Fréttablaðið - 06.11.2019, Page 14
Ensk i lögmaðurinn Claire Broomhead, sem hefur undanfarin ár verið eigandi hjá
LOGOS og starfað á skrifstofu lög
mannsstofunnar í London, hefur
gengið til liðs við BBA/Fjeldco sem
eigandi. Ráðning Claire er sögð
styrkja enn frekar alþjóðlega starf
semi stofunnar en hún varð til við
sameiningu BBA Legal og Fjeldsted
& Blöndal fyrr í haust.
Fyrir á skrifstofu BBA/Fjeldco í
London er hæstaréttarlögmaðurinn
Gunnar Þór Þórarinsson en hann
starfaði áður um árabil með Claire
á LOGOS.
Claire hef ur umfangsmik la
reynslu af fyrirtækjalögfræði, sam
runum og kaupum og sölum fyrir
tækja, fjárhagslegri endurskipu
lagningu félaga og almennri ráðgjöf
við fyrirtæki, og hefur unnið að
mörgum af stærstu viðskiptaverk
efnum á Íslandi síðan 2011. Hún
vann áður hjá Mallesons Stephen
Jaques í Sydney í Ástralíu og Ever
sheeds í Leeds á Englandi.
Aðrir helstu hluthafar BBA/
Fjeldco eru meðal annars Baldvin
Björn Haraldsson, Halldór Karl
Halldórsson, sem er jafnframt fram
kvæmdastjóri stofunnar, og Einar
Baldvin Árnason. Samanlögð velta
BBA og Fjeldco var um 860 milljónir
í fyrra. – hae
59%
er hækkun hlutabréfaverðs
Marels frá áramótum.
Tap Icelandic Water Holdings jókst um 61 prósent á milli ára og nam 25,6 milljónum
dollara árið 2018. Það jafngildir um
3,2 milljörðum króna. Jón Ólafsson
er stjórnarformaður og stofnandi
Icelandic Water Holdings en félag
ið tappar vatni á f löskur undir
merkjum Icelandic Glacial í verk
smiðju í Ölfusi.
Tekjur félagsins jukust um 17
prósent á milli ára og námu um
20 milljónum dollara, jafnvirði
um 2,5 milljarða króna. Um 93
prósent teknanna má rekja til
útflutnings. Tekjur vegna sölu
á Íslandi jukust um þriðjung
og námu um 1,3 milljónum
dollara, jafnvirði um 160
milljóna króna. Á sama tíma
rúmlega tvöfölduðust vaxta
gjöld félagsins á milli ára og
námu þau samtals 18 millj
ónum dollara í fyrra.
Fram kemur í árs
reikningi Ice landic
Water Holdings fyrir
árið 2018 að hlutur
Jóns hafi minnkað
um 18 prósent á
milli ára. Árið 2017
átti hann og tengd félög 23 pró
senta hlut í fyrirtækinu en í fyrra
var hlutur hans fimm prósent. Þau
bréf voru veðsett bandaríska fjár
festingarbankanum JP Morgan.
Í samtali við Markaðinn segir Jón
hins vegar að hlutur hans í fyrir
tækinu sé óbreyttur. „Það er bara
verið að gera það sem þarf til að
hafa hlutina í lagi,“ útskýrir Jón.
Sonur Jóns, Kristján Ólafsson, á
18,5 prósenta hlut í Icelandic Water
Holdings. Feðgarnir stofnuðu
félagið árið 2004.
Við lok árs var eigið
fé Icela nd ic Water
Holdings 16,7 milljónir
dollara og eiginfjár
hlutfallið 13 prósent.
Fyrirtækið upplýsti í
ágúst að hlutafé hefði
verið aukið um 31 millj
ón dollara. Núverandi
hluthafar og aðrir lögðu
félaginu til fé. Á sama
tíma var upplýst að
skuldabréfasjóðir á
veg u m Black Rock
hefðu lánað fyrir
tækinu 35 milljónir
dollara. – hvj
Vatnsfyrirtæki Jóns
tapaði 3,2 milljörðum
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Claire til BBA/Fjeldco
Claire Broom-
head var áður
eigandi hjá
LOGOS.
Erlendir fjárfestingarsjóðir, sem komu fyrst inn í hluthafahóp Marels í útboði í júní, bættu
við sig um 2,3 milljónum hluta að
nafnverði í félaginu í síðasta mán
uði, eða fyrir um 1.350 milljónir
króna miðað við núverandi gengi
bréfa Marels.
Þetta má lesa út úr gögnum
greiningarfyrirtækisins Morning
star sem heldur utan um eignarhluti
erlendra eignastýringarfélaga sem
eiga bréf í Marel í gegnum kauphöll
ina í Amsterdam. Tuttugu stærstu
félögin á lista Morningstar áttu
samanlagt um 92,6 milljónir hluta
í Marel í lok október, borið saman
við rúmlega 90 milljónir hluta
mánuði áður, en það jafngildir um
13 prósenta eignarhlut.
Sjóðir í stýringu Threadneedle
Management bættu hvað mest við
sig í Marel á tímabilinu, eða um
milljón hlutum. Þá fjárfestu sömu
leiðis meðal annars sjóðir í rekstri
félaga á borð við Baron Capital,
Investec Asset Management, Miton
Group og BlackRock í Marel í síðasta
mánuði, en rétt er að taka fram að
listi Morningstar gefur ekki tæm
andi mynd af viðskiptum með bréf
í félaginu í kauphöllinni í Amster
dam.
Frá skráningu á bréfum Mar
els erlendis hefur hlutabréfaverð
félagsins hækkað um liðlega sex
tán prósent. Í kauphöllinni á Íslandi
hefur gengið hækkað um 59 prósent
frá áramótum. – hae
Keyptu í Marel fyrir 1.350 milljónir
Hlutabréfaverð Símans hefur hækkað um 30 prósent frá áramótum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Útlit er fyrir að átök verði um stjórnarsæti Símans á sérstökum hluthafafundi félagsins eftir um tvær vikur, sem
var boðaður að kröfu Stoða, en
að minnsta kosti tveir nýir fram
bjóðendur munu þá bjóða sig fram
í stjórn fjarskiptarisans. Þann
ig munu Stoðir, sem eru stærsti
hluthafi Símans, tef la fram Jóni
Sigurðssyni, stjórnarformanni
fjárfestingafélagsins, og þá hyggst
Kolbeinn Árnason, lögmaður og
stjórnarmaður í eignarhaldsfélagi
gamla Landsbankans (LBI), einnig
gefa kost á sér í stjórn Símans, sam
kvæmt heimildum Markaðarins.
Ljóst er að Jón, sem sat í stjórn
olíufélagsins N1 á árunum 2014
til 2018, er öruggur með kjör í
stjórn Símans en Stoðir eru með
nærri 15 prósent af atkvæðabæru
hlutafé félagsins. Kolbeinn, sem
hefur meðal annars starfað áður
sem framkvæmdastjóri Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi og fram
kvæmdastjóri lögfræðisviðs slita
stjórnar Kaupþings, er hins vegar
sagður sækja einkum stuðning
sinn til minni hluthafa Símans. Þá
er einnig á það bent, sem kunni að
vinna með Kolbeini í stjórnarkjör
inu, að enginn í stjórn Símans sé í
dag með bakgrunn í lögfræði.
Tilnef ninga r nef nd Síma ns ,
sem var sett á laggirnar í nóvem
ber 2018, hefur hafið störf vegna
stjórnarkjörsins sem fer fram á
hluthafafundi félagsins 21. nóvem
ber næstkomandi og kallað eftir
sjónarmiðum frá hluthöfum.
Verulegar breytingar hafa orðið á
hluthafahópi Símans á skömmum
tíma. Stoðir, sem hófu að fjárfesta í
Símanum í apríl þegar félagið eign
aðist rúmlega átta prósenta hlut í
fyrirtækinu, hafa aukið hratt við
eignarhlut sinn og í síðasta mánuði
bættu Stoðir við sig rúmlega einu
prósentustigi. Á sama tíma hafa
erlendir fjárfestingarsjóðir – Eaton
Vance, Wellington, Landsdowne og
Miton – selt nánast öll bréf sín í Sím
anum. Þannig er sjóður í stýringu
Eaton sá eini í dag á lista yfir 20
stærstu hluthafa Símans með tæp
lega tveggja prósenta hlut en í byrj
un mars á þessu ári, þegar síðasti
hluthafafundur fyrirtækisins fór
fram, áttu erlendir sjóðir samanlagt
vel yfir 20 prósenta hlut í félaginu.
S a m k v æ mt v iðm æ l e ndu m
Markaðarins, sem þekkja til innan
hluthafahóps Símans, gætu þessar
breytingar á eignarhaldi dregið
úr líkum á því að hinir erlendu
stjórnar menn Símans, þau Bertrand
Kan, sem er jafnframt formaður
stjórnar, og Ksenia Nekrasova, sem
kom ný inn í stjórnina í fyrra og
starfaði áður sem framkvæmda
stjóri á sviði fjarskipta, fjölmiðl
unar og tækni hjá UBS, eigi stuðning
vísan í stjórnarkjörinu. Bertrand
var í hópi fjárfesta, sem var meðal
annars skipaður Orra Haukssyni,
forstjóra Símans, sem keyptu sam
anlagt fimm prósenta hlut í fjar
skiptafélaginu af Arion banka árið
2015. Í árslok átti Bertrand rúmlega
31 milljón hluta í Símanum sem eru
metnir á um 150 milljónir miðað við
núverandi gengi bréfa félagsins.
Á meðal þess sem Stoðir hafa
horft til þegar kemur að efna
hag Símans eru breytingar á fjár
magnsskipan félagsins og í þeim
efnum hafa um nokkurt skeið verið
uppi hugmyndir um fjármögnun á
grunni Mílu, dótturfélags Símans,
til að greiða niður óhagstæðari
skuldir samstæðunnar. Á síðasta
uppgjörsfundi kom fram í máli
Orra að hann „vildi örugglega gera
einhverjar breytingar á fjármögnun
[Símans] á næstu mánuðum“. Að
sama skapi benti Orri á að félagið
vildi áður sjá ýmislegt í umhverfi
þess, meðal annars tengt eignar
haldinu, komandi hluthafafundi
og eins umræðu um hvernig eigi að
samnýta innviði, „spilast út“. Það
hefði áhrif á hvernig Síminn vildi
koma á sem hagkvæmastri fjár
magnsskipan.
Þá hafa erlendir framtakssjóðir,
sem sérhæfa sig í fjárfestingum í
fjarskiptainnviðum, þar á meðal
ástralski sjóðurinn Macquire, sýnt
Mílu áhuga á undanförnum mán
uðum. Sjóðurinn hefur komið að
kaupum á fjarskiptainnviðum í
Evrópu á mjög háum hagnaðar
margfeldum – 15 til 20 sinnum
EBITDA – en miðað við það væri
hægt að áætla að virði Mílu sé um
50 milljarðar, sem er litlu meira en
markaðsvirði Símans í dag.
hordur@frettabladid.is
Jón og Kolbeinn vilja
fara í stjórn Símans
Útlit fyrir átök um stjórnarsæti í Símanum. Stoðir tefla fram Jóni Sigurðssyni
og þá mun Kolbeinn Árnason lögmaður sækjast eftir stuðningi til að koma
nýr inn í stjórn. Erlendir stjórnarmenn félagsins gætu átt undir högg að sækja.
14%
er eignarhlutur Stoða í dag.
6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
0
6
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
8
-D
2
F
4
2
4
2
8
-D
1
B
8
2
4
2
8
-D
0
7
C
2
4
2
8
-C
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K