Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.11.2019, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 06.11.2019, Qupperneq 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Eins dapurt og það kann að hljóma þá þurfa fyrir- tæki að takast á við þann raun- veruleika að hið gamal- gróna er ekki endilega komið til að vera. Við megum aldrei hætta að hlusta, því hvert barn í neyð á sér sögu. Hverju barni má bjarga. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunna@frettabladid.is Skólaárið var nýbyrjað þegar Tyrkir réðust inn í Sýrland þann 9. október. 80 þúsund börn þurftu að skilja allt sitt eftir og f lýja. Náum við utan um slíkar tölur? Hjálpar það okkur að lesa að það samsvarar öllum börnum á Íslandi, 17 ára og yngri? Getum við ímyndað okkur að börnin okkar væru ekki á leið í leik- eða grunnskóla í dag því það væri ekki hægt að manna skólana með börnum? Þau hefðu bara öll fyrirvaralaust hlaupið út og haldið upp á hálendi í fullkomna óvissu. Foreldrar í Sýrlandi vilja það sama fyrir börn sín og íslenskir. Allt það besta, öryggi og gleði. Börn í Sýrlandi vilja líka það sama og börn á Íslandi. Að fá að vera börn, læra, lifa og leika. Börn, sama hvar í veröldinni þau eru, deila réttindum til alls þessa þó allt of mörg séu svipt þeim. Meðal annars vegna stríðs, eins og í Sýr- landi. Því áralanga stríði var ekki lokið þegar Tyrkir gerðu innrás. Fyrir hana höfðu 530 börn fallið eða særst í átökum á fyrstu 6 mánuðum ársins. UNICEF hefur verið til staðar fyrir börn á Sýrlandi frá upphafi við að tryggja öryggi þeirra og réttindi. UNICEF á Íslandi hefur verið með neyðarsöfnun frá því átökin þar hófust 2011 og blés nýju lífi í hana í síðustu viku. Með áskorun til Íslendinga um að skella ekki skollaeyrum við þessari nýju, auknu neyð. Margir virðast nefni- lega haldnir neyðardoða gagnvart orðunum „ástandið í Sýrlandi“ – þar á meðal fjölmiðlar. Fréttir um það tryggja því miður fáa smelli. Það ætti ekki að vera svo, en þannig er það. Við völdum að virkja fólk til að sýna hlut- tekningu og sækja sér sögu barna í Sýrlandi. Hringja í 562-6262 og bara hlusta. Síðan hefur þú val um að sýna þeim að þau skipti máli með því að senda sms-ið STOPP í númerið 1900 og gefa 1.900 kr. Við megum aldrei hætta að hlusta, því hvert barn í neyð á sér sögu. Hverju barni má bjarga. Aldrei hætta að hlusta Bergsteinn Jónsson framkvæmda- stjóri UNICEF á Íslandi EKKERT BRUDL Bónus Buffaló Leggir Fulleldaðir, 800 g, 2 teg. - Verð áður 879 kr. kr./800 g679 200kr afsláttur Fulleldað Aðeins að hita Enn einn stólaleikurinn Það er kominn annar stólaleikur í gang, nú er það næsti útvarps- stjóri. Það er ekki von á góðu enda Framsóknarmenn ekki beinlínis þekktir fyrir að stuðla að verðleikasamfélagi. Strax er byrjað að nefna einhver nöfn. Svanhildur Hólm Valsdóttir gæti gert góða hluti, en það er spurning hvort stjórnarseta í ríkisbatteríi sem klúðraðist hefur eitthvað að segja. Þá er Skúli Mogensen laus þessa dagana. Þá gæti Eygló Harðar- dóttir verið valkostur enda vin- sælt að ráða einhvern með enga reynslu af fjölmiðlum í verkefni tengt fjölmiðlum. Svo er það Karl Garðarsson, hann er með fína reynslu og réttu tengslin, þeir sem vilja sjá hvernig hann stendur sig sem stjórnandi fjöl- miðils geta kíkt á dv.is. Hjálparhöndin Útlendingastofnun er búin að reita þjóðina enn einu sinni til reiði. Nú vegna brottvísunar konu sem gengin er átta mánuði á leið. Sagði í tilkynningu til fjölmiðla að til væri vottorð frá lækni um að konan væri ferða- fær. Vottorðið leit svo dagsins ljós en þar stendur: „Hún er slæm af stoðkerfisverkjum og ætti erfitt með langt f lug.“ Rifjast þá upp orð dómsmála- ráðherra sem sagðist vonast til að heimurinn rétti hjálparhönd ef allt færi illa á Íslandi. Einmitt. arib@frettabladid.is Gamalt og rótgróið fyrirtæki sem flestir Reykvíkingar þekkja skellti í lás í vikunni. Björnsbakarí lokaði dyrum sínum við Fálkagötu 18 í Vesturbæ Reykjavíkur eftir áratuga rekstur. Þriðja útibúið sem fyrirtækið lokar á undan- förnum tveimur árum. Breyttar neysluvenjur og aukin samkeppni voru ástæður þess að reksturinn gekk ekki upp, að sögn eigenda fyrirtækisins. Neysluhættir fólks hafa breyst svo um munar á undanförnum árum og eru tilefni til vangaveltna. Sennilega hefur vakning um heilsusamlegt mataræði spilað inn í þá staðreynd að Björnsbakarí heltist úr lestinni en á sama tíma spretta ný bakarí á borð við Brikk og Brauð & Co eins og gorkúlur í hverju hverfinu á fætur öðru. Hverju sætir? Kannski spila vinsældir samfélagsmiðla eins og Instagram rullu. Eins dapurlega og það kann að hljóma þá þurfa fyrirtæki að takast á við þann raunveruleika að hið gamalgróna er ekki endilega komið til að vera. En hver er munurinn á rekstri þessara fyrir- tækja? Annað er gamalt, hitt er nýtt. Bæði bjóða upp á súrdeigsbrauð og kanilsnúða, á meðan aðeins annað þeirra nýtir sér stafræna markaðssetningu og samfélagsmiðla. Þó ekki sé hægt að fullyrða um að samfélagsmiðlar hafi gert út af við Björnsbakarí þá má velta fyrir sér breyttu umhverfinu. Neytendur verða stöðugt kröfuharðari og fara fram á meira úrval, meiri gæði – og síðast en ekki síst myndræna framsetningu sem samræmist svokallaðri glansmynd sem margir viðhafa á netinu. Samhliða þessu þarf þjónustan að vera hágæða og vöruverð lágt. Hugsanlega verða þessar kröfur fyrirtækjum ofviða. Það liggur fyrir að fyrirtæki sem ekki fylgja stefnum og straumum hvers tíma eiga erfitt uppdráttar, ólíkt því sem tíðkaðist áður fyrr, þegar orðsporið eitt og sér dreif þau áfram og flutti fjöll. Núna hins vegar þurfum við að takast á við þá staðreynd að rykmoppur, matarolíur og maskarar rjúka út sem aldrei fyrr með tilkomu áhrifavalda á Instagram. Ásókn í veraldleg gæði eykst stöðugt og almenningur virðist nánast varnarlaus gagnvart taumlausum auglýsingunum sem sækja að úr öllum áttum. Breytingar þurfa þó ekki að vera af hinu slæma enda hafa samfélagsmiðlar tengt neytandann og fyrirtækin betur saman. Hins vegar hefur gagnrýnin hugsun sjaldan verið eins mikilvæg, ekki síst vegna ákalls um breyttan lífsstíl og minni neyslu, og tímabært að staldra við og hugsa hvort raunveruleg þörf sé á nýjum andlitsmaska eða annarri flík í skápinn. Það er staðreynd að neysluhyggja hefur færst í aukana en með upplýstri umræðu og vitundarvakn- ingu er hægt að sporna við þeirri þróun. Tækifærin í breyttu samfélagi eru endalaus. Grípum þau og nýtum til jákvæðra verka. Út með það gamla? 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 6 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 8 -C 4 2 4 2 4 2 8 -C 2 E 8 2 4 2 8 -C 1 A C 2 4 2 8 -C 0 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.