk með skerta starfsorku. „Að nota vörur frá Múlalundi er því einfaldasta sam- félagsverkefnið,“ Sigurður Viktor Úlfarsson, framkvæmdastjóri Múlalundar vinnustofu SÍBS. Umhverfisvænir pappírspokar eru stöðugt að verða mikilvægari þáttur í starfsemi Múlalundar vinnustofu SÍBS sem veitir um 80 manns með skerta starfsorku vinnu árlega. Fjölbreytt úrval burðar- og gjafapoka „Múlalundur býður upp á fjölbreytt úrval umhverfisvænna papp- írspoka. Pokarnir fást í ýmsum stærðum, litlir og stórir. Hægt er að fá þá í brúnum náttúrulit en einnig í hvítum, svörtum og rauðum með matt- eða glansáferð. Handföngin eru ýmist snúin eða flöt. Snúnu handföngin eru notuð þegar bera á litla þyngd í pokunum, til dæmis fatnað eða létta gjafavöru. Sléttu handföngin henta betur þegar bera á meiri þyngd í pokunum, til dæmis matvöru eða aðra þyngri vöru. Fallegir jólagjafapokar eru einn- ig í boði í nokkrum litum,“ segir Sigurður Viktor. „Pokarnir eru innfluttir af Múlalundi en skila mikilvægum fjármunum inn í rekstur vinnu- staðarins, auk þess að skapa störf fyrir fólk með skerta starfsorku við afgreiðslu og lager,“ bætir hann við. Merktir pokar skapa enn fleiri störf Fjölmargir kjósa að merkja pokana með fyrirtækismerki eða ann- arri merkingu. Með því verður til öflug auglýsing þar sem notendur pokanna taka þá víða og nota aftur og aftur. Merkingarnar geta verið í ýmsum litum. Pokarnir eru merktir af starfsfólki Múlalundar og skapa þar dýrmæt störf. Poki.is nýtt vörumerki á vegum Múlalundar Á 60 ára afmælisári Múlalundar sem nú er senn á enda var tekið í notkun nýtt vörumerki, Poki. is. „Með Poki.is fá viðskiptavinir okkar vefslóð sem mjög auðvelt er að muna þegar kaupa þarf poka. Poki.is sendir netnotandann beint í pokahluta vefverslunar Múla- lundar þar sem í boði er fjölbreytt úrval pappírspoka.“ Nýjar enn umhverfisvænni Eglamöppur úr pappír Nýjungarnar eru fleiri á Múlalundi. „Nú í haust komu á markaðinn nýjar Eglamöppur en þær hafa verið vinsælustu bókhaldsmöppur Múlalundar í áratugi. Eglamöppur eru afar vandaðar.“ Nýju Eglamöppurnar eru ein- göngu úr pappa og pappír, auk járnsins, og er pappírskápa límd utan á endurunninn pappa. Þær eru því án plasts og henta vel til endurvinnslu í lok notkunar. „Nýju möppurnar eru sérstyrkt- ar, járnin eru þau sömu og áður. Þær koma í svörtu, hvítu og bláu en hefðbundnu möppurnar fást í átta litum. Pappírinn í möppunum er evrópskur, vottaður pappír. Þær eru því enn umhverfisvænni kostur en eldri gerðin,“ segir Sigurður. Dagatöl og merktar dag- bækur vinsælar um áramót Sigurður bendir á að nú líði að áramótum og Múlalundur sé áramótafyrirtæki. „Í áratugi hafa fyrirtæki um allt land nýtt sér stór borðdagatöl Múlalundar, ýmist á borðum eða uppi á vegg í tengslum við sýnilega stjórnun. Þá framleiðir Múlalundur dagatöl fyrir fjölda fyrirtækja auk þess að gefa út eigið dagatal. Múlalundur framleiðir líka dagatalsblokk sem fólk getur nýtt á dagatöl sem það föndrar sjálft,“ segir hann. „Á Múlalundi er einnig í boði glæsilegt úrval dagbóka af ýmsum stærðum og gerðum. Þá eru fjöl- margir sem kjósa að merkja þær með merki fyrirtækisins og nafni starfsmanns. Ýmist eru nöfnin letruð á dagbækurnar eða þrykkt í ytra byrði bókanna. Það sama er hægt að gera við til dæmis funda- eða minnisbækur allt árið um kring.“ Fjölbreytt handavinna og sér- framleiðsla „Hjá Múlalundi tökum við að okkur mjög fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki og stofnanir víðs vegar um samfélagið til lengri eða skemmri tíma. Öll þessi verkefni skapa störf fyrir fólk með skerta starfsorku auk þess að skila hágæðaverki til viðskiptavina. Mörg fyrirtæki ná með við- skiptum sínum við Múlalund að flétta saman daglega starfsemi og samfélagsverkefni sem er frábær blanda. Þetta eru ýmist sérfram- leiðsluverkefni eða fjölbreytt verk sem þarf að vinna í höndunum. Verkefni til lengri tíma eru sér- staklega mikilvæg,“ segir Sigurður. „Á Múlalundi vinna dugmiklir einstaklingar sem hafa þurft að takast á við fötlun og veikindi, bæði andleg og líkamleg, í kjölfar slyss eða heilsubrests.“ Vefverslunin vinsæl Á heimasíðunni mulalundur. is er rekin stór vefverslun. „Þar geta viðskiptavinir valið úr glæsilegu úrvali og bæði verð og úrval kemur flestum á óvart. Það er einfalt að versla á netinu og við sendum vörurnar strax dag- inn eftir,“ útskýrir Sigurður, en fari pöntun yfir 16 þúsund krónur er frí heimsending um allt land. Fyrir lægri pantanir er lágt sendingar- gjald, 2.150 krónur. Á Múlalundi er sífellt leitað nýrra verkefna svo skjóta megi fleiri og styrkari stoðum undir reksturinn. Virkir á vinnumarkaði Á Múlalundi er aðstaða til að taka á móti mun fleira starfsfólki en for- senda fjölgunar er aukin viðskipti og verkefni. „Þetta er hörkuduglegt fólk og það þarf að hafa nóg að gera. Vinnudagur og verkefni eru löguð að getu hvers og eins. Nýir pappírspokar, Eglamöppur í sátt við umhverfið, dagbækur, dagatöl og fjölbreytt verkefni styðja við starfsemi Múlalundar og tryggja fjölbreytni í verkefnum,“ segir Sigurður ánægður. Múlalundur vinnustofa SÍBS er við Reykjalund í Mosfellsbæ. Sími 562 8500 netfang mulalundur@mula- lundur.is. Sjá nánar á mulalundur.is og poki.is Starfsmenn Múlalundar eru með mismikla starfsorku en Sigurður segir að allir séu vinnusamir. LJÓSMYND: JÓN PÁLL Fallegir bréf- pokar með jóla- mynstri fyrir fyrirtæki. Pokana er líka hægt að fá einlita og með merki viðkomandi fyrirtækis. Starfsfólk Múlalundar sér um að merkja sem skapar mikilvæg störf Venjulegir burðarpokar í nokkrum stærðum sem henta fyrir verslanir. Nýju Egla-möppurnar eru sérstak- lega vandaðar, án plasts og enn umhverfisvænni Múlalundur býður upp á fjölbreytt úrval umhverfisvænna pappírspoka. Pokarnir fást í ýmsum stærðum, bæði litlir og stórir. Pokarnir fást í ýmsum litum og stærðum. Þá er einnig hægt að fá fallega jólapoka. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 0 6 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 8 -C E 0 4 2 4 2 8 -C C C 8 2 4 2 8 -C B 8 C 2 4 2 8 -C A 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.